Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018 Þetta verður ekki hefðbundin áramótagrein. Þó snýst hún um að líta yfir farinn veg og vangaveltur um framtíðina. Við þessi áramót er við hæfi að fjalla um lengra tímabil en nýlið- ið ár og það næsta. Nýverið fögnuðum við því að 100 ár væru liðin frá því að Ísland varð full- valda ríki og skömmu áður voru liðin 100 ár frá lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Annars veg- ar minntumst við nýs upphafs sem lagði grunn að stórkostlegum framförum. Hins vegar minntumst við loka mikilla hörmunga. Hvor- ugt markaði þó endapunkt. Framfarasaga Ís- lands hefur ekki alltaf verið auðveld og lok stríðsins sem átti að enda öll stríð sáði um leið fræjum að enn meiri og mannskæðari átökum. Þessi aldarafmæli og áramót ber auk þess upp á tímum sem eru einstaklega áhugaverðir í stjórnmálasögu Vesturlanda. Áhugaverðir en um leið varhugaverðir. Það er því sérstakt til- efni til að líta til sögunnar og leitast við að læra af henni. Sjálfsmyndarstjórnmál Eitt af grundvallarviðmiðum frjálslyndra rétt- arríkja er að allir menn skuli vera jafnir fyrir lögum. Það má halda því fram að sú regla sé undirstaða alls hins, þar með talið almennra mannréttinda. Á undanförnum árum hafa margar þeirra grundvallarreglna sem þróast hafa í meira en 2000 ár og lagt grunninn að vestrænum lýð- ræðisríkjum átt undir högg að sækja. Þessi þróun er stundum eignuð svokölluðum póst- módernisma í heimspeki en stjórnmálin sem eru í senn afleiðing og ástæða þróunarinnar eru kölluð sjálfsmyndarstjórnmál (e. Identity politics). Í heimi sjálfsmyndarstjórnmálanna skiptir öllu máli hvaða hópum menn tilheyra, það hvað menn mega segja og gera veltur á því hvernig þeir eru skilgreindir. Mannréttindi og laga- legur réttur hvers og eins er jafnvel háður því hver á í hlut. Áður en hugtakið sjálfsmyndarstjórnmál varð til kallaði ég þetta „stimpilstjórnmál“ enda snúast þau að miklu leyti um að setja ákveðna stimpla á málefni og fólk og meta í framhaldinu allt út frá því hvaða stimpli hefur verið komið á viðkomandi. Ímyndarstjórnmál Aðra birtingarmynd þróunarinnar mætti kalla ímyndarstjórnmál. Stjórnmál sem snúast um ímynd stjórnmálamanna og flokka en ekki um þau málefni sem menn standa fyrir eða ná fram, þ.e. hin eiginlegu „stjórnmál“. Það sem menn boða eða gera verður aukaatriði. Allt snýst um þá ímyndina eða ,,stimpilinn“. Við þessar aðstæður hætta stjórnmálin að virka. Lýðræðið hættir að virka. Hugmyndin með lýðræði er sú að allir hafi jafnan rétt á að meta þær lausnir sem boðið er upp á fyrir sam- félagið og taki afstöðu til þeirra. Ef við trúum því að almenningur sé best til þess fallinn að ráða þróun eigin samfélags leið- ir það til þess að þeir sem boða og framkvæma lausnir sem virka fái fyrir vikið aukinn stuðn- ing en aðrir ekki. En þegar stjórnmálin snúast um ímynd fremur en málefni breytast þau í leikhús þar sem allt snýst um persónusköpun. Meginmarkmiðið verður þá jafnvel að koma höggi á persónu andstæðingsins fremur en að rökræða málefnin. Á meðan er kerfinu eft- irlátið að stjórna. Það verður jafnvel þægilegra fyrir stjórn- málamennina að láta aðra um ákvarðanirnar og vísa í að stefnan, frumvörpin og reglugerð- irnar séu ekki pólitískar ákvarðanir heldur af- leiðing af „faglegu ferli“. Í stað þess að fram- fylgja kosningaloforðum og stjórna einbeita menn sér þá að því að tala inn í ríkjandi tíð- aranda, nota réttu frasana og láta mynda sig við borðaklippingar og á fundum með útlend- ingum. Áður tókust menn hart á um málefni en gátu verið bestu vinir þess á milli. Það er erfiðara þegar pólitíkin gengur að miklu leyti út á per- sónuleg átök. Við þær aðstæður verður pólitík- in harðari, rætnari og neikvæðari. En verst er að um leið er valdið tekið af fólkinu sem á raunverulega að fara með það, kjósendum. Ekki nýtt Ekkert af því