Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hluti Sjálf­ stæðisfólks vill slá skjald­ borg um einkabílinn og lokar augum fyrir mengun af bílaumferð. Samfylkingin má ekki heyra minnst á gatnamót sem geta aukið öryggi vegfar­ enda án þess að rísa upp á afturlapp­ irnar. Árekstrar milli atvinnu­ lífs og um­ hverfisvernd­ ar eru ekki náttúrulög­ mál. Það er manngerður og heima­ tilbúinn vandi sem er á okkar ábyrgð að leysa. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i Atvinnulífið leiði umhverfisvernd Hanna Katrín Friðriksson þingflokks­ formaður Viðreisnar Formúlan fyrir framtíðartrylli hefur verið óbreytt svo lengi sem elstu menn muna; Á einn eða annan hátt ganga menn svo fram af móður jörð að siðmenningin líður undir lok, lýðræðið og einstaklingsfrelsið er fótum troðið, fasisminn ræður ríkum. Einhverjir uppreisnarseggir eru þó ósigraðir og í lok myndarinnar er vonarglætu að finna. Eitt af einkennum frjálslyndra samfélaga er athafnafrelsi, jafnt einstaklinga sem fyrirtækja. Hlutverk stjórnvalda er að skapa umgjörð þar sem frelsið og fjölbreytnin nýtur sín til hagsbóta fyrir samfélagið í heild sinni. Eitt af stærstu viðfangsefn­ unum þar er að skipa umgjörð sem gerir atvinnu­ lífinu betur kleift að vera öflugur þátttakandi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Árekstrar milli atvinnulífs og umhverfisverndar eru ekki náttúrulögmál. Það er manngerður og heima­ tilbúinn vandi sem er á okkar ábyrgð að leysa. Stjórnvöld geta brugðist við með því að ýta undir græna hvata, tryggja að losun sé í samræmi við ströngustu kröfur og búa til umhverfi sem auð­ veldar fyrirtækjum að taka umhverfissjónarmið inn í framleiðslu og framboð á vöru og þjónustu. Besta leiðin til að draga úr mengun er að tryggja að þeir sem valda henni greiði kostnaðinn af henni. Það er líka mikilvægt að stjórnvöld og atvinnu­ líf taki höndum saman við að stuðla að almennri vitundarvakningu. Ný og krefjandi úrlausnarefni kalla á nýjar lausnir. Þær lausnir eru mun líklegri til að verða til í samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs þar sem nýsköpun og vöruþróun eru vænlegri til árangurs en eingöngu boð og bönn. Sjálf bærni, samkeppni og nýsköpun eru leiðar­ stef sem eiga að ríkja í öllum atvinnurekstri. Með fullri virðingu fyrir mikilvægi uppreisnarseggja, þá eigum við þannig mesta möguleika á því að standa vörð um náttúruna okkar og frjálslyndið og halda fasismanum úti. Ár drykkjusvínsins Kínverjar fögnuðu nýlega upp- hafi árs svínsins en kannski er tilefni fyrir ölkæra þingmenn að kveðja nú ár drykkjusvínsins. Annus horribilis fulla þing- mannsins hófst í þingveislu á Hótel Sögu í apríl á síðasta ári þegar varaþingmaður Flokks fólksins, drakk ótæpilega og áreitti konur kynferðislega. Hann sagði af sér og síðan hefur ekkert til hans spurst. Undir lok árs deleruðu nokkrir á Klaustri en sitja enn. Haldi aðrir sig á mottunni lauk þessu ári bömm- era kjörinna fulltrúa með dólgs- látum varaþingmanns Pírata á Kaffibarnum fyrir skömmu. Hann sagði af sér þannig að athygli vekur að á þessum tæpu tólf mánuðum liggja einungis varaþingmenn í valnum. Efling bindindis Ætla mætti að litlir kærleikar væru með verkalýðsforystunni og stjórnvöldum en þó virðist Eflingu annt um afdrif þingheims á skemmtanasvellinu. Þannig hefur yfirvofandi skæruverkfall