Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018 Í myndskeiði sem gekk um félagsmiðla 2018 sést Venus Williams 14 ára gömul segja John McKenzie, fréttamanni ABC, hvað hún sé viss um að hún geti sigrað and- stæðing á tennisvellinum. „Ég veit að ég get unnið hana,“ segir Williams við McKenzie með bros á vör. „Ég er mjög sjálfsörugg.“ McKenzie virðist hissa á svarinu. „Þér fer svo létt að segja þetta,“ segir hann við hana. „Hvers vegna?“ „Vegna þess að ég trúi því,“ svarar Willi- ams. Þessi sjálfsvissa hefur knúið Williams alla hennar ævi. Sjálfsöryggi hefur veitt henni kraft til að drottna yfir atvinnutenn- is, það var lykillinn að því að hún var skráð efst á heimslista kventennisleikara í heim- inum. En persónuleg valdefling hefur einn- ig verið grundvallaratriði í viðleitni hennar til að auka jafnrétti kynjanna líkt og þegar hún leiddi með góðum árangri opinbera herferð til að krefjast þess að Wimbledon greiddi konum sömu verðlaunaupphæð og körlum. (Þegar Williams vann fjórða Wimbledontitilinn sinn 2007 varð hún fyrsta konan til að vinna nákvæmlega sömu upphæð og meistari karla, Roger Federer, 1,4 milljónir dollara (173 milljónir króna).) Sjálfstraust hefur líka verið lykilþáttur í umsvifum Williams í viðskiptalífinu á borð við tískulínuna EleVen og innanhúss- hönnunarfyrirtækið V Starr Interiors. Það hefur verið kjarninn í flestu því sem hún hefur afrekað og hún telur að sjálfstraust sé hæfileiki sem hægt sé að kenna og vinna stöðugt í. „Mér finnst að ég eigi árangur minn að þakka trú minni á sjálfa mig,“ sagði hún í samtali við Tímamót, „og hefur fundist að sjálfsöryggi sé hægt að læra og þróa. Satt að segja vinn ég í sjálfstraustinu á hverjum degi, rétt eins og að fara í ræktina eða æfa mig á tennisvellinum.“ Með þetta í huga spurðum við Williams um uppskriftina að því að þróa og halda við sjálfsöryggi, sérstaklega fyrir konur. „Staðreyndin er sú að rétt eins og þú getur þjálfað líkamann er hægt að þjálfa hugann í að trúa á eigin virði.“ – Armando Arrieta Hér eru grundvallarreglurnar þrjár með orðum Venus Williams. 1 Heiðarleiki gagnvart eigin tilfinningum.Þegar eitthvað fer ekki eins og ég vil að það fari spyr ég sjálfa mig einfaldrar en mik- ilvægrar spurningar. Hvers vegna? Mér finnst það besta leiðin til að komast að rót vandans. Þegar þú vinnur að markmiðum þínum þarf að hafa í huga að þú þarft að vera heiðarleg gagnvart tilfinningum þínum. Frekar en að reyna að breiða yfir efasemdir sem þú kannt að hafa, gættu þess þá að horfast í augu við það þegar þú ert óviss um sjálfa þig. Minntu þig síðan á að þótt það kunni að vera þannig að þú finnir ekki til sjálfstrausts þessa stundina hefur þú skuldbundið þig markmiðum þínum, skuldbundið þig til að leggja þitt af mörkum, skuldbundið þig til að taka erfiðar ákvarðanir. Hvað sem þú gerir, ekki taka auðveldu leið- ina – það veitir aðeins tímabundna ánægju. Hættu líka að bera þig saman við aðra. Að halda að öðrum gangi betur vegna þess að þeir séu klárari, sætari eða hærri en þú mun aðeins grafa undan eigin velgengni. Hafðu í huga hins vegar að það er gríðarlega hjálplegt að hafa einhvern annan að tala við, hvort sem það er þjálfari, kennari eða einhver sem þú berð virðingu fyrir, hefur náð árangri og lifir já- kvæðu lífi. Þegar þú ert heiðarleg um tilfinningar þínar sættirðu þig við að sjálfsefi er í lagi. Það er eðlilegt og mannlegt viðbragð. Lykillinn er að láta ekki stjórnast af tilfinningu óöryggis. Í leikjum segi ég alltaf við sjálfa mig að það sé í lagi að vera taugaóstyrk, en það sé ekki í lagi að sú taugaspenna hafi áhrif á leik minn. Ég hef oft fylgst með því þegar fólk í kring- um mig hefur tekið ákvarðanir sem voru greinilega misráðnar og síðan hef ég velt fyrir mér forviða: „Hvers vegna í ósköpunum gera þau svona nokkuð?