Fréttablaðið - 16.03.2019, Page 112
EINN MAÐUR VAR TIL
DÆMIS SÝKNAÐUR AF
BROTI Á KLÁMLÖGUNUM ÞÓTT
HEIMA HJÁ HONUM FYNDUST
KVIKMYNDIR SEM INNIHÉLDU
BARNAKLÁM.
Kristín Svava Tómasdóttir fékk á dögunum viðurkenningu Hagþenk is, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir
bók sína Stund klámsins. Klám á
Íslandi á tímum kynlífsbyltingar
innar. Í rökstuðningi dómnefndar
er Kristínu Svövu meðal annars
hrósað fyrir djörfung í efnisvali og
brautryðjendastarf í rannsóknum.
Spurð um viðbrögð við þessari
viðurkenningu segir Kristín Svava:
„Þetta er frábært og mikill heiður.
Það var mjög skemmtilegt að fá til
nefninguna og ég átti alls ekki von
á að vinna því samkeppnin var hörð
og bækurnar sem voru tilnefndar
allar mjög vandaðar.
Bókin er byggð á meistararit
gerðinni minni í sagnfræði. Fyrir
mörgum árum fór ég að velta þessu
efni fyrir mér, fyrir algera tilviljun.
Klám er mjög gildishlaðið hug
tak og yfirleitt notað í neikvæðri
merkingu. Það er ekki síst það
sem er spennandi við það sem við
fangsefni. Klám er hið fordæmda.
Þegar kynferðislegar sviðsetningar
eru f lokkaðar í góðar og vondar er
klámið vondi f lokkurinn en hinu
bjargað yfir í erótík eða list.
Í bókinni f jalla ég um skil
greininguna á hugtakinu klám.
Á íslensku er orðið klám notað í
mjög víðri merkingu. Í útlöndum
hefur verið talað um obscenity
og svo pornography, en á íslensku
er sama orðið notað um þetta allt
saman, hið ósæmilega og hið pornó
grafíska.“
Yfirvöld vildu ekki kýta um klám
Í verkinu beinir Kristín Svava sjón
um að tímabilinu 19601980. „Þá er
mikil hugmyndafræðileg gerjun í
gangi og verið er að ræða um hluti
sem er enn rætt um í dag, það er til
dæmis mikil áhersla á kynfrelsi og
mikilvægi þess að eiga heilbrigðar
samræður um kynlíf. Bókin nær
fram til um 1980 og lýkur með
vídeó byltingunni en með henni
gjörbreytast aðstæður.“
Klám hefur verið bannað í
íslenskum hegningarlögum síðan
1869. „Á þeim tíma sem ég fjalla um
í bókinni fara fram sex dómsmál
vegna kláms. Mín niðurstaða er
reyndar að yfirvöld hafi ekki haft
neinn sérstakan áhuga á að fara
með þessi mál fyrir dómstóla og
ekki viljað rífast opinberlega um
klámlögin. Þau vildu frekar afgreiða
þau á bak við tjöldin.
Djarfar kvikmyndir fara til
dæmis aldrei fyrir dóm vegna þess
að búið var að koma upp ágætis
kerfi þar sem kvikmyndaeftirlitið
hafði fyrirmæli um að láta stjórn
völd vita ef ekki þótti nægja að
banna mynd innan sextán ára. Þá
var bara samið við bíóstjórann að
sýna hana ekki eða senur klipptar
úr myndinni.“
Að hluta til barnaklám
Á þessum tíma fóru fram sex
dómsmál vegna kláms. Í einu máli
var maður kærður fyrir að dreifa
klámmyndum á filmum. Annað
mál snerist um plaköt með skugga
myndum af fólki í kynlífsstellingum
og það mál fór alla leið upp í Hæsta
rétt. Hin fjögur málin snerust um
sjopputímarit og bækur. Það höfðu
fáir áhuga á að verja þau rit opin
berlega þannig að stjórnvöld þurftu
ekki að hafa miklar áhyggjur af því
að fólk færi að rífast um tjáningar
frelsi út af Tígulgosanum.
Ég skoða hvað það er sem gerir
að verkum að þessi tilteknu verk
voru öll metin klámfengin fyrir
dómi. Ég kemst að þeirri niður
stöðu að í fyrsta lagi hafi það verið
vegna þess að efninu var dreift fyrir
peninga, þetta var einhvers konar
klámiðnaður. Í öðru lagi voru þau
seld og þeim dreift þannig að börn
og unglingar höfðu greiðan aðgang
að þeim. Sjoppuritin voru seld í
sjoppum og þangað kom mikið af
börnum og unglingum og skugga
myndaplakötin voru seld í vinsælli
verslun, Karnabæ.
Ég skoða síðan hvað það er í sjálfu
efninu sem gerir að verkum að það
er talið klám. Mín niðurstaða er
að sé tvennt. Annars vegar þegar
blandað er saman kynlífi og vald
beitingu eða of beldi. Hins vegar ef
um var að ræða verk sem lýstu ann
ars konar kynlífi en hefðbundnu
gagnkynhneigðu kynlífi sem gat
stuðlað að fjölgun mannkyns, til
dæmis samkynja kynlífi, hópkyn
lífi, endaþarmsmökum og fleira.