hjá hótelstarfsmönnum og rútu- bílstjórum á föstudaginn orðið til þess að árlegri veislu þing- manna á Hótel Sögu hefur verið frestað. Alveg óvart hafa Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar þarna girt fyrir að nýtt fyllerísruglsár þingmanna gangi í garð vegna þess að þar sem engin er drykkju- gleðin verða engir skandalar. thorarinn@frettabladid.is Borgarlína er kall tímans. Einkabíll­inn er ekki ferðamáti fólks í borgum nútímans. Síðustu ár hefur bílum fjölgað meira en fólki í borginni. Það stefnir í óefni. En mikil einföldun er að tala um borgarlínu sem lýtalausa töfralausn. Gagnrýnin er að sama skapi iðulega í upphrópanastíl. Fáir feta meðalveginn og sýna sanngirni og hófsemd í umræðunni. Rétttrúnaður er leiðindaávani stjórnmálamanna þegar rætt er um samgöngur. Hluti Sjálfstæðisfólks vill slá skjaldborg um einkabílinn og lokar augum fyrir mengun af bílaumferð. Samfylkingin má ekki heyra minnst á gatnamót sem geta aukið öryggi vegfarenda án þess að rísa upp á afturlappirnar. Í náinni framtíð verða breytingar á samgöngu­ mynstri. Deilibílar munu ryðja sér til rúms, notkun raf hjóla aukast, orkuskipti verða í samgöngum og frelsi á leigubílamarkaði gæti orðið að veru­ leika. Þetta gerbreytir myndinni. Samfélagsgerðin breytist og hefur víðtæk áhrif. Fólk mun í ríkari mæli stunda vinnu að heiman. Umræða um stytt­ ingu vinnuviku er fyrirferðarmikil. Styttri vinnu­ vika gefur svigrúm til að dreifa vinnutímanum, svo að við verðum ekki öll á ferðinni á sama tíma. Slíkt gæti haft mikil áhrif á þarfirnar sem borgarlína þarf að mæta. Spár gera ráð fyrir að höfuðborgarbúum fjölgi um 40 þúsund til ársins 2030. Markmið borgarlínu er að fjölgunin þyngi ekki umferð. Það er nauðsyn­ legt. Hvergi er meiri bílaumferð í norðlægri borg. Því fylgir svifryk og sóun á tíma fólks. Því fylgir aftur aukið hreyfingarleysi og færri samverustund­ ir með vinum og fjölskyldu. Rekstur bíls er dýr. Um er að ræða veigamikinn þátt í heimilisbókhaldinu. Svo mætti áfram telja. Þróun hverfa í borginni skiptir höfuðmáli í þessu samhengi. Hvergi eru f leiri fótgangandi en í Vesturbænum í Reykjavík. Þar er öll nærþjónusta í göngufæri. Bakarí, verslanir, kaffihús og sund­ laug. Hið sama er að gerast í Laugardalnum og víðar. Góð þjónusta nærri heimilum fólks dregur úr umferð. Borgarlínan er einfaldlega þess eðlis að það þarf að líta til margra átta. Um hana þurfa borgarbúar að eiga lifandi samtal. Svo er borgarlína dýr og fjármögnun óljós þótt ríkið boði þátttöku – hver er verðmiðinn? Sérstaklega er þetta mikilvægt í ljósi atburða liðinna mánaða sem vekja upp hughrif um óstjórn í fjármálum borgarinnar. Til er hópur fólks sem vill ekki almenningssam­ göngur. En f lestir vilja hafa úr kostum að velja. Það er hlutverk stjórnmálamanna að búa svo um hnútana að kostirnir verði fólki ljósir. Þá mun bílum fækka. Nú þarf að fullmóta hugmyndina, kynna kostina án þess að draga fjöður yfir gallana. Þannig fá stjórnmálamennirnir fólkið með sér. Óskað er eftir yfirvegaðri umræðu um málið. Helst áður en ætt er af stað í miklar og dýrar fram­ kvæmdir. Kall tímans 2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 0 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 9 -1 6 C C 2 2 9 9 -1 5 9 0 2 2 9 9 -1 4 5 4 2 2 9 9 -1 3 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.