Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2018 Íslenskir knattspyrnuáhugamenn bíða með öndina í hálsinum eftir því að undankeppni Evr- ópumóts karla 2020 fari af stað í marsmánuði. Ísland mætir þá nágrannaþjóðunum Andorra og Frakklandi á útivöllum og glímir síðan við Tyrkland, Albaníu og Moldóvu en liðið spilar alla tíu leiki sína í undankeppninni á árinu 2019. Beðið er á milli vonar og ótta um hvernig ís- lenska liðinu muni vegna. Er ævintýrinu lokið? Er búið að skrifa sögu Íslands á stórmótunum í karlaflokki með þátttöku landsliðsins á EM í Frakklandi og HM í Rússlandi? Eða kemur út nýtt bindi? Efinn er skiljanlegur. Íslenska liðið stóð sig ágætlega í Rússlandi. Jafntefli við Argentínu þar sem Alfreð Finnbogason jafnaði metin í 1:1 og Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá Lionel Messi kom Íslandi enn og aftur á for- síður heimsblaðanna. Leikirnir við Nígeríu og Króatíu töpuðust en liðið átti von um sæti í 16- liða úrslitum fram á síðustu mínútu. Það var mál og mat manna að liðið hefði staðið sig vel í fimm hálfleikjum af sex en slæmur síðari hálfleikur gegn Nígeríu gert útslagið um að Ísland komst ekki áfram úr riðlakeppninni. Sem hefði verið magnað afrek. Síðan urðu þjálfaraskipti. Heimir Hall- grímsson kvaddi eftir hálft sjöunda ár sem að- stoðarþjálfari og síðan þjálfari. Arftaki hans er Svíinn Erik Hamrén sem fór beint með liðið í hörkuleiki í A-deild Þjóðadeildar UEFA. Þar var niðurstaðan fjórir tapleikir gegn Belgíu og Sviss, sem í sjálfu sér var ekkert óeðlilegt. Skellurinn í Sviss í fyrsta leiknum undir stjórn Eriks Hamréns var þó slæmur svo undan sveið. Frammistaða íslenska liðsins hefur byggst á gríðarsterkri liðsheild og því að hafa haldið nán- ast sama kjarna leikmanna í nokkur ár. Liðið hefur mátt illa við því að missa lykilmenn í meiðsli, hvað þá marga í einu eins og gerðist í haust. Síðan þarf endurnýjunin að eiga sér stað og þó lykilmenn liðsins séu ekki háaldraðir þá styttist smám saman þeirra líf sem fótboltamenn í fremstu röð. Framhaldið mun velta á því hversu vel gengur að fylla í skörðin þegar þau fara að myndast. Ekki síður á því hvort Hamrén takist að ná því sama út úr þessum hópi og Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck voru færir um. Horfur eru á því að Ísland verði á árinu 2019 með sama kjarna leikmanna og lék á EM í Frakklandi þremur árum áður, þannig að reynsluna mun í það minnsta ekki skorta. Ungir leikmenn eru byrjaðir að láta að sér kveða og þar eru mestar vonir bundnar við Arnór Sigurðsson og Albert Guðmundsson sem eru líklegir til að taka talsverðan þátt í komandi undankeppni. Þarf að viðhalda jarðtengingunni Þótt íslenska karlalandsliðið hafi flogið með him- inskautum á undanförnum árum og tekið þátt í lokakeppnum tveggja stórmóta þarf að gæta þess að viðhalda jarðtengingunni. Sumir vilja ekki telja tvo sigurleiki gegn Indónesíu í byrjun árs með þegar farið er yfir atburði ársins 2018. Þetta voru vissulega vináttuleikir gegn veikum andstæðingi og flestir fastamanna Íslands fjarri góðu gamni, ásamt því að andstæðingarnir þóttu standa sérkennilega að sínu liðsvali. En mót- herjinn var eitt af fjölmennustu ríkjum heims, sem er með landslið af svipuðum styrkleika og tveir væntanlegir andstæðingar Íslands í næstu undankeppni Evrópumótsins, Moldóva og An- dorra, og með íslenska liðinu spiluðu sjö leik- menn sem fóru á HM í Rússlandi. Alla mótherja og allar þjóðir ber að virða. Líka þá sem leika fyrir Íslands hönd hverju sinni. Ekki síst þar sem þetta voru einu sigurleikir íslenska liðsins á árinu 2018 sem fer í sögu- bækurnar sem eitt versta ár landsliðsins ef að- eins er horft á úrslit leikjanna. Gleymum því ekki að íslenska landsliðið var einu sinni á allt öðrum slóðum, og það liðu jafn- vel mörg ár á milli sigurleikja. Það var lengi vel eitt af fjórum til fimm lökustu landsliðum Evr- ópu og fékk einna helst vináttuleiki gegn áhugamannalandsliðum stóru þjóðanna, ef leikir við Norðurlandaþjóðirnar voru und- anskildir. Þá var Ísland í raun á „réttum“ stað, ef tekið er mið af höfðatölunni margumtöluðu. Það er ekkert sjálfsagt við það að Ísland sé í dag talið 37. sterkasta landslið heims, af 211 aðildarþjóðum FIFA, hvað þá að það sé númer 18 í þeirri röð eins og það var um tíma snemma á árinu 2018. Einni vítaspyrnu frá HM-umspili Kvennalandsliðið í fótbolta freistaði þess að komast á HM í fyrsta skipti og átti raunhæfa möguleika fram að síðasta leik í undankeppn- inni í haust. Því mistókst að sigra Tékka á Laugardalsvellinum og komst fyrir vikið ekki í umspil, enda þótt það endaði í öðru sæti í sín- um riðli. Söru Björk Gunnarsdóttur brást bogalistin af vítapunktinum á örlagastundu. Sara getur þó horft stolt til ársins 2018 en hún varð tvöfaldur meistari í Þýskalandi annað árið í röð og komst í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með Wolfsburg, eftir að hafa skorað afar mikilvæg mörk fyrir liðið í þeirra keppni. Sara náði með þessu lengra, sem lykilmaður í sínu félagsliði, en nokkur annar íslenskur knattspyrnumaður hefur gert. Bjartsýni eftir ráðningu Guðmundar Þegar Guðmundur Þ. Guðmundsson var kynnt- ur til leiks sem nýr þjálfari karlalandsliðs Ís- lands í handknattleik snemma í febrúar á þessu ári fór bjartsýnisbylgja um íslenska hand- boltaheiminn. Fáir íslenskir þjálfarar njóta jafn almennrar hylli meðal landsmanna og þessi lág- vaxni og eldfljóti fyrrverandi hornamaður lands- liðsins sem vann ólympíusilfur og Evrópubrons með landsliðinu árin 2008 og 2012, og er nú mættur til starfa í þriðja sinn. Hans markmið er að byggja upp á þremur árum landslið sem á ný getur haldið sér í hópi átta bestu liða heims. Til þessa hefur Guðmundur aðeins stýrt lið- inu í vináttuleikjum, sem og í umspilsleikj- unum gegn Litháen í júnímánuði þar sem liðið var ekki í teljandi vandræðum með að tryggja sér farseðlana á HM sem hefst í Þýskalandi og Danmörku eftir aðeins tíu daga. Margir telja sig hinsvegar sjá batamerki á leik liðsins frá því Guðmundur tók við því, með sitt alkunna skipulag og nákvæmni að leiðarljósi. Á sama tíma hefur orðið talsverð uppsveifla í handboltanum hér innanlands, í það minnsta hjá körlunum, og gæðin í úrvalsdeildinni hafa tvímælalaust aukist talsvert á undanförnum tveimur árum. Ný kynslóð ungra og bráð- efnilegra handboltamanna er smám saman að taka völdin í íslenska landsliðinu og útlit er fyr- ir að Íslendingum í sterkum félagsliðum í Evr- ópu muni fjölga á ný á næstunni. Kvennalandsliðið í handbolta er líka að rétta úr kútnum eftir nokkur mögur ár og markvissa uppbyggingu undir stjórn Axels Stefánssonar. Það er komið í umspil fyrir HM 2019 og mun leika gegn Spánverjum í sumarbyrjun um að komast þangað. Sara Björk Gunnarsdóttir hefur sópað að sér titlum með þýska stórliðinu Wolfsburg og lék með því úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu gegn Lyon í maímánuði 2018. Ljósmynd/Wolfsburg Alfreð Finnbogason jafnaði gegn Argentínu í fyrsta leik Íslands í lokakeppni heimsmeist- aramóts og íslenska liðið náði óvæntu jafntefli gegn einu sigursælasta landsliði heims. Morgunblaðið/Eggert Guðmundur Þórður Guðmundsson er tekinn við íslenska karlalandsliðinu í handbolta í þriðja sinn og hann er á leið með liðið í lokakeppni HM í München í janúar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reynsluna mun ekki skorta Karlalandsliðið í fótbolta er á leið í undankeppni EM 2020 með svipaðan mannskap og komst með því í lokakeppni EM og HM. Karlalandsliðið í handbolta er ungt og efnilegt og Guðmundur Þ. Guðmundsson ætlar að koma því í fremstu röð á ný VÍÐIR SIGURÐSSON er umsjónarmaður íþróttadeildar Morgunblaðsins og mbl.is, hefur starfað sem íþróttafréttamaður frá árinu 1981 og skrifað bækur árlega um íslenska- knattspyrnu. Framhaldið mun velta á því hversu vel gengur að fylla í skörðin þegar þau fara að myndast. Ekki síður á því hvort Hamrén takist að ná því sama út úr þessum hópi og Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck voru færir um. KEMST ÍSLAND AFTUR Á STÓRMÓT Í FÓTBOLTA? ’’
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.