Fréttablaðið - 09.03.2019, Page 38
Ef hún væri alvöru
kona væri brjóst-
málið nánast metri,
mittismál aðeins 46
sentimetrar og mjaðm-
irnar 84 sentimetrar og
hún væri um tveir metr-
ar á hæð.
Barbie á stórafmæli í dag. Hún er sextug og saga þessara litlu dúkku er ekkert minna
en stórkostleg. Um 98 prósent
heims þekkja Barbie sem er mun
meira en gengur og gerist. Barbie-
dúkkan hefur eðlilega þróast og
breyst á þessum 60 árum. Fyrsta
Barbie-dúkkan sem almenningur
sá var í KR-lituðum sundbol með
tagl. Hún hafði brjóst og karlmenn
sögðu Ruth Handler, stofnanda
Mattel, strax í byrjun að svona
dúkka myndi aldrei seljast. Konur
og börn tóku dúkkunni þó fagn-
andi og nánast óslitið síðan hefur
heimurinn leikið sér með Barbie.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Ruth Handler, upphafskona Barbie,
með eina dúkku. Handler var mikill
brautryðjandi. Hún lést árið 2002.
NORDICPHOTOS/GETTY
Barbie og Ken árið 1964. Trúlega á
leiðinni í veislu. NORDICPHOTOS/GETTY
Barbie er komin inn í nútímann.
NORDICPHOTOS/GETTY
Eitursvöl og ber aldurinn vel. Barbie fagnar sextíu ára afmæli sínu í dag en
hún var frumsýnd á þessum degi í New York árið 1959. NORDICPHOTOS/GETTY
Litla dúkkan
sem hefur fylgt
börnum í meira
en hálfa öld hefur
í nútímanum
fengið yfir sig skít
og skömm. Stutt
er síðan Barbie
kom með fjóra
nýja líkama, steig
inn í nútímann
að sumra mati,
en aðrir voru ekki
ánægðir, Barbie
væri orðin feit.
Sigurgangan hefur þó verið
þyrnum stráð og ótrúlega margir
hafa látið Barbie-dúkkuna fara
í taugarnar á sér. Hún er jú með
óvenjulegasta vöxt sem fyrir-
finnst. Ef hún væri alvöru kona
væri brjóstmálið nánast metri,
mittismál aðeins 46 sentimetrar og
mjaðmirnar 84 sentimetrar og hún
væri um tveir metrar á hæð.
Þá hefur verið bent á að dúkkan
ýti undir anorexíu hjá ungum
stúlkum og reglulega er minnt á að
Barbie gaf út dúkku 1963 sem hélt á
umdeildri bók. Á forsíðu bókar-
innar stóð Hvernig á að grenn-
ast? og á bakhliðinni stóð EKKI
BORÐA með hástöfum. Frasarnir
hennar hafa einnig sætt gagnrýni.
Talandi Barbie sagði setningar eins
og: „Á ég einhvern tímann nóg af
fötum?“ „Ég elska að versla,“ og
„Stærðfræði er erfið!“
Mattel fór að hugsa dúkkuna
upp á nýtt enda höfðu sölutölur
farið niður á við.
Árið 2016 komu út fjórar nýjar
dúkkur sem fengu glimrandi
móttökur. Það var komið smá kjöt
utan á sveltandi líkamann en enn
var gagnrýnt. Nú var bent á að það
ætti ekki að gefa eftir varðandi
líkamann. Offita væri vandamál
en jákvæðar raddir voru yfirgnæf-
andi. Barbie steig inn í nútímann
með þessu skrefi. Flestir voru
sammála um það. Streymisveitan
Hulu fylgdi hönnunarliðinu eftir
þennan tíma og gerði myndina
Tiny Shoulders: Rethinking Barbie
sem hægt er að finna á veitunni.
Veitir myndin innsýn í hinn
magnaða heim Barbie.
Þrátt fyrir að vera orðinn sextug
er Barbie trúlega rétt að byrja
sinn feril. Hún mun væntanlega
fagna stórafmælinu á heimili sínu
í Malibu með Ken og vinkonum, fá
sér kökusneið og hlakka til fram-
tíðarinnar.
Barbie er sextug í dag
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
8
7
-7
A
D
C
2
2
8
7
-7
9
A
0
2
2
8
7
-7
8
6
4
2
2
8
7
-7
7
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K