Fréttablaðið - 09.03.2019, Qupperneq 92
Hver ert þú? Ég er hermaður.
Af hverju? Af því mér finnst þeir
f lottir.
Ertu að fara í stríð? Nei, ég hef bara
vopn með mér til vonar og vara.
Hver ert þú og hvað ertu að gera?
Ég er Mína mús og er að sníkja
nammi með vinkonu minni.
Nú, ég vissi ekki að Mína væri
nammigrís. Jú, hún er nammigrís
en hún gefur líka með sér.
Hver ert þú? Rautt M&M
Auðvitað. Ég sé það núna. Eru hin
systkini þín úr M&M pokanum
hérna líka? Nei, það held ég ekki.
Ég er sú eina hér eins og er.
Hver ert þú? Ég er Greg úr þátt-
unum Over the Garden Wall. Stjúp-
bróðir minn, Wirt, er hérna líka.
Við týndumst og erum að reyna að
finna leiðina aftur heim. Á meðan
söfnum við nammi.
Þið verðið náttúrlega að hafa eitt-
hvað að maula til að draga fram
lífið. Já, algerlega.
Hver ertu? Ég er trúður á öskudegi.
Hvað gerir þú sem trúður? Ja, trúð-
ar eru aðallega að skemmta fólki.
Ertu búinn að skemmta mörg-
um? Nei, ekki enn þá. Ég er mest í
nammi söfnun.
Hver ert þú? Ég er Havaíkarl.
Nú. Þú ert sem sagt frá Havaí.
Hvernig er að búa þar? Maður er
svolítið sólbrenndur.
Reykirðu vindla? Já, mjög mikið.
Svo er fullt af sælgæti þar.
Spurningar og svör
Hver ert þú?
Í Kringlunni voru margir kynlegir
karakterar síðasta miðvikudag.
1. Bakkabræður voru þrír. Einn
hét Gísli, annar Helgi, en hvað
hét sá þriðji?
2. Hvort er nafnið Salín nafn á konu
eða karli?
3. Í sögunni um litlu stúlkuna með
eldspýturnar eftir H.C. Andersen
segir frá fátækri stelpu sem selur
eldspýtur en salan er treg. Stelpan
þorir ekki heim vegna þess að þá
verður hún barin. Hvernig fer
fyrir stúlkunni í lok sögunnar?
4. Hvað segir kurteist og vel upp
alið fólk þegar einhver hnerrar?
5. Ísland er í Evrópu en í hvaða
heimsálfu er Indland?
6. Geta gíraffar þrifið á sér eyrun
með tungunni?
(Úr spilinu Spurt að leikslokum
fyrir 7-12 ára.)
Svör: 1. Eiríkur, 2. Konu (En Stalín er nafn á frægum karli), 3. Hún deyr (frýs í hel
í vetrarkuldanum.), 4. Guð hjálpi þér. (Það eru hins vegar ekki til neinar reglur
um hvað á að segja þegar einhver prumpar.), 5. Asíu, 6. Já, og fara létt með það.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Eldspýtnaþraut!“ hrópaði
Lísaloppa. „Mér finnst
þær svo skemmtilegar.“
Kata leit óhýru auga á
Róbert og sagði með
þjósti. „Jæja Róbert,
ert þú ekki snillingur í
eldspýtnaþrautum eins
og öllu öðru.“ Róbert
snéri upp á sig og setti
upp snúð. „Ég leggst
ekki svo lágt að reyna
að leysa svona barnalegar
þrautir.“ Kata glotti. „Við
Lísaloppa leysum hana
þá bara í huganum og
þegar við erum búnar að
því, mátt þú segja okkur
lausnina,“ sagði hún
ísmeygilega. “Ertu ekki
sammála Lísaloppa?“ „Jú,
jú,“ sagði Lísaloppa annars
hugar, því hún var að lesa
leiðbeiningarnar fyrir
þrautina.
„Leiðbeiningarnar segja,“
sagði Lísaloppa, „færðu til
þrjár eldspýtur þannig að
fiskurinn fari að synda í
hina áttina.“
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
343
Getur þú
hjálpað þeim
að leysa þess
a
þraut?
?
?
?
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-3
0
C
C
2
2
8
7
-2
F
9
0
2
2
8
7
-2
E
5
4
2
2
8
7
-2
D
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K