Fréttablaðið - 09.03.2019, Blaðsíða 96
ÉG ER YFIRLEITT
SJÁLFSÖRUGGUR. ÉG
ER AÐ GERA MITT OG VEIT UM
LEIÐ AÐ ÞAÐ ER EKKI ALLRA. ÉG
VEIT EINNIG AÐ ÞAÐ ER EKKI
FULLKOMIÐ.
Nú er vika í að Súper – þar sem k jöt snýst um fólk, nýtt leik r it ef tir Jón Gnarr verði frum-sýnt í Þjóðleikhús-
inu. „Leikritið gerist í súpermark-
aði sem heitir Súper. Þar hittist fólk
og ræðir sín hjartans mál. Þetta
er absúrd leikrit sem fjallar um
leitina að lífsfullnægju sem er svo
gjarnan í gegnum neyslu og einn-
ig um sjálfið, það hver við erum,“
segir Jón Gnarr.
Benedikt Erlingsson er leikstjóri
sýningarinnar. „Við Benni erum
náfrændur, æskuvinir, og höfum
unnið saman síðan við vorum í
Fóstbræðrum í gamla daga. Það
er þægilegt að vinna með fólki
sem maður skilur og skilur mann.
Maður þarf þá ekki að vera stöð-
ugt á fyrstu blaðsíðu að útskýra
allt. Mér finnst alltaf gott ef fólki
finnst það ekki þurfa að útskýra
grínið mitt. Um leið og farið er
að útskýra grín mitt þá deyr það.
Þetta veit Benni.
Ég skrifaði þetta verk þannig að
mögulegt væri að vinna það áfram
með leikstjóra, leikurum og tækni-
fólki. Það hefur gengið frábærlega.“
Skemmtilegra að vera lista-
maður en stjórnmálamaður
Ert þú sem listamaður einhvern
tímann kvíðinn yfir viðtökum eða
ertu mjög sjálfsöruggur í því sem
þú gerir?
„Ég er yfirleitt sjálfsöruggur. Ég
er að gera mitt og veit um leið að
það er ekki allra. Ég veit einnig að
það er ekki fullkomið. Gagnrýni
stuðar mig bara þegar misskilning-
ur er í gangi. Gagnrýnandi skrifaði
til dæmis að bækurnar mínar
væru greinilega undir áhrifum frá
hinum norska Karl Ove Knausgård
en ég skrifaði fyrstu bókina mína
löngu áður en hann skrifaði sína,
Min Kamp. Þannig að þessi full-
yrðing er bara ekki rétt.
Súper er annað leikritið sem ég
skrifa í fullri lengd fyrir svið. Hitt
var Hótel Volkswagen sem var
sýnt tíu sinnum eða svo. Auðvitað
fannst mér það leiðinlegt, ég hefði
viljað að f leiri hefðu séð það. Núna
er ég orðinn nokkuð ónæmur fyrir
gagnrýni, kannski er ég bara orð-
inn svona forhertur.“
Heldurðu að pólitíkin hafi hert þig
eitthvað?
„Já, hún gerði það. Ég var ekki
bara umdeildur sem grínisti eða
listamaður, ég var allt í einu orð-
inn umdeild persóna og fólk fór að
hafa miklar skoðanir á mér. Þegar
ég var borgarstjóri upplifði ég að
valdamiklu fólki í íslensku sam-
félagi stæði stuggur af mér og vildi
umfram allt þagga niður í mér. Mér
fannst það nokkuð óhuggulegt.
Það er miklu skemmtilegra að vera
listamaður en stjórnmálamaður.“
Allt er pólitík
Finnst þér þú sem listamaður eiga
eitthvert pólitískt erindi?
„Fyrir mér er allt pólitík, hún er
miklu umfangsmeiri en við gerum
okkur grein fyrir. Ég trúi á frjáls-
lyndi og jafnrétti allra en f lokks-
pólitík höfðar ekki til mín. Mér
finnst þessi vinstri-hægri pólitík
sem hefur fest sig í sessi hérna vera
mjög þreytandi. Hún snýst líka
kannski meira um fólk en málefni.
Ég hef oft sagt það og get endur-
tekið það núna að ég vil framgang
allra f lokka sem mestan. Ég vil að
flokkarnir komi góðu og frambæri-
legu fólki til áhrifa. Þannig að fólk
komi sitt úr hverri áttinni og geti
unnið saman fyrir alla. Það er lýð-
ræði.
Sá stjórnmálamaður sem ég er
hrifnastur af í augnablikinu er
Lilja Alfreðsdóttir. Ég hugsaði í
byrjun: Æ, Framsóknarkona, dóttir
Alfreðs … En svo hefur hún komið
mér verulega á óvart.“
Hvernig líst þér sem fyrrverandi
borgarstjóra á ástandið í Ráðhúsinu
þar sem eru tvær fylkingar sem geta
ekki náð samkomulagi um nokkurn
hlut? Varla er það góð pólitík.
„Þetta er ömurlegt og sama
ástand á líka við um Alþingi. Við
erum á margan hátt í vítahring sem
fólk á svo erfitt með að komast út úr
því ef það er ekki inni í hringnum þá
er það ekki með. Ég sé ekki hvernig
því verður breytt. Mér fannst ég og
Besti f lokkurinn koma með eitt-
hvað nýtt inn í íslenska pólitík, en
það er mjög þreytandi og mikil erf-
iðisvinna að halda einhverju nýju á
lofti því það vill það enginn. Maður
þarf stöðugt að vera að sanna sig og
er því alltaf á fyrstu blaðsíðu.
Núna finn ég mikið til með emb-
ættismönnum borgarinnar. Fólk
sem er faglegt og vammlaust þarf
að sitja undir dónaskap og ósann-
gjörnum ásökunum. Stjórnsýsla á
Íslandi er ekki góð, hún er léleg, og
ekki sambærileg við stjórnsýslu
eins og hún viðgengst erlendis, í
Bandaríkjunum og Evrópu. Fag-
legasta stjórnsýsla á Íslandi er hjá
Reykjavíkurborg og þar erum við
Kannski er ég bara orðinn svona forhertur
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Nýtt leikrit eftir
Jón Gnarr, Súper,
fer senn á fjalirnar
í Þjóðleikhúsinu.
Hann vinnur að
handriti að sjón-
varpsþáttum sem
eru byggðir á sögu
foreldra hans.
arionbanki.is Þægilegri bankaþjónusta Arion banka
Flestum Íslendingum
finnst Arion appið
besta bankaappið
Samkvæmt könnun MMR í nóvember 2018 sögðu 50,2% svarenda Arion appið
vera besta bankaappið, helmingi fleiri en nefndu öpp annarra banka.
Nú er Arion appið orðið enn betra.
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R48 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-0
9
4
C
2
2
8
7
-0
8
1
0
2
2
8
7
-0
6
D
4
2
2
8
7
-0
5
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K