Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 0 . M A R S 2 0 1 9 WOW air falast eftir ríkisábyrgð For s va r smen n WOW air viðruðu um liðna helgi hugmyndir um að stjórnvöld veiti f lug­félaginu ríkisábyrgð á lánaf y rirg reiðslu f rá Arion banka til þess að tryggja rekstur félagsins til skemmri tíma, samkvæmt heimildum Markaðar­ ins. Rætt hefur verið óformlega um hugmyndir f lugfélagsins en afar ósennilegt er talið að stjórnvöld muni ljá máls á þeim. Mikil óvissa ríkir um framgang viðræðna WOW air og Indigo Partners, hins bandaríska fjár­ festingarfélags Bills Franke, og eru horfur á að kaup Indigo á íslenska flugfélaginu nái fram að ganga sagð­ ar tvísýnni nú en áður. Eru stjórn­ völd vel upplýst um gang mála. Heimildir Markaðarins herma jafnframt að óformlegar þreifingar hafi verið á milli fulltrúa WOW air og Icelandair Group undanfarna daga um aðkomu síðarnefnda Settu fram hugmyndir um ríkisábyrgð á láni frá Arion. Ósennilegt að stjórnvöld muni ljá máls á þeim. Þreifingar á milli WOW air og Icelandair. Þarf ávallt að vera með eina vél til- tæka sem tryggingu vegna skuldar við Isavia.    10,5 milljarða króna hefur Indigo sagst vera reiðubúið að leggja WOW air til. hafa um stöðu WOW air er félagið þó sagt vera með nægt lausafé til að standa við skuldbindingar sínar og halda rekstrinum gangandi fram yfir næstu mánaðamót. Skuldabréfaeigendur WOW air, sem fjárfestu fyrir samtals 60 millj­ ónir evra, jafnvirði 7,9 milljarða króna, í útboði flugfélagsins síðasta haust, þurfa sem kunnugt er að fall­ ast á nýja skilmála, sem felast meðal annars í helmingsafskrift af höfuð­ stól skuldabréfanna, fyrir 25. mars. Samþykki þeir breytingarnar hefur WOW air frest til 29. apríl til að ná samkomulagi við Indigo Partners. Bandaríska félagið hefur lýst sig reiðubúið til þess að leggja WOW air til allt að 90 milljónir dala, jafn­ virði um 10,5 milljarða króna. Þá herma heimildir Markaðarins að WOW air hafi undanfarið þurft, vegna skilmála sem Isavia hefur sett f lugfélaginu, að hafa ávallt eina f lugvél úr f lota félagsins tiltæka á Keflavíkurflugvelli. Er fyrirkomu­ lagið komið til sem trygging vegna skulda WOW air við Isavia. Þann­ ig getur Isavia kyrrsett umrædda vél ef WOW air lendir í greiðsluerfið­ leikum og getur þá eigandi vélarinnar ekki leyst hana til sína fyrr en skuldirnar hafa verið gerðar upp, að sögn þeirra sem þekkja vel til stöðu mála. Isavia vildi ekki tjá sig um mál­ efni einstakra viðskiptavina þegar eftir því var leitað. – hae, kij Settu punktinn yfir ferðalagið félagsins að því fyrrnefnda. Eins og fram hefur komið leitaði Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, til forsvarsmanna Ice­ landair Group í lok síðasta mánaðar en stjórn Icelandair Group ákvað þá að ganga ekki til viðræðna við lág­ gjaldaflugfélagið að sinni. Ljóst er að fjár­ hagsstaða WOW air er afar þröng um þessar mundir. Sam­ kvæmt þeim upplýs­ ingum sem stjórnvöld Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.Bill Franke, aðaleigandi Indigo Partners.Skúli Mogensen, eigandi WOW air. 2 0 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 9 8 -E F 4 C 2 2 9 8 -E E 1 0 2 2 9 8 -E C D 4 2 2 9 8 -E B 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.