Fréttablaðið - 07.03.2019, Qupperneq 44
Í dag kalla neytendur
einfaldlega eftir því að
fyrirtæki sýni fram á að þau
leggi sitt af mörkum í
umhverfis- og samfélags-
málum.
Skemmtileg aukaafurð sem við höfum tekið eftir hjá viðskiptavinum okkar er að
rekstrarkostnaður fyrirtækja á það
til að dragast saman þegar þau fara
að rýna í umhverfismál og nýting
hráefna verður oft mun betri,“ segir
Sigrún Hildur Jónsdóttir, einn af
stofnendum Klappa. „Það reynist
því vera hagkvæm ákvörðun að
huga betur að umhverfinu.“
Klappir þjónusta nú yfir 200
viðskiptavini á Íslandi og hefur
fyrirtækið hafið starfsemi í Lit-
háen og Bretlandi. „Umhverfis-
stjórinn hefur verið vinsælasta
varan okkar hérlendis en hann
safnar upplýsingum um þá þætti í
rekstri fyrirtækja sem hafa áhrif á
umhverfisspor þeirra. Þetta er t.d.
eldsneytis- og rafmagnsnotkun,
hiti eða heitt vatn og úrgangsmynd-
un. Við horfum líka í þætti eins og
flugferðir og prentmál fyrirtækja
og annað sem er tilfallandi fyrir
mismunandi iðnað,“ segir Sigrún.
Gögnum frá starfsemi fyrir-
tækja er streymt rafrænt til Klappa
þar sem unnið er úr þeim og þau
greind. Viðskiptavinurinn fær svo
heildstæða mynd af umhverfis-
málunum hjá sér sem byggist á
þessum upplýsingum. „Með því
að safna upplýsingum stöðugt,
frekar en eingöngu rétt fyrir árlegt
uppgjör, er hægt að taka upplýstar
ákvarðanir á hverjum tíma fyrir sig
með hliðsjón af þessum rauntíma-
upplýsingum. Þannig er einfalt að
setja sér markmið og fylgjast með
framvindunni jafnóðum. Ef ólík-
legt virðist að markmiðin náist þarf
eflaust eitthvað að skoða málin og
mögulega grípa til hertari aðgerða,“
segir Sigrún.
Þannig auðvelda Klappir
viðskiptavinum sínum að lág-
marka vistspor sitt og gera allt
umhverfisuppgjör öruggt, gagn-
sætt og skilvirkt. „Hugbúnaðurinn
okkar veitir líka viðskiptavinum
okkar þann möguleika að miðla
áfram upplýsingum um árangur í
umhverfismálum og eins er opin-
berum aðilum gert mögulegt að
fylgjast með árangri af aðgerðum
í samræmi við alþjóðlegar skuld-
bindingar.“
Hugvitið á bak við hugbúnaðinn
sækir í áratugalanga reynslu og
sérþekkingu stofnenda og starfs-
manna í umhverfisstjórnun og
þróun hugbúnaðar á alþjóðavísu.
Sigrún segir að í teymi Klappa sé
að finna fólk á öllum aldri með
sérþekkingu á sviði verkfræði,
hugbúnaðargerðar, lögfræði,
umhverfis mála og stjórnsýslu.
„Viðskiptavinir Klappa eru fyrir-
tæki á nær öllum sviðum atvinnu-
lífsins og einnig sveitarfélög og
stjórnvöld á ýmsum stigum stjórn-
sýslu.“
Einfaldar vinnuna
Lausnir Klappa miða allar að því
að einfalda vinnu við saman-
tekt á gögnum um umhverfis- og
samfélagsmál viðskiptavinanna.
„Hingað til hefur farið mikill tími
bara í að tína saman þau gögn
sem stendur til að birta því þau
eru dreifð og liggja víða. Síðan
þarf að reikna út kolefnissporið
og þetta ferli er mjög tímafrekt og
útheimtir mikla vinnu. Ofan á það
bætist síðan vinnan í kringum t.d.
samfélagsþætti og stjórnarhætti
þess fyrirtækis sem unnið er með
en leiðbeiningar eru þá oft ansi
flóknar,“ segir Sigrún og bætir því
við að hugbúnaður Klappa einfaldi
alla þessa vinnu. „Það sem skiptir
líka miklu máli og er kannski
svolítið vanmetið í allri þessari
umræðu er að fyrirtæki og stofn-
anir tali og geri uppgjör út frá sömu
forsendum þannig við séum í raun
og veru að bera saman sömu þætti.
