Fréttablaðið - 09.03.2019, Síða 108
Lífið í
vikunni
03.03.19-
09.03.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ VERA
SVO MIKIÐ AÐ GERA
OG EKKERT UM FRÍ SVO VIÐ
ÁKVÁÐUM AÐ SKELLA OKKUR
NORÐUR EINA NÓTT, FARA Á
SKÍÐI OG SLAKA Á. MAÐUR
VERÐUR AÐ SINNA FJÖLSKYLD-
UNNI, HÚN ER ÞAÐ SEM SKIPTIR
MÁLI.
VILJA LJÁ ERLENDUM
KONUM RÖDD
Vinkonurnar Chanel Björk Sturlu-
dóttir og Elínborg Kolbeinsdóttir
stóðu þann 7. mars fyrir viðburð-
inum Hennar rödd á Kexi hosteli
í tilefni af alþjóðlega kvennadeg-
inum.
VIÐ ERUM HÉR TIL AÐ
BJARGA HÁTÍÐINNI
Ísleifur Þór-
hallsson,
hátíðarstjóri
Iceland
Airwaves,
segir
breytingar
og nýjungar
í farvatninu
þegar kemur að hátíðinni. Boðs-
miðar verða alfarið úr sögunni og
sérstakur sjóður settur á laggirnar
fyrir frambærilegustu íslensku
böndin.
SUÐAÐ SAMÞYKKI ER EKKI
SAMÞYKKI
Átakinu
Sjúk ást var
hrint af stað
í annað sinn
við athöfn í
Fjölbrauta-
skólanum
við Ármúla á
þriðjudaginn.
Sólborg Guð-
brandsdóttir
var ein þeirra
sem héldu
tölu þar.
EINHLEYPIR SAMAN Í
PÁSKAEGGJAGERÐ
Birni Inga
Halldórssyni
fannst vanta
vandaðan
stefnumóta-
vef hér á landi
þegar hann
stofnaði Makaleit.
is. Hann hefur staðið fyrir ýmsum
uppákomum en fram undan er
páskaeggjanámskeið.
Við náðum tali af Flóna þar sem hann var að lenda á Akureyri í sólarhringsferð með móður sinni. „Það er búið að vera svo
mikið að gera og ekkert um frí svo
við ákváðum að skella okkur norð-
ur eina nótt, fara á skíði og slaka á.
Maður verður að sinna fjölskyld-
unni, hún er það sem skiptir máli,“
segir Flóni og bætir við í léttum tón:
„Svo er nauðsynlegt að kúpla sig
reglulega frá vitleysingavinunum.
Það er heldur betur búið að vera
nóg að gera í tónleikahaldi en ég
er svo að reyna að vera í námi með
þessu,“ segir Flóni en hann stundar
hljóðtækninám hjá Stúdíó Sýrlandi
enda stefnan sett á að leggja tón-
listina alfarið fyrir sig. Önnur plata
hans, Floni 2, kom út á dögunum,
en hann segir hana hafa verið í
vinnslu allt frá því að sú fyrri kom
út í desember 2017. „Ég vann hana
með nokkrum tónlistarmönnum;
Arnari Inga, Magnúsi Jóhanni,
Auðuni Lútherssyni og f leira fólki.
Sjálfur geri ég yfirleitt grunnana,
en við vinnum stundum saman í
sessj ónum þar sem við köstum fram
hugmyndum og þannig var hluti
plötunnar unninn.“
Frábærar viðtökur
Segja má að platan Floni 2 hafi
fengið góðar viðtökur á veraldar-
vefnum en þegar við tölum saman
hefur henni verið streymt 1,6 millj-
ón sinnum og enn hækkar sú tala.
Flóni er hógværðin uppmáluð þegar
hann er spurður út í hvernig tilfinn-
ingin sé: „Mér líður bara venjulega.
