Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Page 2
Ertu alltaf kölluð Ebba?
Já, ég er eiginlega alltaf kölluð Ebba, sjaldan Þuríður, nema
þegar ég er skömmuð. Fólk er alltaf mjög hissa á því að ég
heiti Þuríður Elín og býst við einhverri rosalega góðri
ástæðu. En konan sem ég er nefnd í höfuðið á, sem var besta
vinkona mömmu, hét Þuríður Elín og var kölluð Ebba. Ætli
foreldrar mínir hafi ekki bara ákveðið að halda í þá hefð.
Hvernig fer saman að vera leikkona og kennari?
Það fer mjög vel saman. Ég er mest í uppistandi eins og
er og vinnan er mest um kvöld og helgar sem
passar mjög vel. Svo koma oft upp uppá-
komur í vinnunni sem ég get notað í
uppistandinu. Þeim finnst til dæmis
mjög sérstakt hvað ég er svipuð
þeim að mörgu leyti. Bý hjá
mömmu og hún græjar stund-
um nesti fyrir mig. Alveg eins
og foreldar þeirra.
Hvað mun gerast á jóla
(uppi)stundinni?
Á jóla(uppi)stundinni verður mikil
hátíðarstemning. Ég ætla í mitt fínasta
púss, segja nokkra brandara sem flestir
eru glænýir og koma fólki í jólaskap með hlátri
og gleði.
Af hverju uppistand?
Ég fór alveg óvart í uppistand. Starfsfólkið á Kaffi
Laugalæk, þar sem ég hafði sýnt einleikinn minn,
vantaði skemmtiatriði í starfsmannapartí og eig-
andinn bað mig að vera með smá uppistand. Ég hafði
aldrei ætlað að verða uppistandari og gat eiginlega
ekki ímyndað mér neitt verra. Þetta er eins og að vera
með einhverja sjálfseyðingarhvöt … að fara upp á svið
og biðja fólk að hlæja að sér. Ég hef alltaf haft gaman af
því að segja fólki sögur og því er þetta form sem ég hef
mjög gaman af. En þetta verður að einhverri fíkn og maður
fær ekki nóg. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri.
Þjáistu af jólastressi?
Ótrúlegt en satt; þrátt fyrir að ég sé bæði með ofsa- og
heilsukvíða hefur jólastress aldrei hrjáð mig. Ég er allt-
af mjög róleg þegar kemur að jólunum. Mér finnst þau
bara falleg og notaleg.
Hver er uppáhaldsjólahefðin þín?
Mér finnst mjög skemmtilegt að eiga góðar stundir með
fjölskyldu og vinum. Ég og vinkona mín Gunnhildur,
sem ég er að skrifa með sjónvarpsþætti, höfum síðustu
ár farið út að borða á Þorláksmessu og fengið okkur kok-
teila en síðasta ár ákváðum við að lengja daginn með því
að fá okkur skötu í hádeginu, fara heim til hennar og
henda fötunum beint í þvott og skella okkur svo að gefa
kakó fyrir Rauða krossinn og fara síðan út að borða. Það
er orðin hefð hjá mér og nokkrum vinkonum mínum að
hittast á annan í jólum og horfa á Lemonade með Beyoncé,
núna verður það í þriðja sinn. Svo setjum við á pásu og förum í
djúpar samræður um þýðingu hvers lags og myndbands.
Morgunblaðið/Hari
ÞURÍÐUR ELÍN SIGURÐARDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Undanfarið hefur það æ meira runnið upp fyrir mér að ég og sonurminn, og eflaust krakkar af hans kynslóð sem nú fylla grunnskólalandsins, höfum ólíka sýn á aldur. Honum finnst mamma sín (sem
tekið skal fram að er ekki orðin fertug) einfaldlega tilheyra þeim hópi sem
hann kallar „gamalt fólk“. Lítið við því að gera víst, svona er bara lífið. Gam-
alt fólk gerir víst alls konar hallærislega hluti, til dæmis getur verið mjög
vandræðalegt að fara með því í Kringluna, ekki síst vegna hættu á því að það
taki upp á því að gera eitthvað vandræðalegt, eins og að knúsa afkvæmin,
sem á víst alls ekki að gera á opinberum vettvangi. Að gefa sig á tal við
ókunnugt fólk á förnum vegi er líka
eitthvað sem bara „gamalt fólk“ ger-
ir og fer mjög fyrir brjóstið á grunn-
skólanemanum. Ekki málið.
Fyrr á árinu var birt í þessu blaði
vegleg úttekt þar sem farið var ofan
í saumana á ólíku orðfæri kynslóð-
anna. Skoðuð voru orð sem krökkum
og unglingum þóttu í eina tíð hæfa til
að lýsa hlutum en þykja út úr korti
nú. Enginn er púkó lengur, það er
orð sem tilheyrir kynslóð foreldra
minna. Ekki heldur er mikið um það
að fólk segi „glætan, spætan“ lengur eins og tíðkaðist fyrir ekki svo löngu.
Ný kynslóð finnur sér nýtt orðfæri og ný orð til að lýsa umhverfi sínu, því
sem þau dást að og því sem fer fyrir brjóstið á þeim. Nú eru hlutir almennt
„geggjaðir“ falli þeir í kramið en annars „krípí“ ef þeir eru ekki að gera sig.
Ó-ending á ýmsum orðum eins og að segja „glæsó“ í staðinn fyrir glæsilegt
var afgreidd á dögunum sem „mjög næntís“ og mamma „gamla“ vinsamleg-
ast beðin um að láta af slíku tali. Að minnsta kosti láta það ekki heyrast mjög
víða, það gæti orðið vandræðalegt fyrir alla nærstadda.
En þegar ég var djúpt sokkin í vorkunnsemi minni yfir þeim örlögum að
vera talin gömul náði ég að rifja upp að mér þóttu foreldrar mínir ekki sér-
lega ungir þegar þeir voru á mínum aldri. Bara rígfullorðið fólk eiginlega
þegar þau voru rétt að detta í fertugt. Þá rann upp fyrir mér að þótt orðnotk-
un og orðaforði breytist með tímanum þá breytist afstaðan lítið. Fullorðið
fólk er yfirleitt miklu eldra í augum barna en í eigin huga. Börn hafa líka
gjarnan þann hátt að einfalda hlutina, og það er langeinfaldast að flokka fólk
sem ungt eða gamalt. Og það er engin skömm að því að lenda í síðari flokkn-
um. Það er víst alltaf hægt að vera ung í anda ef viljinn er fyrir hendi.
Morgunblaðið/Hari
Gamla fólkið
ungt í anda
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Nú eru hlutir almennt„geggjaðir“ falli þeir íkramið en annars „krípí“ef þeir eru ekki að gera sig.
Það er ekki sama hvernig er
talað í Kringlunni, börnin
geta orðið vandræðaleg.
Ragnheiður Gunnarsdóttir
Það var eitt sinn verið að gera grín
og mér var gefið fótanuddtæki.
SPURNING
DAGSINS
Hvað er
frumlegasta
gjöf sem þú
manst eftir?
Andrés Pétursson
Ég gaf systur minni stórt málverk.
Eydís Sigurðardóttir
Tveir litlir hænuungar. Og fiskar.
Torfi Þór Runólfsson
Ársbirgðir af svörtum
nýrnabaunum.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Hari
Það verður Jóla(uppi)stund með Ebbu
Sig. á Hard Rock Café laugardaginn 15.
desember klukkan 21. Nánar á tix.is.
Jólahefð með Beyoncé