Fréttablaðið - 07.03.2019, Page 58
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Nemendur Kvennó eru að tínast á æf ingu í Iðnó eftir skóla þegar þetta viðtal fer fram. Rakel Svavarsdóttir, formaður leikfélagsins
Fúríu, er mætt áður og búin að hengja
upp leiktjöld ásamt fleirum. „Við erum
að setja upp söngleikinn Srekk í fyrsta
sinn hér á Íslandi og erum stolt af því,“
segir Rakel. „Það er sýning fyrir alla fjöl-
skylduna.“ Hún segir Agnesi Wild leik-
stjóra eiga hugmyndina. „Agnes vann
með okkur í fyrra og við fengum hana
aftur því hún er æðisleg. Hún hefur séð
Srekk erlendis, hann hefur verið sýndur
á Broadway og West-End. Fyrst vorum
við í stjórn leikfélagsins svolítið efins
út af krefjandi búningum og leikmynd
en svo fengum við flinkan hönnuð, Evu
Björg Harðardóttur, sem hjálpaði okkur
með þann þátt og Aníta Rós Þorsteins-
dóttir er höfundur dansa.“
Sviðið í Iðnó má ekki minna vera
þegar svona fjölmenn sýning er annars
vegar en nemendur Kvennó kunna á
það því þeir hafa sýnt þar í nokkur ár,
að sögn Rakelar. „Í fáeinum atriðum er
allur leikhópurinn á sviðinu í einu, sam-
tals 29 manns,“ segir hún brosandi. En
eru góðir söngvarar í skólanum? „Já, það
er fullt af vönum söngvurum og svo
er fjöldi fólks í sýningunni sem hafði
aldrei sungið áður en við erum með frá-
bæra söngstýru, Sigrúnu Harðardóttur,
hún er góð að kenna fólki og því verður
þetta mjög flott.“
Margir koma líka að sýningunni
sem ekki fara á svið, Rakel bendir á að
unnið sé að því að prenta leikskrá og
plaköt sem eigi að fara að dreifa. En um
hvað snýst söngleikurinn í stuttu máli?
„Hann fjallar um tröllkarlinn Srekk sem
vill búa einn í sinni mýri, langt frá ys
og félagslífi en Farquad lávarður hatar
ævintýrapersónur ríkisins og sendir
þær allar út í mýrina. Tröllið verður
bandbrjálað en samþykkir að bjarga
prinsessunni Fíónu úr turni eldspúandi
dreka, og vinna með því mýrina aftur.
Þetta er langt ferðalag og hann lærir
margt á leiðinni, til dæmis um vinátt-
una … já, svo er bara að bíða og sjá.“
gun@frettabladid.is
Ævintýrasöngleikur í Iðnó
Það verður líflegt á sviðinu í Iðnó í kvöld þegar söngleikurinn Srekk verður sýndur
þar af leikfélagi Kvennaskólans, Fúríu. Þar er um frumsýningu á Íslandi að ræða.
Rakel, formaður Fúríu, og Agnes Wild leikstjóri hlakka mikið til frumsýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Farquad lávarður liggur makindalega í kastala sínum og hermenn hans standa vörð.
það er fullt af vönum
söngvurum og svo er
fjöldi fólks í sýningunni sem
hafði aldrei sungið áður en við
erum með frábæra söngstýru,
Sigrúnu Harðardóttur, hún er
góð að kenna fólki og því verður
þetta mjög flott.
Ástkær bróðir okkar,
Sigurður Magni
Sveinbjörnsson
Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði,
lést á heimili sínu 26. febrúar. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum
auðsýnda samúð og hlýhug.
Systkini hins látna og fjölskyldur.
Ástkær móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Veronika Pétursdóttir
lést 13. febrúar. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til
starfsfólks Sólteigs Hrafnistu í Reykjavík
fyrir góða umönnun.
Kristín Ólafsdóttir Sigurður Guðjónsson
Pétur Ólafsson
Bjarki H. Ólafsson Kristín Helga Friðriksdóttir
Sigþrúður Ólafsdóttir Björn J. Hannesson
Guðrún Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Heittelskaður og elskandi
eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sigurður Pálsson
dr. og fyrrv. sóknarprestur
í Hallgrímskirkju,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
2. mars. Hann verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 12. mars klukkan 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjálparstarf
kirkjunnar og Unicef.
Jóhanna G. Möller
Margrét Kristín Sigurðardóttir Børge J. Wigum
Embla Gabríela Wigum og Ágúst Örn Wigum
Haukur Þór Búason Kolbrún Mist Pálsdóttir
Birgir Hrafn Búason Sæunn Ýr Marinósdóttir
Daníel Leó og Atli Hrafn
Arnar Már Búason og Viktor Örn
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Lydía Rósa
Sigurlaugsdóttir
Ísafirði,
lést fimmtudaginn 28. febrúar sl. Útför
hennar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 9. mars kl. 14. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á slysavarnadeildina Iðunni, Ísafirði.
Albert Óskarsson Sigfríður Hallgrímsdóttir
Óskar Ágúst og Arna Sigríður
Lydía Ósk Óskarsd. Kristján M. Ólafsson
Lydía Hrönn og Iðunn Rún
Hanna Rósa, Engilráð Ósk og Eydís Eva Einarsdætur
og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir
og amma,
Sigrún Edda Hringsdóttir
Dalsbrún 16, Hveragerði,
sem lést á sjúkrahúsi á Spáni
23. febrúar síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Guðríðarkirkju, Grafarholti,
þriðjudaginn 12. mars klukkan 13.00.
Hafsteinn Jónsson
Sigrún Hafsteinsdóttir Guðmundur Andri Bergmann
María Hafsteinsdóttir Björn Ingimundarson
Hermann Hafsteinsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og bróður,
Ólafs Hákonar
Guðmundssonar
Grashaga 20.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á lyflækningadeild
HSU fyrir einstaka umönnun og umhyggju.
Jónína Magnúsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn,
systur hins látna og fjölskyldur.
7 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
7
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
F
-A
C
6
8
2
2
7
F
-A
B
2
C
2
2
7
F
-A
9
F
0
2
2
7
F
-A
8
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
6
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K