Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 26

Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 26
Dóttir minnist föður síns „Ofar öllu var faðir minn afar glaðlyndur og jákvæður maður. Hann var opinn, örlátur, skapandi og skemmti- legur. Hann elskaði að ferðast og að kynna sér menningu landa sem hann heimsótti. Hann var meðalmaður vexti, ljóshærður með leiftrandi blá augu; fallegur maður hið ytra sem innra. Faðir minn var útivistarmaður og innrætti öllum börnum sínum ást á íþróttum og nátt- úrunni. Við lærðum öll að skíða, synda og fara í útilegur frá barnsaldri. Ein af uppáhaldsminn- ingum mínum um föður minn var þegar við fórum ein í útilegu í Tofino, bara pabbi og ég sem var þá átta eða níu ára. Við vörðum helginni í að hjóla á stígum í skóginum, tjalda á langri sandströnd og ég fylgdist með pabba og vinum hans á brimbrettum á meðan ég lék mér með flugdreka og við hund. Fyrst og fremst var pabbi trúnaðarmaður minn og vinur, hann kenndi mér að meta lífið og fjölskylduna. 56 ára að aldri var ástríkur faðir tekinn frá okkur – alltof fljótt því það var enn svo mikið sem hann gat kennt okkur.“ Sarah Wagstaff Grant Wagstaff hafði verið ráðinn til að ferja Beaver-sjóflug-vél vestur um haf þar sem vinur hans Arn-grímur Jóhannsson var að selja hana. Grant hafði ferjað þessa sömu vél til Íslands árið 2008. Arngrímur f laug hins vegar vélinni fyrsta legginn sem átti að vera úr heimabæ hans Akureyri til Keflavíkur þaðan sem átti að fljúga vélinni úr landi og til Minneapolis í Bandaríkjunum. Vegna skýjafars náði Arngrímur ekki að f ljúga vélinni upp yfir Tröllaskaga í gegn um Öxnadal og endaði 45 mínútum eftir f lugtak með því að brotlenda í Barkárdal. Grant Wagstaff komst ekki út úr f lakinu og lést er eldur gaus upp. Síðar var meðal annars leitt í ljós að vélin var ofhlaðin og því þyngri en heimilt var. Hjá Útfararstofu Reykjavíkur, sem annaðist um lík Grants, starf- aði kona sem kom ekkjunni Roslyn Wagstaff í samband við lögmann hjá lögmannsstofunni Opus til að sjá um ýmsa pappírsvinnu hér á landi. Nokkrum mánuðum síðar, í febrúar 2016, barst ekkjunni til- kynning um að viðkomandi lög- maður, sem reyndar er stjúpdóttir konunnar á útfararstofunni, væri farinn í barneignarfrí. Við málinu hefði tekið annar lögmaður. Var þar um að ræða 25 ára konu sem útskrifast hafði sem lögfræðingur vorið áður. „Við vissum ekki þá að Arn- grímur hefði gert fjölda mistaka þennan dag,“ segir Sarah Wagstaff, elsta dóttir Grants Wagstaff. Hún gagnrýnir meðferð málsins hér- lendis harðlega. Sarah segir fjölskylduna hafa verið í gríðarlegu áfalli eftir slysið. Hún, móðir hennar og yngri bróðir og systir séu öll enn í sérfræðimeð- ferð til að glíma við afleiðingarnar. „Ég bjó þá í Vancouver en f lutti aftur til Victoria til að styðja fjöl- skylduna,“ segir Sarah. Hún hafi Hvernig gat þetta komið fyrir okkur? Sarah Wagstaff er dóttir Grants Wagstaff sem lést í flugslysi á Íslandi 2015. Hann var um borð í sjóflugvél sem flogið var af Arn- grími Jóhannssyni, kenndum við Atlanta. Sarah telur illa farið með fjölskylduna. Fjölskyldan heimsótti gröf föður Grants Wagstaff sumarið 2015, skömmu áður en hann lést. Hjónin Grant og Roslyn eru fyrir miðju. Sarah er föður sínum til hægri handar, Claire yst til hægri og Tyler með hatt. Sarah starfar að markaðsmálum í lífræna geiranum og vinnur að meistararitgerð í upplýsingamiðlun. Tyler er matreiðslumeistari. Claire er klifurkennari og í kennaranámi. Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is Wagstaff-krakkarnir með föður sínum þegar þau voru börn. 9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 1 1 2 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 8 7 -4 4 8 C 2 2 8 7 -4 3 5 0 2 2 8 7 -4 2 1 4 2 2 8 7 -4 0 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 1 2 s _ 8 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.