Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.12.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.12. 2018
ÚTTEKT
I
ngólfur Sigurðsson knattspyrnumaður
upplýsti á dögunum að hann hefði
ákveðið að leggja skóna á hilluna 25 ára
að aldri. Ástæðan er sú að honum þykir
fortíðin vinna gegn honum en árið 2014
steig Ingólfur fram og viðurkenndi opin-
berlega, í viðtali við Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins, að hann hefði glímt við kvíðaröskun
frá unglingsaldri. Hann kveðst í pistli á Twit-
ter hafa lagt mikið á sig til að láta drauminn
um að leika knattspyrnu í efstu deild á Íslandi
rætast, innan vallar sem utan, og beðið um
tækifæri til að sýna sig og sanna en alls staðar
komið að luktum dyrum.
Út frá þessu máli má velta fyrir sér hvort
knattspyrnumenn sem glímt hafa eða glíma
við kvíðaröskun, þunglyndi eða andleg veikindi
af öðrum toga sitji almennt ekki við sama borð
og aðrir leikmenn hér á landi. Fá þeir ekki
sömu tækifæri til að láta ljós sitt skína á vell-
inum?
Orðsporið fylgir mönnum
„Almennt séð er það þannig að orðsporið fylgir
knattspyrnumönnum og íþróttamönnum yfir
höfuð. Það á ekki síst við í litlu samfélagi eins
og því sem við búum í,“ segir Viðar Hall-
dórsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Ís-
lands en hann hefur mikið fengist við íþróttir í
sínu fræðastarfi. „Þetta gildir auðvitað ekki
bara um andleg veikindi, heldur ýmislegt ann-
að líka, til dæmis ef leikmaður þykir vera lat-
ur, rekast illa í hópi og svo framvegis. Það er
einfaldlega erfiðara að fá tækifæri ef leik-
maður hefur af einhverjum ástæðum fengið
stimplun; er álitinn vera „vandræðagemsi“.
Þetta á svo sem við í stærra samhengi; fólk
sem glímir við andleg veikindi á almennt erf-
iðara með að fá vinnu en aðrir. Veikindin virð-
ast gera það óverðugra í augum vinnuveit-
enda. Það er gömul saga og ný.“
Fyrir liggur að afreksíþróttamenn þurfa að
búa yfir miklum andlegum styrk. Leiðin á
toppinn er löng og fólk þarf að leggja gríð-
arlega mikið á sig og oft og tíðum færa miklar
fórnir. Í hópíþróttum bætist við að aðrir þurfa
að stóla á mann. Þetta fær aukna vigt í knatt-
spyrnunni enda eru flestir sammála um að það
sé óvenjulega harður heimur. Samkeppnin er
gríðarleg og dragist menn af einhverjum
ástæðum aftur úr, til dæmis vegna veikinda
eða meiðsla, eru fjölmargir aðrir reiðubúnir að
taka sætið þeirra. Að sögn Viðars fylgir þessu
mikið álag sem auðvelt er að kikna undan.
Koma ekki út úr skápnum
„Það er erfitt að fullyrða um það, ég hef ekki
sett mig inn í mál Ingólfs sérstaklega,“ svarar
Viðar spurður hvort það hafi unnið gegn Ing-
ólfi Sigurðssyni að hann hafi tjáð sig op-
inberlega um veikindi sín. „Það gæti þó alveg
verið. Fyrir liggur til dæmis að samkyn-
hneigðir knattspyrnumenn koma ekki út úr
skápnum fyrr en ferillinn er búinn og sama
máli gegnir um andleg veikindi; menn hafa
forðast að ræða þau af ótta við að verða stimpl-
aðir. Sumir líta á veikindi af þessu tagi sem
veikleikamerki og hafi þau leitt til vandamála
hjá fyrri félögum getur verið á brattann að
sækja. Þarna komum við aftur að þessu með
orðsporið – það fylgir mönnum, hvort sem
þeim líkar það betur eða verr. Það getur verið
erfitt að skilja fortíðina við sig. Sumir leik-
menn eru ekki eftirsóttir vegna þess að þeir
hafa einhverja sögu á bakinu og standa fyrir
vikið ekki jafnfætis öðrum leikmönnum þegar
kemur að því að sanna sig og vinna traust sam-
herjanna og þjálfarans. Auðvelt er að tengja
þetta við kenningar í félagsfræðinni um fólk
sem verður fyrir smánun eða lendir í vanda-
málum af einhverju tagi.“
Viðar segir Gróu gömlu á Leiti einnig spila
þarna inn í; alltaf verði til fólk sem þrífist á
kjaftasögum um náungann og hafi ekki fyrir
því að sannreyna slíkar sögur.
