Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 2
Venjið ykkur við verkföll
Sjö hundruð hótelstarfsmenn lögðu niður störf í gær og héldu út á götur í
kröfugöngu í Reykjavík. Lauslega þýtt segir á þessum athyglisverða borða:
Við erum hér, við erum í verkfalli. Sættið ykkur við það. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNMÁL Þórunn Egilsdóttir,
þingmaður Framsóknar, hefur
greinst með brjóstakrabbamein
og víkur af þingi til að takast á við
veikindin. „Það er þess eðlis að ég
þarf að fara í harða meðferð gegn
því.“
Hún segist hafa fengið stórt verk-
efni til að takast á við í lífinu og
ætlar að einhenda sér í verkið af
öllum þunga. „Ég hef aldrei farið í
baráttu til að tapa og hyggst ekki
byrja á því núna. Bjartsýn, einbeitt,
ákveðin og umvafin mínu fólki ætla
ég að takast á við verkefnið.“
Þórunn er formaður þingflokks
Framsóknar. Hún hefur setið á þingi
frá árinu 2013. Willum Þór Þórsson
verður formaður þingflokks Fram-
sóknarflokksins. – bg
Þórunn víkur
af þingi vegna
krabbameins
Þórunn Egils-
dóttir alþingis-
maður.
595 1000
Jóga í Andalúsíu
með Auði Bjarnadóttur
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
Verð frá kr.
185.995
9. júní í 7 nætur
Fleiri myndir frá verkfallinu er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
HEILBRIGÐISMÁL Reglulega er Hall-
dóra Mogensen, þingmaður Pírata
og formaður velferðarnefndar,
spurð hvort hún sé á móti bólusetn-
ingum við sjúkdómum. Ástæðan
er ein af fyrstu ræðum hennar úr
pontu þingsins. Halldóra hafnar því
að hún sé andvíg bólusetningum
en telur ekki rétt að skikka fólk til
þeirra.
Undanfarna daga hefur verið
mikil umræða um bólusetningar
og mikilvægi þeirra eftir að fjögur
tilfelli af mislingum greindust hér
á landi. Þá var fimmta smitið stað-
fest í gær. Á hluta heilsugæsla hefur
starfsfólk nánast verið í færibanda-
vinnu við bólusetningu. Sumum
finnst ekki nægilega langt gengið og
telja rétt að skikka fólk til að bólu-
setja börn sín.
Umrædd ræða Halldóru var sú
áttunda sem hún flutti í þingsal en
þá var hún varaþingmaður Pírata.
Umfjöllunarefnið voru viðbrögð
við frétt Stöðvar 2 þar sem rætt
var við móður sem bólusetti ekki
yngra barn sitt vegna gruns um
að eldra barn hefði brugðist illa
við bólusetningu. „Maður spyr: Af
hverju er ekki hægt að ræða bólu-
setningar á yfirvegaðan hátt eins og
hvert annað mál? Hvað er fólk svona
hrætt við?“ spurði Halldóra meðal
annars í ræðunni.
„Það hefur alltaf verið ríkt í mér
að stökkva til varnar viðkvæmustu
hópum samfélagsins sem komið
er fram við á óréttmætan hátt. Þá
skiptir litlu máli hvert málefnið
er. Þarna var kona í viðkvæmum
aðstæðum að lýsa reynslu sinni
og hún var kölluð ógeðfelldum
nöfnum vegna þess. Það var aðal-
lega það sem ég var að bregðast við,“
segir Halldóra.
Nefndarformaðurinn segist vilja
leggja sín lóð á vogarskálarnar til
að forða því að einhver umræðu-
efni verði tabú og að hömlur verði
settar á það hvað megi segja og hvað
ekki. Hættulegt sé ef mál fari í þann
farveg.
„Fólk hættir ekkert að tala um
aðrar hliðar en það verður jaðarsett
við það. Sú umræða færist í skugg-
ann og til verður hópur fólks sem
fær engin utanaðkomandi rök inn í
sína búbblu,“ segir Halldóra.
Af þeim sökum sé hún ekki
hlynnt því að bólusetningar verði
gerðar að einhvers konar skyldu.
„Ég er sammála sóttvarnalækni
um að slíkt gæti haft öfug áhrif.
Hluti sem þessa ber að tækla með
fræðslu.“ joli@frettabladid.is
Andvíg þvingunum en
ekki bólusetningum
Ein af fyrstu ræðum Halldóru Mogensen á þingi fjallaði um bólusetningar og
hafa margir staðið í þeirri trú að hún sé þeim andvíg. Hún segir það ekki rétt.
Var að verja rétt fólks til að tjá sig. Er á móti því að skylda fólk í bólusetningu.
Halldóra hefur verið þráspurð um skoðanir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Hluti sem þessa ber
að tækla með
fræðslu.
Halldóra Mogensen, þingmaður
Pírata og formaður velferðar-
nefndar
3-2
°C
31
°C
100
°C
3-5
°C
91
°C
Austlæg eða breytileg átt, víða
5-13 m/s. Víða él, einkum við
ströndina, en þurrt um landið
norðvestanvert. Dregur úr frosti.
SJÁ SÍÐU 46
VIÐSKIPTI Svafa Grönfeldt, stjórnar-
formaður MIT DesignX, viðskipta-
hraðals MIT-háskólans í Boston, var
kjörin ný í stjórn Icelandair Group
á aðalfundi félagsins sem fór fram
síðdegis í gær.
Svafa, sem starfaði áður sem
framkvæmdastjóri hjá Alvogen og
þar áður sem rektor Háskólans í
Reykjavík, situr jafnframt í stjórn
Össurar og þá var hún
fyrr í vikunni kjörin
í stjórn upplýs-
i ng at æk n i f y r i r-
tæk isins Or igo.
Hún kemur ný inn
í stjórn f lugfélags-
ins í stað Ásthildar
Margrétar Othars-
dóttur sem gaf
ekki kost á
sér. – kij
Svafa í stjórn
Icelandair
Svafa
Grön-
feldt.
BRUNI Tilkynnt var um eld í Selja-
skóla í Breiðholti rétt fyrir klukkan
átta í gærkvöld. Að sögn fulltrúa
slökkviliðs var eldurinn töluverður,
en kviknað hafði í þakverki skólans.
Í gærkvöldi lá ekkert fyrir um elds-
upptök en slökkvistarf gekk vel og
greiðlega gekk að ráða niðurlögum
eldsins.
Verið var að ganga úr skugga um
að engar glæður væru eftir í bygg-
ingunni þegar Fréttablaðið fór í
prentun.
Að minnsta kosti einn slökkvi-
bíll og annar sjúkrabíll voru sendir
á vettvang. – jmt
Kviknaði í
Seljaskóla
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-0
4
5
C
2
2
8
7
-0
3
2
0
2
2
8
7
-0
1
E
4
2
2
8
7
-0
0
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K