Það er áhugavert og sláandi að í
þremur af þessum sex tilvikum er
að hluta til um að ræða barnaklám.
Þar kemur við sögu efni þar sem er
verið að sýna eða fjalla um börn á
aldrinum 1016 ára í kynferðislegu
samhengi. Það er hins vegar ekk
ert talað um það í dómunum. Einn
maður var til dæmis sýknaður af
broti á klámlögunum þótt heima
hjá honum fyndust kvikmyndir
sem innihéldu barnaklám. Innan
við tveimur áratugum síðar var
orðið ólöglegt að eiga þannig efni,
hvað þá að dreifa því. Maður sér í
dæmum eins og þessu hvað hlut
irnir hafa breyst mikið.“
Verðlaunabók um hið fordæmda klám
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Stund klámsins
eftir Kristínu
Svövu fékk viður-
kenningu Hagþenk-
is. Beinir sjónum
að tímabilinu 1960-
1980 en þá urðu
sex dómsmál vegna
kláms.
„Ég átti alls ekki von á að vinna því samkeppnin var hörð og bækurnar sem voru tilnefndar allar mjög vandaðar.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
BÆKUR
Að vetrarlagi
Isabel Allende
Þýðing: Sigrún Á. Eiríksdóttir
Útgefandi: Mál og menning
Blaðsíður: 368
Einn öflugasti vetrarstormur í manna minnum geisar í New York og leiðir saman ólöglega
innflytjandann Evelyn, lífsþreytta
háskólaprófessorinn Richard og
rithöfundinn og baráttukonuna
Luciu. Einföld aftanákeyrsla hrindir
af stað atburðarás sem tekur ófyrir
séða snúninga og meðfram línulegri
frásögn eru ólík lífshlaup þessara
þriggja einstaklinga rakin sem öll
eiga sér þó einhverjar en misþykkar
rætur í SuðurAmeríku.
Meginstef bókarinnar er hinn
margliti en þó nístandi veruleiki
margra þeirra sem búa í Mið og
SuðurAmeríku, veruleiki sem
getur orðið svo erfiður og blóðugur
að þúsundir einstaklinga hætta lífi
sínu á hverjum degi til að komast til
fyrirheitna landsins Bandaríkjanna
þar sem óprúttnir einstaklingar
nýta sér oftar en ekki neyð þeirra
í ýmsum óskemmtilegum tilgangi.
Mansal, glæpagengi og hrottalegar
hefndaraðgerðir koma við sögu og
stíga dans við litríkt persónugallerí
og að hætti Allende eru vangaveltur
um stjórnmálaástand og mannrétt
indi aldrei langt undan. Það sama
má segja um töfraraunsæið og hinn
einstaklega heillandi frásagnarhátt
Allende og eftir því sem á líður sög
una sogast lesandinn lengra inn í
örlög og harma persónanna. Það
tekur þó smátíma fyrir söguna að
komast í gang en þegar hún gerir
það er það fyllilega þess virði.
Myndmálið er einkar vel
unnið, andstæðunum hita og
kulda tef lt saman bæði í sögu
sviðunum sem eru annars
vegar nístingskaldur veturinn í
New York og hins vegar hitinn,
stundum óbærilegur, í Suður
Ameríku, og í persónum Rich
ards og Luciu sem eru að auki
bæði komin yfir miðjan aldur
og eins og venjulega einkar
skemmtilegt að lesa um tilfinn
ingalíf þroskaðra einstaklinga
sem stundum getur verið alveg
eins heitt og ástríðufullt og
þeirra sem yngri eru. Enda
hefst bókin á tilvitnun í Albert
Camus: „Um hávetur komst
ég loks að raun um að innra
með mér ríkti ósigrandi sumar.“
Sá grunur læðist jafnvel að lesand
anum að Lucia sé að einhverju leyti
byggð á Allende sjálfri sem dregur
síst úr lestrargleðinni. Saga Evelyn
er svo saga f lóttamanns og inn
flytjanda sem varpar ljósi á ömur
legar aðstæður þeirra sem eiga
hvergi grið. Sagan er þannig bæði
grimm og blíð, nokkuð sem les
endur Allende kannast við úr fyrri
bókum hennar.
Þýðingin rennur lipurlega og þó
að stundum verði vart við einstaka
klifun er bókin þægileg aflestrar og
nær vel að fanga hinn einstaka frá
sagnarblæ Allende.
Brynhildur Björnsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sagan er hæg í gang en
nær góðu flugi og aðdáendur Isabel
Allende munu kannast við sig og njóta.
Ósigrandi sumar um hávetur
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
2
-8
1
E
0
2
2
9
2
-8
0
A
4
2
2
9
2
-7
F
6
8
2
2
9
2
-7
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K