Ingólfur átti stóran þátt í að opna um-
ræðuna um andleg veikindi í knattspyrnu hér
á landi og í kjölfarið stigu fleiri leikmenn fram,
sem rætt hafa um kvíða, þunglyndi og fleira.
„Þetta fólk er brautryðjendur,“ segir Viðar,
„og allir brautryðjendur fara á móti straumn-
um og ýta við ríkjandi ástandi. Höggva í stoð-
irnar. Oftar en ekki vinna þeir sigur að lokum
en eins og með allt slíkt starf þá tekur það
tíma. Það var gríðarlega mikilvægt að fá þetta
fram, leggja spilin á borðið. Umræðan er hins
vegar ennþá að slíta barnsskónum hér á landi
og ekki komin nægilega langt enda þótt við
stöndum betur að vígi en við gerðum fyrir
fimm árum. Það er ennþá margt sem við eigum
eftir að meðtaka og vinna úr. Það er kvíði og
andleg vandamál í íþróttum eins og annars
staðar í samfélaginu og löngu tímabært að tak-
ast á við þá staðreynd.“
Biður ekki um vorkunn
,,Aldrei nokkurn tímann mun ég biðja um vor-
kunn – en ég vona innilega að næsti leikmaður,
sem fær það verðuga verkefni að vera ekki
eins og allir hinir, fái tækifæri og lið sjái það
sem heillandi áskorun að ná því besta fram í
honum,“ segir Ingólfur í pistli sínum.
Að dómi Viðars er ekki ósennilegt að þessi
sýn verði að veruleika. „Þróunin á eftir að
verða hröð á næstu árum. Það er klárt mál. Í
fyrsta lagi vitum við nú að margir íþróttamenn
glíma við kvíða og aðrar andlegar raskanir og í
annan stað er fagmennskan í íþróttum alltaf að
verða meiri, bæði hjá þjálfurum og hjá félög-
unum sjálfum. Fyrir vikið er þekkingin smátt
og smátt að aukast, það sjáum við bæði hér
heima og erlendis. KSÍ hefur til dæmis verið
að taka þessi mál meira inn í grunninn hjá sér
en áður, auk þess sem félags- og hugvís-
indaþekking er að koma í meiri mæli inn í
íþróttirnar. Auðvitað vildum við að þetta gengi
hraðar fyrir sig en breytingar taka yfirleitt
tíma. Hvað varðar stráka eins og Ingólf, sem
stigið hafa fram, þá getur litið út fyrir það
núna að þeir séu píslarvottar en þegar fram
líða stundir verður þeirra minnst sem braut-
ryðjenda. Það voru þeir sem hrintu um-
ræðunni af stað og breyttu viðhorfi íþróttanna
til andlegra veikinda til lengri tíma.“
Ekki nýtt í sögunni
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, seg-
ir andleg veikindi knattspyrnumanna og
íþróttamanna al-
mennt ekkert
nýmæli í sög-
unni, hins vegar
hafi orðið ákveð-
in vitundarvakn-
ing á síðustu ár-
um innan
íþróttahreyfing-
arinnar hér á
landi. „Hjá KSÍ
höfum við reynt að bregðast við þessari þróun,
til dæmis með því að bæta umfjöllun um and-
lega heilsu inn í fræðslustarf okkar; í dag er
hún orðin hluti af þjálfaranámskeiðunum hjá
okkur. Þjálfarar verða auðvitað ekki sérfræð-
ingar í andlegri heilsu eftir eitt námskeið en
vonandi eykur þetta skilning þeirra upp að
einhverju marki og kveikir einhvern neista.
