Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 18
Stjórnendur Haga hafa að undanförnu leitað leiða til að styrkja grunnstoðir félagsins, en á sama tíma að efla og auka umsvif fyrir-tækisins. Meðal skrefa sem
hafa verið stigin er sameining við
hinn rótgróna eldsneytissala Olís.
Við það jókst veltan um 40 prósent.
Sóknin kemur í kjölfar tímabils
sem varið var í að „þétta reksturinn“
í takt við breytt rekstrarumhverfi
svo gripið sé til orðalags Finns Árna-
sonar forstjóra. Samstæðan lokaði
um 25 þúsund verslunarfermetrum,
þar á meðal fataverslunum og hluta
af verslunarrými Hagkaups, á síð-
ustu fimm árum.
Annað skref sem var stigið var að
kaupa Lyfju, en Samkeppniseftirlitið
meinaði Högum að kaupa keðjuna
sumarið 2017. Nú hafa stjórnendur
Haga komið með krók á móti bragði.
Gengið var frá kaupum á 90 prósenta
hlut í Reykjavíkur Apóteki sem í
samanburði við Lyfju og Haga er
lítill rekstur.
Hvað vakir fyrir ykkur með kaup-
unum?
„Það hefur komið fram að við
höfum áhuga á þessum markaði.
Hann er áhugaverður, er vaxandi
og fellur vel að okkar rekstri. Við
sýndum það í verki með því að
skrifa undir kaupsamning á Lyfju.
Við lögðum umtalsvert á okkur til
að kaupin næðu fram að ganga en
Samkeppniseftirlitið lagðist gegn
þeim, fyrst og fremst vegna skör-
unar á snyrtivörumarkaði, en Sam-
keppniseftirlitið taldi Fríhöfnina
ekki á sama markaði og innlendir
snyrtivörusalar. Því erum við ósam-
mála. En við hættum ekki að hugsa
um þennan markað. Hann hentar
okkar starfsemi vel. Hagar geta rekið
apótek á hagkvæman máta og boðið
viðskiptavinum viðbótarþjónustu á
góðu verði.
Nú fara kaupin á Reykjavíkur
Apóteki sína leið hjá Samkeppnis-
eftirlitinu. Ég er bjartsýnn á farsæla
niðurstöðu. Í þessu tilviki er einung-
is um eitt apótek að ræða við Seljaveg
á meðan Lyfja er stærsta lyfjakeðja
landsins.“
Opna fleiri apótek
Hver er hug myndin með kaup-
unum, hvort er stefnt að því kaupa
f leiri minni apótek eða opna ný á
eigin spýtur?
„Við horfum til þess að byggja
á grunni þessa fyrirtækis og opna
nýjar verslanir. Það eru ákveðnar
staðsetningar til skoðunar. Um leið
og kaupin verða samþykkt liggur
fyrir hvar fyrsta apótekið verður
opnað. Það er ekki horft til þess að
reka apótek á hverju horni heldur
að byggja upp fyrirtækið af skyn-
semi og yfirvegun.“
Er stefnt að því að nota vöru-
merkið Reykjavíkur Apótek eða
munið þið sækja fram undir öðru
merki?
„Við teljum vörumerkið Reykja-
víkur Apótek mjög sterkt og vel til
þess fallið að byggja á.“
Hvernig horfa samskiptin við
Samkeppniseftirlitið við þér varð-
andi kaupin á Lyfju?
„Aðilar voru ósammala um nið-
urstöðu og nálgun. Þar bar einfald-
lega mikið í milli. Við töldum kaup-
in eðlileg og hefðum getað boðið
neytendum betri valkosti með því
að koma að þessum rekstri. Sam-
keppniseftirlitið var á öðru máli.
Ég hef ekki meira um málið að
segja, enda viljum við frekar horfa
fram á veginn og einbeita okkur að
þeim fjölmörgu tækifærum sem
við stöndum frammi fyrir.“
Samke ppni sef t irlit ið virði st
ekki skynja mikilvægi stærðarhag-
kvæmni fyrir neytendur?
„Nei. Þeir skilgreina markaði á
sinn hátt, auk þess með þeim hætti
að það endurspeglar ekki breytta
tíma þar sem fólk ferðast í meira
mæli en áður og getur verslað á
netinu. Hægt er að opna tölvu og
hafa heiminn fyrir framan sig.“
Önnur hver flík keypt erlendis
Er það ástæðan fyrir því að Hag-
kaup mun draga enn frekar úr sölu
á fatnaði?
„Fyrir árið 2008 má segja að um
20 prósent af fatamarkaðnum hafi
verið fatakaup Íslendinga í ferða-
lögum erlendis. Nú er svo komið að
önnur hver f lík er keypt erlendis.
Aukin ferðalög og netverslun hefur
gert það að verkum að markaður-
inn hefur dregist saman. Það
endurspeglast ágætlega í því að
eftirspurnin eftir því að opna fata-
verslun í Kringlunni og í Smára-
lind er mun minni en áður. Fyrir
15 árum var löng röð af þeim sem
höfðu hug á að reka fataverslun í
verslunarmiðstöðvunum. Sú röð
er horfin.
Verð á fatnaði hefur farið lækk-
andi á undanförnum árum. Ég
reikna með að verðlag Zöru, sem
við rekum hér á landi, hafi lækkað
um 30 prósent á fimm árum. Styrk-
ing krónu á tímabilinu spilar inn í
en félagið ákvað að bjóða upp á
lægra verð, sem var skilað til við-
skiptavina. Þrátt fyrir að verð hafi
lækkað er aukin ásókn í aðra val-
Erfið staða á meðan beðið er eftir SKE
Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir að vinnan með Samkeppniseftirlitinu vegna sameiningar við Olís hafi tekið fimmtán mánuði.
Hagar vinna að skipulagi á reit í Breiðholti með allt að 400 íbúðum. Önnur hver flík er keypt erlendis. Fjárfestar sýna Útilífi áhuga.
Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir að fyrir 15 árum hafi verið löng röð af þeim sem vildu opna fataverslun í Kringlunni og Smáralind. Nú sé röðin horfin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
9
-2
5
9
C
2
2
9
9
-2
4
6
0
2
2
9
9
-2
3
2
4
2
2
9
9
-2
1
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K