Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 6
INNFLYTJENDAMÁL Fulltrúar lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu sitja fyrir svörum hjá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í fyrra- málið vegna aðgerða lögreglu gegn mótmælendum á Austurvelli. „Þórhildur Sunna Ævarsdóttir bað um þennan fund og fékk til þess stuðning frá mér og Jóni Stein- dóri Valdimarssyni, en ef þrír þing- menn biðja um svona fund þá er hann haldinn,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, varaformaður nefndarinnar. Hann segir að óskað hafi verið eftir fundinum í kjöl- far harðræðis sem mótmælendur hafi verið beittir af hálfu lögreglu á Austurvelli um liðna helgi. Mikil umræða hefur sprottið á samfélagsmiðlum vegna mótmæla hælisleitenda og samtakanna No Borders á Austurvelli og hefur gagn- rýni verið beint að lögreglu ýmist fyrir of mikla hörku eða of mikla linkind gagnvart mótmælendum. Neikvæðar athugasemdir í garð hælisleitenda og mótmælenda hrannast upp í hundraðatali við færslur alþingismanna og annarra áhrifamanna á samfélagsmiðlum sem beina gagnrýni ýmist að borgaryfirvöldum, forsætisnefnd Alþingis eða lögreglu. Er það ekki síst meintur sóðaskapur og vanvirð- ing við styttuna af Jóni Sigurðssyni sem rennur mönnum til rifja. Meðal þeirra sem kvatt hafa sér hljóðs í umræðunni eru Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmála- ráðherra, Helgi Magnús Gunnars- son vararíkissaksóknari, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðf lokksins, og Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. „Það er mjög ógeðfellt þetta sóða- skapstal því það er líka svo ósann- gjarnt af því þau hafa bara gengið mjög vel um, ég hef tekið sérstak- lega eftir því enda geng ég dag- lega þarna um og þetta er bara ósatt,“ segir Guðmundur Andri og bætir við: „Þetta er með prúðmannlegustu mótmælum sem ég man eftir. Aðspurður s e g i r G u ð - mu n d u r a ð h a n n h a f i ekki vitað af u m r æ ð u m á Facebook- s í ð u P á l s Magnússonar um mótmælin á Austurvelli, en Páll er formaður a l l s h e r j a r - o g m e n n t a m á l a - nefndar. „Páll mun vænt- anlega stýra þess- Lögreglan á fund þingnefndar vegna harðræðis á Austurvelli Þingmenn í minnihluta allsherjar- og menntamálanefndar óskuðu eftir fundi með lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu til að svara fyrir harðræði. Formaður nefndarinnar fordæmir umgengni mótmælenda. Neikvæð umræða á Vesturlöndum um innflytjendur nær valdamiðjunni en áður, segir sérfræðingur. Um áhrif stjórnmálafólks á innflytjendaumræðu Fréttablaðið spurði Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um þróun inn- flytjendaumræðu á Vesturlöndum á undanförnum áratugum og áhrif stjórnmálafólks á umræðuna. „Framan af héldu allflestir stjórnmála- menn, þvert yfir ásinn frá hægri til vinstri, fram þeim sjónarmiðum að mikilvægt væri að vestræn lýðræðisríki væru opin, byðu fólk velkomið og mikilvægt væri að virða mann- réttindi. Alla tíð hefur samt lifað á jaðrinum mun fjand- samlegri umræða í garð innflytjenda. Það hefur síðan smám saman verið að gerast að sú fjand- samlega umræða sem haldið var úti á jaðrinum hefur verið að færast inn í meginstraum stjórn- málanna. Stjórnmála- öfl sem hafa haldið úti miklu harðari afstöðu í garð að- komufólks heldur en áður var talið ásættanlegt, hafa fengið miklu meiri stuðning. Nú er svo komið að það eru fjölmargir sem tala í andstöðu við innflytjendur frá sjálfri valda- miðjunni. Þetta eru ekki lengur útskúfaðar raddir frá jaðri stjórn- málanna og það hefur allt annars konar áhrif á það hvernig um- ræðunni er tekið. Þegar valdafólk og þeir sem litið er upp til í sam- félaginu halda úti slíkri umræðu, er miklu lægri þröskuldur fyrir fólk til að fylgja slíkum sjónar- miðum heldur en áður var. Það er hins vegar ekkert séríslenskt við þessa umræðu og ef eitthvað er þá er hún mun seinni á ferðinni hér á landi heldur en víða annars staðar.“ l Þetta eru múslímskir hermenn : skríll sem á og hefur engan rétt til að mótmæla einu eða neinu. Þeir koma hingað til að fá betra líf en eiga engan rétt á því hér og ætti að losa okkur strax við þennan hættulega skríl ! l Auðvitað á að vìsa þessu liði ùr landi. Þessi linkind i byrjun þess- arar þròunar er stòrhættuleg. Þeir komast upp með þetta og það býður upp á meira. Hvenær byrja þeir að kveikja ì, ì mòt- mælaskyni og eyðileggja. Þetta land er STJÒRNLAUST! l Innrásarherinn var að deyja úr kulda. Og því fóru þeir upp á ásbrú að hita upp á sér rass- götinn. Sjáist þeir meir á Austur velli, verð ég fyrsti maður til aðgerða. l Burt með þetta fólk.....senda það með næstu flugvél..... þangað sem það kom.....svei og skömm hvernig er