Allir viðskiptavinir okkar eru á
sama ferðalagi og vinna umhverfis-
og samfélagsuppgjörin sín á sama
hátt. Þannig verða þeir læsir á
umhverfis- og samfélagsskýrslur
hver annars og geta treyst því að
gengið sé út frá sömu forsendum
við uppgjör og annað slíkt.“
Aðspurð segir Sigrún að Klappir
leggi mikið upp úr því að vera kol-
efnishlutlaus. Margir starfsmenn
búi í grennd við Austurstrætið
þar sem fyrirtækið er staðsett.
„Úrgangurinn er helsti hausverkur-
inn hjá okkur því flokkunartunn-
um er, líkt og svo víða, ábótavant í
húsnæðinu. Þetta er svona verkefni
sem við erum að vinna í góðu sam-
starfi við leigusalann okkar,“ segir
Sigrún og brosir.
Sívaxandi áhugi
Sigrún bendir á að með auknum
áhuga almennings á umhverfis- og
samfélagsmálum hafi athygli fyrir-
tækja beinst enn frekar að þessum
þáttum. „Einstaklingar mynda auð-
vitað fyrirtækin og með auknum
áhuga þeirra á málefninu aukast
líkurnar á því að fyrirtækin færi sig
í þessa átt. Þess utan starfa fyrir-
tæki í samfélagi og þurfa að svara
kalli neytenda. Í dag kalla neyt-
endur einfaldlega eftir því að fyrir-
tæki sýni fram á að þau leggi sitt af
mörkum í umhverfis- og samfélags-
málum og að upplýsingar um þessi
mál séu aðgengilegar og rekjan-
legar. Að það sé ekki hægt að segjast
vera að gera hitt og þetta án þess að
slíkar fullyrðingar styðjist við raun-
veruleg gögn. Það er þessi rekjan-
leiki sem skiptir svo miklu máli
og þar komum við til skjalanna og
getum lagt fyrirtækjum lið.“
„Við leggjum mikið upp úr því að
vera viðskiptavinum okkar innan
handar og veita þeim góða þjón-
ustu og oft myndast mjög góður
vinskapur með okkur,“ segir Sig-
rún. „Við höfum tekið eftir því að
þeim fyrirtækjum vegnar best sem
fylgjast markvisst með umhverfis-
og samfélagsmálum innanhúss í
stað þess að taka stöðutékk annað
slagið. Þeir sem ná teljanlegum
árangri í umhverfismálum eru
þeir sem hafa mikinn og einlægan
áhuga á málefninu og hafa ekki
misst trú á því að aðgerðir þeirra
skipti máli. Síðan hjálpar að skipa
sérstakan umhverfishóp innan
fyrirtækisins eða stofnunarinnar
og láta hann leiða starfið og fylgjast
með stöðu mála.“
Minnka vistspor
fyrirtækja á snjallan hátt
Klappir er hug-
búnaðarfyrir-
tæki sem þróar
og selur snjallar
umhverfislausnir
sem gera við-
skiptavinum þess
kleift að minnka
úrgang, draga
úr losun gróður-
húsalofttegunda
og tryggja lög-
fylgni við um-
hverfislöggjöf.
Sigrún
Hildur Jóns-
dóttir er einn
af stofnendum
Klappa. Hún
segir að það
sé hagkvæm
ákvörðun hjá
fyrirtækjum að
huga betur að
umhverfinu.
MYND/STEFÁN
Klappir þjónusta yfir 200 viðskiptavini á Íslandi, meðal annars útgerðir.
Dagleg starfsemi Klappa fer fram í Austurstrætinu í miðborg Reykjavíkur.
16 KYNNINGARBLAÐ 7 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
F
-D
D
C
8
2
2
7
F
-D
C
8
C
2
2
7
F
-D
B
5
0
2
2
7
F
-D
A
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K