Þetta er að sjálfsögðu ekkert sérverkefni
knattspyrnuhreyfingarinnar heldur snertir
það íþróttahreyfinguna í heild og ég veit að ÍSÍ
hefur verið að velta þessum málum upp í mál-
stofum hjá sér. Eins og við vitum þá er íþrótta-
hreyfingin þverskurður af samfélaginu og því
mikilvægt að um þessi mál sé fjallað á vett-
vangi hennar.“
Klara tekur fram að hvorki KSÍ né íþrótta-
hreyfingin í heild sé með lausnina en mik-
ilvægt sé að halda samtalinu áfram, taka á
hverju máli fyrir sig og leita úrræða fyrir við-
komandi iðkanda. „Hvað gerist þegar iðkandi
hefur verið greindur? Hvað á að gera og hvert
á hann að snúa sér? Þessu er vitaskuld ekki
auðvelt að svara enda engin tvö mál eins, geri
ég ráð fyrir, og margir þættir geta fléttast
þarna saman. Þetta er verðugt verkefni sem
við munum halda áfram að vinna að.“
Spurð hvort umburðarlyndi gagnvart and-
legum veikindum sé mögulega minna í knatt-
spyrnu en öðrum greinum íþrótta svarar Klara
því til að ekki sé hægt að útiloka það. „Þetta
gæti verið meira feimnismál í knattspyrnunni
en annars staðar en ég treysti mér þó ekki til
að fullyrða um það,“ segir hún.
Klara kveðst ekki hafa neinar forsendur til
að tjá sig um það hvort andlega veikir knatt-
spyrnumenn sitji
ekki við sama borð
og fullfrískir en
bendir á að það sé
varla tilviljun
hversu fáir hafi
tjáð sig opinber-
lega um þessi mál
gegnum tíðina.
„Þetta hefur verið
feimnismál, rétt
eins og samkynhneigð í knattspyrnu, sér-
staklega hjá körlunum. Kannski er það eitt-
hvað að breytast núna?“
Þekkir ekki slík tilvik
Þorgrímur Þráinsson rithöfundur hefur tengst
íslenskri knattspyrnu órofa böndum um ára-
tuga skeið, fyrst sem leikmaður í efstu deild og
með landsliðinu og síðan sem starfsmaður
karlalandsliðsins undanfarin tólf ár. Hann
kveðst ekki þekkja persónulega til neins tilviks
þar sem leikmaður hafi glímt við andleg veik-
indi. „Sjálfur var ég oft stressaður fyrir leiki
sem er alls ekki neikvætt, því það getur haldið
spennustiginu réttu, og ég þekki nokkra leik-
menn sem glímdu við stress. En það er bara
partur af því að vera í afreksíþróttum. Ég man
hins vegar ekki eftir nokkrum samherja, mót-
herja eða leikmanni landsliðsins, eftir að ég
kom til starfa þar, sem glímt hefur við kvíða,
hvað þá að hann hafi verið greindur með kvíð-
aröskun. Hafi menn átt í slíkum vanda hafa
þeir haldið því fyrir sig og ég þekki heldur ekki
neinn sem stigið hefur fram eftir að ferlinum
lauk.“
Þorgrímur kveðst vera í góðu sambandi við
flesta leikmenn landsliðsins en hann kannast
ekki við að þeir glími við eitthvað af þessu tagi.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði liðsins, segir
frá því í nýútkominni ævisögu sinni að hann
hafi leitað til sálfræðings og segir Þorgrímur
hann mann að meiri. „Ég þekki nokkra leik-
menn sem leitað hafa til sálfræðinga eða ann-
arra fagmanna. Andlegi þátturinn skiptir gríð-
arlegu máli í íþróttum og þess vegna er
sjálfsagt hjá mönnum að leita sér hjálpar,
Sjá sparkheimar
ekki myrkrið?
Umræða um andleg veikindi knattspyrnumanna og
íþróttamanna almennt var lengi feimnismál en er komin á
skrið hér í fásinninu eftir að nokkrir einstaklingar stigu
fram og greindu opinberlega frá reynslu sinni. En hverju
hefur sú umræða skilað? Sitja leikmenn sem glímt hafa við
andleg veikindi við sama borð og fullfrískir félagar þeirra
eða eiga þeir við ramman reip að draga? Hvað er til ráða
og hver er afstaða knattspyrnuforystunnar í landinu?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Viðar
Halldórsson
Þorgrímur
Þráinsson
Klara
Bjartmarz