sem telst til ímyndarstjórnmála er nýtt. Fyrir 40 árum gerðu til dæmis bresku þættirnir ,,Já, ráðherra“ grín að mörgum þess- ara þátta. Hégómagirnd og hræðslu stjórn- málamannanna, kerfisræðinu, bjagaðri fram- setningu bresku götublaðanna o.s.frv. Munurinn er þó sá að áður voru þetta taldir gallar, neikvæðir þættir stjórnmála. Nú virðist það sem áður taldist til lasta vera orðið að markmiðum í sjálfu sér, jafnvel allsráðandi. Við það bætast svo sjálfsmyndarstjórn- málin, tilhneigingin til að líta ekki á fólk sem einstaklinga þar sem allir eiga að njóta sömu réttinda. Það er heldur ekki nýtt. Komm- únismi, og raunar flestar öfgahreyfingar stjórnmálasögunnar, hafa gengið út á að skil- greina fólk sem hluta hópa fremur en sem ein- staklinga. Stefna öfgahreyfinga gengur iðu- lega út á að flokka suma hópa sem fórnarlömb og veita þeim fyrir vikið réttindi umfram aðra en kúga hina. Þetta er alltaf sama sagan. Rússland 1917, Ítalía 1922, Þýskaland 1932 o.s.frv. o.s.frv. Brot á grundvallarreglum réttarríkisins, reglum sem tók þúsundir ára að móta, hafa alltaf verið réttlættar með því að það sé nauð- synlegt til að rétta hlut þeirra sem hallar á. Um þetta eru ótal dæmi á 20. öld og fram á þá 21. Venesúela var lengi mesta velmegunarríki Suður-Ameríku, það fjölgaði jafnt og þétt í millitekjuhópum og ungt fólk naut góðrar menntunar og fjölbreyttra tækifæra. Þegar Hugo Chávez tók við völdum lét hann sam- þykkja nýja stjórnarskrá til að rétta hlut þeirra sem hallaði á í samfélaginu. Eftir að stefnu Chavez og arftaka hans Nicolásar Mad- uro var framfylgt ríkir nú neyðarástand í Venesúela og landsmenn líða næringarskort. Eins og alltaf er það fólkið sem var verst sett fyrir sem farið hefur verst út úr hinu nýja stjórnarfari. Framfarir eru ekki sjálfgefnar Árangur liðinna alda var ekki sjálfgefinn og það er ekki sjálfgefið að hann varðveitist ef við berum ekki gæfu til að vernda það sem vel gefst og vinna að því að bæta hitt. Við lok átjándu aldar og upphaf þeirrar tutt- ugustu hafði fólk víða á Vesturlöndum upplifað ótrúlegt framfaraskeið. Það viðhorf var ríkjandi að heimurinn ætti aðeins eftir að verða betri, vísindin myndu leysa allan vanda, velmegun gæti ekki annað en aukist, heilbrigði og önnur lífsgæði myndu batna jafnt og þétt. Sérstök áhersla var á að bæta kjör hinna fá- tækari og réttindi einstaklinganna jukust stöð- ugt. Fáir efuðust um þau grundvallargildi sem reynst hefðu svo vel. Stríð tilheyrðu liðnum tímum. Tímum þegar samfélögin og maðurinn sjálfur voru frumstæðari. Slíkt þótti óhugsandi á þeim upplýstu framfaratímum sem þá ríktu. Við tók mesta hörmungastríð sem mann- kynið hafði upplifað. Við lok þess leituðust stjórnvöld á Vesturlöndum við að festa betur í sessi þau grundvallargildi sem best höfðu reynst. En bakslag gegn þeim grundvall- argildum leiddi svo til enn stærra stríðs og enn meiri hörmunga. Rétt eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar öðl- uðust Íslendingar fullveldi. Þann sjálfsákvörð- unarrétt gat þjóðin nýtt til að ná stórkostleg- um framförum ekki hvað síst vegna þess að tekist hafði að varðveita heildstætt samfélag með sameiginleg grundvallargildi. Á undanförnum árum höfum við séð að póli- tísk stefna og aðgerðir geta skipt sköpum. Ef við nýtum lýðræðið eins og til var ætlast og verjum réttarríkið, þau gildi sem hafa reynst okkur og öðrum löndum best, getum við vænst stórkostlegra framfara fyrir alla landsmenn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Viðsjárverð þróun á áhugaverðum tímum Ef við nýtum lýðræðið eins og til var ætlast og verjum réttarríkið, þau gildi sem hafa reynst okkur og öðrum löndum best, getum við vænst stórkostlegra framfara fyrir alla landsmenn. SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON, FORMAÐUR MIÐFLOKKSINS ’’
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.