farið með Austurvöll , vanþakklæti og skömm....virðir ekki það sem við höfum byggt upp.....svei þeim l Burt með allt þetta fólk, vel meint. l Vísa þessu fólki ur landi l Þetta er hrein árás á þjóð- ernistilfinningar Íslendinga og á landið. l Þetta eru örfáir hælisleitendur sem koma þarf úr landi hið fyrsta. l Burtu með þetta pakk og það í gær. l Burtu með þennan skríl l Elsku folk, Ekki vera fasistar. Þrír voru handteknir í mótmælum við Alþingishúsið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR um fundi eins og ö ðr u m f u n d u m n e f n d a r - innar,“ segir G u ð m u n d u r um fyrirhugaðan fund nefndarinnar með lög reglu nni. „Hins vegar munum við væntanlega leiða f u nd i n n , s py r j a spurninga og reifa málið. Svo standa þau fyrir máli sínu,“ segir Guðmundur og vísar til þeirra þing- manna sem óskuðu eftir fundi með lögreglunni. Hann segir að búast megi við að málið verði rætt vítt og breitt á fundinum enda sjái ekki fyrir endann á atburðarásinni. Þrír voru handteknir vegna mótmæla við þinghúsið í gær og þá þurfi einn- ig að ræða orðræðuna á samfélags- miðlum. adalheidur@frettabladid.is ✿ Dæmi um athugasemdir á við færslur áhrifafólks HEILBRIGÐISMÁL Ef ekki greinist nýtt tilfelli mislinga á landinu fyrir 26. mars eru yfirgnæfandi líkur á að mislingafaraldurinn hafi stöðvast. Þetta segir Þórólfur Guðnason, sótt- varnalæknir hjá Landlækni. Þórólfur fundaði í gær með umdæmis- og svæðislæknum sótt- varna. Þar kom fram að ekki hefðu greinst ný tilfelli mislinga. „Samtals 66 einstaklingar eru í heimasóttkví á landinu en eins og áður hefur komið fram er heildar- fjöldi staðfestra tilfella fimm og eitt vafatilfelli. Hvert tilfelli hefur því áhrif á marga aðila í nánasta umhverfi. Í heimasóttkví felst að þeir einstaklingar sem hafa komist í tæri við sýktan einstakling skulu halda sig heima frá degi sex eftir að þeir komust í tæri við hann og fram að 21. degi,“ segir Þórólfur á vef Landlæknis. – smj Á sjöunda tug í heimasóttkví Theresa May. NORDICPHOTOS/AFP Brexit gæti tafist um allt að tvö ár BRETLAND Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu gæti frestast um allt að tvö ár. Þetta hafði BBC eftir ónefndum heimildarmanni úr ríkisstjórn Theresu May. Forsætis- ráðherrann skrifaði í gær hið form- lega bréf til Evrópusambandsins þar sem farið var fram á að útgöngudegi yrði frestað frá 29. mars þar til 30. júní eða lengur. Þetta gerði May eftir að breska þingið hafnaði samningi hennar öðru sinni, hafnaði jafnframt samn- ingslausri útgöngu og fól henni þess í stað að fara fram á frestun. Leiðtoga- ráð ESB þarf nú að taka afstöðu til beiðninnar og tíminn er af skornum skammti. Michel Barnier, sem leiðir samninganefnd ESB, sagði í gær að sambandið myndi ekki samþykkja beiðnina nema Bretar sýndu fram á raunverulega áætlun um hvað þeir hygðust gera við tímann sem fengist til viðbótar. – þea Bretar áttu upphaflega að ganga úr ESB þann 29. mars en vilja nú fá frest. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. STJÓRNSÝSLA Fjármála- og efna- hagsráðuneytið hefur afhent Frétta- blaðinu afrit af fundargerðum kjara- ráðs 2015 til 2018. Upplýsingar um hverra laun ráðið hækkaði á laun árið 2011 fást ekki afhentar að sinni. Frá því í nóvember 2017 hefur Fréttablaðið reynt að fá afrit af fund- argerðum ráðsins fyrir árin 2013-18. Hefur blaðið í tvígang kærta afstöðu kjararáðs og FJR til úrskurðarnefnd- ar um upplýsingamál (ÚNU). Í fyrra skiptið þar sem kjararáð taldi sig ekki stjórnvald, heldur lögbundinn gerðardóm, og heyrði þar með ekki upplýsingalögin en hið síðara þar sem FJR sagðist ekki hafa gögnin í sinni vörslu. Í bæði skiptin gerði ÚNU stjórnvöldin afturrek. „Samkvæmt áætlun ráðuneytis- ins hafa farið í það minnsta 40 vinnustundir í vinnu við yfirferð og eftir atvikum brottfellingu upp- lýsinga í fundargerðum kjararáðs. Að mati ráðuneytisins myndi sá tími sem það útheimti að verða að fullu við upplýsingabeiðninni hafa slík áhrif á lögbundin störf ráðu- neytisins að ráðuneytinu sé það ekki fært. Beiðninni er því synjað að því er varðar fundargerðir eldri en frá 2015,“ segir í svari FJR. Beiðni um afrit bréfa varðandi launungarlaunahækkanir árið 2011, var hafnað. Ekki þótt nægjanlega tilgreint hvaða bréf um ræddi. Taka má fram að hvorki kjararáð né FJR hafa gefið upplýsingar um hverjir hækkuðu og hverjir ekki. – jóe Neita að afhenda fundargerðir kjararáðs frá því fyrir árið 2015 Kjararáð var til húsa í Skuggasundi 3 uns það var aflagt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 0 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 9 -1 B B C 2 2 9 9 -1 A 8 0 2 2 9 9 -1 9 4 4 2 2 9 9 -1 8 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.