Fréttablaðið - 09.03.2019, Qupperneq 78
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Ég er ekki enn orðinn alvöru pabbi en fer að dæla þessu út. Mig langar að eignast tíu
krakka og helst eiga litla púka um
allan heim, kannski einn Gyðing
sem er góður í stærðfræði, Rússa
sem er framúrskarandi í ballett og
Íslending í Sigurrósar-lopamussu
sem dæmi. Það væri gaman að
geta teflt fram einni snargeðveikri
Benetton-fjölskyldu,“ segir Erpur
og skellihlær.
„En ég er náttúrlega rapppabb-
inn; pabbi íslensks rapps. Papa don
Blaz er með pabbahelgi. Bróðir
minn Sesar A er svo rappafinn og
í kvöld verður með mér grimmur
sjóbissnessafi, sjálfur Raggi
Bjarna,“ segir Erpur sem kemur
reglulega fram með Ragga.
„Við tökum iðulega „Allir eru að
fá sér“ og ég fæ mér alltaf fullt en
Raggi er alltaf í sínum sykurskerta
Sítrónu-Svala og búinn að vera í
kókómjólkinni í áratugi. Ég vissi af
Ragga því afi minn var dyravörður
og dansstjóri í gamla Alþýðu-
húsinu í Iðnó, þar sem Raggi
spilaði meðal annars á trommur
og afi hékk líka mikið með Hauk
Morthens og fleiri goðsögnum. Af
Ragga hef ég aðallega lært að vera
afslappaður því það er sama hvað
hann virðist utangátta áður en
hann stígur á svið; hann gerir allt
tipp topp þegar hann er kominn
á sviðið og er fagmaður fram í
fingurgóma.“
Skrautlegur lífsstíll
Yrkisefni Erps eru ekki alltaf á
barnamáli.
„En ég get ekki tekið á mig að
hafa slæm áhrif á unga hlustendur.
Ég er listamaður og lifi samkvæmt
því að verða betri manneskja með
hverjum deginum sem líður. Ég
get hins vegar ekki sleppt því að
yrkja um það hvernig líf mitt hefur
verið og er, það gera listamenn og
ekki þeirra hlutverk að ritskoða
sjálfa sig. Fólk verður að meta það
sjálft hvort Michael Jackson hafi
verið betri fyrirmynd en þeir sem
eru með allt uppi á borði, eins og
ég sem virðist kannski grófari, eða
presturinn sem virðist heilagastur
af öllum er að gera mun verri hluti
í kapellunni. Listamenn sem opna
sig og virðast ekki vera til fyrir-
myndar eru í langflestum tilfellum
heilbrigðari en þeir sem fordæma
mest og þykjast góðar fyrir-
myndir,“ segir Erpur sem yrkir
gjarnan um eigin lífsstíl í sínum
textasmíðum.
„Lífsstíll íslenskra rappara, sam-
kvæmt yrkisefninu, er ekki alltaf
sannur. Sjálfur bulla ég aldrei í
mínum textum en það eru margir
að vakna á Arnarnesinu þar sem
mamma þeirra matar þá með
silfurskeið á meðan pabbi þeirra
er að einkavæða bankana og borga
tryggingar af Porsche-bílnum sem
þeir gáfu stuttbuxnaunganum í
fermingargjöf. Það eru pulsur sem
ýmist ljúga eða eru fæddir silfur-
skeiðarskrattar og hafa aldrei dýft
tánni í vatn til að vinna sér inn
fyrir lifibrauðinu. Ef ég segist hafa
farið í 36 tíma „blackout“ gerði ég
það í alvörunni, en ég rappa líka
um pólitík og fleira. Lífsstíll minn
er þó vissulega skrautlegur, enda
er ég fjörfiskur og mikill villigrís.
Þannig hefur það alltaf verið og
þannig væri ég líka þótt ég ynni
við að búa um hótelrúm í Ármúl-
anum.“
Kúbuvindill og hlaupskepnur
Þegar Erpur á frí á laugardags-
kvöldi þykir honum gott að hafa
það náðugt heima.
„Þá fæ ég mér stóran Kúbuvindil,
sker niður ávöxt eða poppa og
maula kannski hlaupskepnur yfir
franskri mynd sem gerist í Mar-
seille eða ítölskum glæpaþáttum
sem eru í uppáhaldi,“ segir Erpur
og hlakkar mikið til pabba-
kvöldsins sem hann stendur fyrir á
Bryggjunni Brugghúsi í kvöld.
Strákarnir sem koma fram
með guðföður rappsins eru Raggi
Bjarna og ferskverjarnir Sdóri,
Chase og NVTVN, DJ Balatron,
Blaffi BlackOut og KrisH.
„Tilgangur lífsins er að upplifa
sem mest, þannig öðlast maður
viskuna. Líka að hegða sér. Það
skilar sér eins og hvert annað
karma. Að vera góður við alla sem
eru góðir við þig og segja ræpunum
að fukka sér, en maður á almennt
að vera almennilegur við alla.“
Fylgstu með skrautlegum lífsstíl
Erps á Snapchat undir Babarinn og
á Instagram undir Slakibabarinn.
Lengri útgáfa af viðtalinu við
Erp er á frettabladid.is
Ég er fjörfiskur og villigrís
Það er pabbahelgi hjá rapppabbanum Erpi Eyvindarsyni í kvöld. Hann skálar í sykurskertum
sítrónusvala við Ragga Bjarna og segir lífsstíl sinn skrautlegan eins og sannir textar hans segja frá.
Erpur, eða Blaz Roca, er ekki enn pabbi en þó rapppabbi. MYND/ANTON BRINK
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-6
2
2
C
2
2
8
7
-6
0
F
0
2
2
8
7
-5
F
B
4
2
2
8
7
-5
E
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K