Auðvitað er gaman að fólk taki vel í
tónlistina, en maður er ekki að pæla
í svona löguðu í þessu stöðuga sköp-
unarferli sem maður er í. Tölur eru
bara tölur og sæti bara sæti en tón-
listin talar fyrir sig og ef hún er góð
þá skilar það sér. Maður heldur haus
og heldur áfram.“
Flóni viðurkennir þó að það væri
leiðinlegt ef enginn myndi fylgjast
með. „Ég á skemmtilegan aðdá-
endahóp hér á landi, allt frá ungum
krökkum og upp í mömmur þeirra.“
Platan kom út í febrúar, hún var sett
á vefinn á miðnætti og klukkan
11 daginn eftir hafði henni verið
streymt 100 þúsund sinnum. „Þá
fattaði ég að þetta yrði stórt.“
Flóni hélt sérstaka útgáfutónleika
fyrir börn og unglinga og segir það
hafa verið frábærlega skemmti-
legt. „Eftir tónleikana gaf ég mér
svo tíma til að hitta krakkana,
gefa eiginhandaráritanir og spjalla
aðeins. Ég man það nefnilega sjálfur
hvað það gerði mikið fyrir mann að
fá svona sérstakt móment, að fá að
hitta tónlistarmann sem maður leit
upp til og tala við hann. Tíminn er
ekkert að hlaupa frá manni, ég er
rétt nýorðinn 21 árs og á nóg eftir.
Tónlist hefur alltaf verið mikill
partur af lífi mínu frá því ég var lít-
ill og ég sé ekki annað fyrir mér en
að hún verði áfram nær hjarta mér.
Mín tónlist eða annarra, það kemur
í ljós. Lífið tekur alls konar beygjur.“
Nýverið var tilkynnt að Flóni
yrði einn þeirra tónlistarmanna
sem troða upp á Þjóðhátíð í Eyjum
og segist hann spenntur fyrir því.
„Ég hef áður verið á kantinum hjá
öðrum tónlistarmönnum og spilað
á Húkkaraballinu en aldrei á stóra
sviðinu með mitt eigið atriði. Þetta
er líklega stærsti áhorfendahópur-
inn hér á landi sem er spennandi
en maður vonar bara að þetta fari
allt fram á friðsamlegan hátt og
allir verði í góðum gír,“ segir Flóni
og nefnir kynferðisofbeldismál sem
komið hafa upp í kringum hátíðina.
„Ég mun gera það sem ég get
til að hvetja gesti til að skemmta
sér fallega og hafa augun opin.
Það eru auðvitað f lestir mættir
til að skemmta sér og hundleiðin-
legt þegar einhverjir rasshausar
skemma fyrir.“
bjork@frettabladid.is
Það er nauðsynlegt að
kúpla sig reglulega út
Nýrri plötu Flóna , Floni 2, hefur verið streymt 1,6 milljón sinnum.
Tónlistarmaðurinn
Friðrik Jóhann Ró-
bertsson, eða Flóni,
er með þétta dag-
skrá þessa dagana
en gaf sér þó tíma
til að fara norður á
skíði með mömmu.
D Ý P R I O G B E T R I S V E F N
Með því einu að snerta takka getur þú stillt
rúmið í hvaða stöðu sem er og með öðrum
færð þú nudd. Saman hjálpa rúmið og dýnan
þér að ná há marks slökun og dýpri og betri
svefni. Svo vaknar þú endurnærð/ur og til
búin/n í átök dagsins.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT
STILLANLEGIR
DAGAR
Þ R Á Ð L AU S FJ A R S T Ý R I N G
LEDvasaljós
Klukka
Vekjaraklukka
Upp/niður höfðalag
Upp/niður fótasvæði
Rúm í flata stöðu
2 minni
Nudd
Bylgjunudd
S T I L L A N L E G U H E I L S U R Ú M I N F R Á C &J :
· Inndraganlegur botn
· Lyftigeta yfir 2 x 450 kg per botn
· Mótor þarfnast ekki viðhalds
· Tvíhert stálgrind undir botni
· Tveir nuddmótorar með tímarofa
· Þráðlaus fjarstýring með klukku,
vekjara og vasaljósi
· LED lýsing undir rúmi
· Hliðar og endastopparar svo dýnur
færist ekki í sundur
Tilboð 427.350 kr.
STILLANLEG RÚM – VERÐDÆMI
Með tveimur Serta Therapist heilsudýnum,
2 x 90 x 200 cm. Fullt verð: 569.800
Tilboð 288.675 kr.
Með Tempur Original eða Cloud heilsu dýnu,
90 x 200 cm. Fullt verð: 384.900
H E I L S U R Ú M
A F S L ÁT T U R
25%
KO M D U N Ú N A !
S T I L L A N L E G I R D A G A R
9 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R60 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
7
-2
6
E
C
2
2
8
7
-2
5
B
0
2
2
8
7
-2
4
7
4
2
2
8
7
-2
3
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
8
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K