“ Á þeim tíma virtust ákvarðanirnar án allrar skynsemi. En ég hef áttað mig á að þau byggðu ákvarðanir sínar á tilfinningum sem byggðust á sjálfsefa. Þegar þessar ákvarðanir leiddu til eftirsjárverðrar niðurstöðu undirstrikaði það aðeins hug- myndir þeirra um að þau væru ekki verðug og vítahringnum var haldið við. En svona þarf þetta ekki að vera. 2 Gerðu „kort“ af leiðinni sem þú ætlar aðfylgja til að ná markmiðum þínum. Þú átt skilið velgengni, hamingju og tæki- færi til að uppfylla drauma þína. Ef þér finnst allt erfitt reyndu þá að hafa eftirfarandi eftir: „Ég á allt það versta skilið í lífinu. Ég á skilið mistök og óhamingju.“ Hljómar það rétt? Vitaskuld ekki. Segðu þér það gagnstæða – og láttu skeika að sköpuðu. Rannsókn sem gerð var við ríkisháskólann í Ohio gefur til kynna að fólk sem getur séð fyr- ir sér að það nái markmiðum sínum sé líklegra til að gera það. Þegar þú getur séð þig fyrir þér þar sem þú hefur náð markmiðum þinum skaltu gera aðgerðaáætlun um hvernig eigi að komast þangað. Mundu að leikir vinnast eða tapast löngu áð- ur en þú stígur inn á völlinn. Eins fæst starf eða tapast áður en þú mætir í fyrsta viðtalið og launahækkanir fást eða er hafnað áður en þú talar við yfirmann þinn. Lykillinn er að hafa kortlagt leiðina að markinu áður en þú gengur inn um dyrnar. 3 Notaðu mistök þér í hag. Sjálfstraust er grunnurinn að ham- ingjuríku einkalífi í jafnvægi og það getur síð- an átt þátt í meiri árangri í starfi okkar. Ástæðan er sú að þegar við höfum sjálfstraust erum við kraftmikil og einblínum á framtíðina frekar en að slökkva bara elda og glíma við vandamál hversdagsins. Þó er það óhjákvæmilegur hluti lífsins að mistakast. Ég er alltaf fullkomlega heiðarleg við sjálfa mig þegar mér mistekst. Sú venja helgast af því að vera íþróttamaður. Í íþrótt- um er það að greina mistök einfalt mál: Ef þú getur ekki leiðrétt sjálfa þig muntu tapa. Fyrir mér þýða mistök einfaldlega að ég þarf að leggja harðar að mér. Það kemur aldr- ei til greina að gefast upp. Mistök gera þig sterkari, vísari og betri. Mín mestu mistök hafa alltaf verið lykilþáttur í minni mestu vel- gengni. Við þurfum öll að takast á við erfiðleika ein- hvern tímann í lífinu. En að taka ákvörðun sem byggist á lélegu sjálfsáliti er skammtíma- leikur sem leyfir okkur ekki að blómstra þegar til lengri tíma er litið og ná að nýta verðleika okkar til fulls. Eftir því sem við verðum hæfari í að taka ákvarðanir sem byggjast á sjálfs- trausti þeim mun meiri verður valdefling okk- ar við að leitast við að uppfylla drauma okkar. Fyrir mér er það hin sanna skilgreining ár- angurs. ©2018 The New York Times og Venus Williams. Venus Williams fylgist með ungum tennisleik- ara slá boltann í búðum fyrir unga leikmenn í Washington árið 2011. Jewel Samad/Agence France-Presse - Getty Images Leið til valdeflingar Vísindamenn gerðu könnun meðal nærri tvö þúsund bandarískra stúlkna sem hluta af skýrslu fyrir bókina The Confidence Code for Girls, sem kom út á þessu ári, og komust að þeirri niðurstöðu að sjálfstraust hrapar um í kringum 30% hjá stúlkum á aldursbilinu átta til 14 ára. Sambærilegt fall var ekki að sjá hjá drengjum. VENUS WILLIAMS er talin einn af bestu tennisleikurum heims, hún hef- ur unnið sjö titla í stórmótaröðinni í tennis og fjögur ólympíugull. Hún er framkvæmdastjóri V Starr Interiors og stofnandi tískulínunnar EleVen. „Í leikjum segi ég alltaf við sjálfa mig að það sé í lagi að vera taugaóstyrk, en það sé ekki í lagi að sú taugaspenna hafi áhrif á leik minn.“ LEIKIR VINNAST EÐA TAPAST LÖNGU ÁÐUR EN ÞÚ STÍGUR INN Á VÖLLINN ’’
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.