Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 12

Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 12
NORÐUR-KÓREA Ríkismiðlar í ein- ræðisríkinu Norður-Kóreu fjöll- uðu í gær um hinn árangurslausa leiðtogafund sem Kim Jong-un einræðisherra og Donald Trump Bandaríkjaforseti áttu í Hanoi í síðustu viku. Vonir stóðu til þess að þeir myndu undirrita yfirlýsingu um kjarnorkuafvopnun Asíuríkisins en af því varð ekki þar sem Banda- ríkjamenn vildu ekki fallast á kröfu Norður-Kóreumanna um afléttingu viðskiptaþvingana. Samkvæmt suðurkóreskum greinendum eru þvinganirnar við það að knésetja hagkerfi ríkisins algjörlega. „Almenningur, bæði hér heima og utanlands, vonaðist til að þessi annar leiðtogafundur Alþýðulýð- veldisins og Bandaríkjanna í Hanoi bæri árangur en varð fyrir von- brigðum og kennir Bandaríkjunum um hinn árangurslausa leiðtoga- fund,“ sagði í dagblaðinu Rodong Sinmun. Dagblaðið sagði svo frá því að Jap- anar væru að reyna að reka fleyg á milli Norður-Kóreu og Bandaríkj- anna. „Einungis afturhaldssegg- irnir í Japan hafa tekið meinfýsna afstöðu í málinu og fagna árangurs- leysinu eins og um góðar fréttir hafi verið að ræða,“ skrifaði blaðamaður og hélt áfram: „Markmið Japana er, í örvænt- ingu þeirra, að spilla sambandi Norður-Kóreu og Bandaríkjanna vegna þess að þeir hafa verið skildir út undan í viðræðunum um frið á Kóreuskaga og í heimshlutanum. Þeir eru fyrirlitlegir, rétt eins og þeir sem verðskulda löðrung.“ Þá var vikið að hinum „ósvífna“ Shinzo Abe, forsætisráðherra Jap- ans. Hann sagður reyna á sama tíma að fá Norður-Kóreumenn til friðar- viðræðna við sig. „Japanar hafa framið of marga glæpi til þess að við getum tekist á við þá. Það hefst ekk- ert upp úr því að eiga í viðræðum við dverga sem hanga í skottinu á Bandaríkjamönnum.“ Japanar voru í þokkabót sagðir með „svört hjörtu“ og ættu að reiða miskabætur af hendi fyrir „fyrri glæpi og gefast upp á þeim draumi sínum að verða hernaðarrisi“. „Örlög hins yfirgefna Japans eru að bíða eftir því að ríkið heyri sög- unni til,“ sagði svo enn fremur. Þessi harðnandi afstaða einræðis- ríkisins birtist sömuleiðis í frétt um sameiginlegar svonefndar Dong Maeng hernaðaræfingar Suður-Kór- eu og Bandaríkjanna sem standa nú yfir, eftir að Bandaríkin tilkynntu um að æfingum sem kallaðar hafa verið Key Resolve og Foal Eagle hefði verið aflýst. „Þessar aðgerðir […] eru gróft brot gegn sameiginlegri yfirlýs- ingu Alþýðulýðveldisins og Banda- ríkjanna og yfirlýsingum suðurs og norðurs,“ sagði í Rodong Sinmun. thorgnyr@frettabladid.is Kenna Bandaríkjunum um og skamma Japana fyrir afskipti Frost í sambandið Hörð orðræða norðurkóreskra fjölmiðla nú er skýrt merki um það frost sem komið er í kjarnorkuafvopnunarviðræðurnar. Auk hins árangurslausa fundar er vert að taka fram að greint hefur verið frá því að Norður-Kórea byggi nú upp á ný eldflaugaskotpalla í Sohae, sem Trump sagði að ylli sér miklum vonbrigðum ef satt reyndist. Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði þó á mánu- dag að hann væri vongóður um að bandarísk sendinefnd gæti ferðast til Norður-Kóreu til frekari viðræðna á næstu vikum. Ekkert samkomu- lag um slíkt liggur þó fyrir að svo stöddu. Þótt raunverulegu samkomulagi um kjarnorkuafvopnun hafi ekki verið náð, og staðan virðist versna, má þó taka tillit til þess að ríkið hefur ekki gert neina kjarnorkutilraun svo vitað sé frá árinu 2017. Og eftir að hafa gert heilar sextán eldflaugatilraunir árið 2017 var engin gerð í fyrra og engin í ár enn sem komið er. Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, er væntanlega á sama máli og ríkismiðlarnir. NORDICPHOTOS/AFP Norðurkóreskir ríkis- fjölmiðlar segja að Bandaríkjunum sé almennt kennt um árangursleysi í leiðtoga- viðræðum. Segja Japana reyna að spilla viðræð- um. Þeir séu með svört hjörtu og eins og dverg- ar sem hanga í skottinu á Bandaríkjamönnum. Verð: 3.990.000 kr. Verð 5.990.000 kr. Verð: 6.990.000 kr. Sýningarbíll á staðnum Verð: 2.990.000 kr. 546-0088 | Fellsmúli 26 www.smartbilar.is 2016 Volvo XC90 T8 AWD Plug-in Hybrid Verð: 6.750.000 kr. Verð: 6.990.000 kr. 2017 BMW I3 ReX 2018 Volvo XC60 T8 AWD Plug-in Hybrid Glænýr 2019 Nissan Leaf 2017 Nissan Leaf Tekna ekinn 2.500 km Verð: 4.190.000 kr. 2019 Mitsubishi Outlander PHEV 2016 Porsche Cayenne S E-Hybrid Plug-in Hybrid 2018 Chrysler Pacifica Plug-in Hybrid Sýnangarbíll á staðnum Verð frá: 5.490.000 kr. Verð: 3.490.000 kr. Smartbílar - Allur réttur áskilinn +354 546 0088Fellsmúli 26, 108 Reykjavík smartbilar@smartbilar.is 2018 Volvo XC90 T8 PHEV Verð: 7.995.000 kr. 2018 Nissan Leaf Tekna PLUS 40KwH Verð: 3.895.000 kr. NÝR Opið laugardag 12-16 2016 BMW X5e Premium Package Plug-in Hybrid ALSÍR Tugir þúsunda Alsíringa söfn- uðust saman á götum úti, andspæn- is óeirðalögreglu, og héldu áfram fjöldamótmælum gegn heilsuveila forsetanum Abdelaziz Bouteflika. Mótmælin hafa staðið frá því að Boutef lika tilkynnti um að hann ætlaði að sækjast eftir endurkjöri í komandi kosningum. Hinn 82 ára gamli Boutef lika fékk heilablóðfall árið 2013, er nú á sjúkrahúsi í Sviss, og hefur lítið sést á meðal almennings. Rachid Nekkaz, annar forseta- frambjóðandi, var handtekinn á svissneska sjúkrahúsinu í gær fyrir að fara inn í bygginguna í leyfis- leysi. „Fjörutíu milljónir Alsíringa krefjast þess að fá að vita hvar for- seti ríkisins, herra Abdulaziz Bou- tef lika, er staddur,“ sagði Nekkaz við fjölmiðla. – þea Þúsundir mótmæltu Fjörutíu milljónir Alsíringa krefjast þess að fá að vita hvar forseti ríkisins, herra Abdulaziz Bouteflika, er staddur. Rachid Nekkaz forsetaframbjóðandi VENESÚELA Skólar voru enn lokaðir og vinnustaðir sömuleiðis í Venesú- ela í gær á öðrum degi umfangs- mikils rafmagnsleysis. Vandræðin hófust á fimmtudag og eru rakin til bilunar í stærsta vatnsorkuveri landsins. Ríkisstjórn Nicolas Maduro for- seta hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. Ofan á efnahags- hamfarirnar sem hafa skollið á ríkinu hefur þingið, sem Maduro álítur valdalaust, gert Juan Guaidó þingforseta að starfandi forseta landsins. Þótt fjölmörg ríki heims álíti Guaidó nú forseta landsins heldur Maduro enn völdum. Raf- magnsleysið er þó ekki til þess fallið að lægja öldurnar heima fyrir. – þea Rafmagnsleysi í Venesúela 9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 8 7 -2 6 E C 2 2 8 7 -2 5 B 0 2 2 8 7 -2 4 7 4 2 2 8 7 -2 3 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.