Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 26
Loftunarkerfið er
tæknibúnaður sem
bætir vatnsgæði til muna
í allri kvínni.
Andromeda Group, sem er eitt af leiðandi fyrirtækjum í fiskeldi á Miðjarðarhafs-
svæðinu, fjárfesti nýlega í loft-
unarkerfi frá Vaka Pentair fyrir
eina af stærstu fiskeldisstöðvum
sínum á Spáni. Þetta kerfi mun
verða stærsta loftunarkerfi á einni
stöð í heiminum í dag segir Júlíus
B. Bjarnason, sölustjóri Evrópu hjá
Vaka Pentair. „Loftunarkerfið er
tæknibúnaður sem bætir vatns-
gæði til muna í allri kvínni. Með
auknum vatnsgæðum dreifist
fiskurinn mun betur og um leið
eykst matarlystin. Fyrir vikið
getur kerfi aukið vaxtarhraðann
til muna, ásamt mörgum öðrum
kostum.“
Það sem aðgreinir loftunarkerfi
Vaka Pentair frá öðrum, að sögn
Júlíusar, er að hægt er að stjórna
hverri kví fyrir sig á auðveldan
og skilvirkan hátt, auk þess sem
loftblásararnir í hverri kví eru sér-
hannaðir til að þrýsta upp vatni.
„Búnaðurinn okkar hefur vakið
talsverða athygli víðsvegar um
heim og hafa fyrirtæki á nokkrum
stærstu mörkuðum í laxeldi fjár-
fest í búnaði okkar. Við erum með
kerfi í notkun í t.d. Noregi, Skot-
landi, Kanada og nú fyrir Sea Bass
og Sea Bream á Spáni.“
Leysir ólík vandamál
Ástæður fyrir loftun í sjókví geta
verið margar að sögn Júlíusar, en
þær helstu eru að taka ferskan
sjó neðarlega og þrýsta honum
upp til að fá jafnara súrefnis-
ástand í allri kvínni. „Í Kanada
var kerfið upphaflega notað til
að þrýsta óæskilegum þara og
svifi úr sjókvíum sem eru eitraðir
og voru að drepa fiskinn. Kerfið
virkaði það vel að dauðsföll urðu
nánast engin. Að auki varð mun
betra súrefnisástand jafnt yfir alla
kví þannig laxinn óx 20% hraðar.
Á Spáni eru allt aðrar aðstæður
en á vorin og yfir sumartímann
er mikill hitamunur ofarlega og
neðarlega í kvíum. Því pakkast
allur fiskur neðar í það ástand sem
er best. Þar er kerfið hugsað til að
þrýsta kaldari sjó frá botni upp
á yfirborð. Með því skapast mun
jafnara ástand sem skilar sér í betri
nýtingu ásamt hraðari vexti.“
Í Noregi, Skotlandi og Íslandi
eru aðstæður svipaðar segir hann
en þó ólík vandamál. „Í Noregi
hefur borið nokkuð á lús í sumum
sjókvíum og þar notast menn við
lúsatjöld sem loka innflæði á sjó í
gegnum netin allt niður á sjö metra
dýpi. Við það skapast verri sjógæði
efst í kvínni og fer fiskur því neðar
í ákjósanlegri aðstæður. Þá eykst
þéttleiki mikið í allri kvínni sem
er mikill ókostur. Norsk fyrirtæki
hafa því leitað til okkar í nokkrum
mæli til að koma fyrir loftun þar
sem þeir eru að nota lúsatjöld.
Niðurstöðurnar eru þær að um
leið og kveikt er á loftun færir
fiskur sig aftur upp, þar sem sjó-
gæði eru orðin mun betri og þétt-
leiki minnkar ásamt því að skila
meiri matarlyst og hraðari vexti.“
Leiðandi á heimsvísu
Fyrir um tveimur árum var Vaki
keypt af bandaríska stórfyrir-
tækinu Pentair sem sérhæfir sig í
vatnslausnum eins og vatnsdælum
og hreinsunarbúnaði. Undanfarin
ár hefur Vaki hins vegar verið eitt
af leiðandi fyrirtækjum í eldis-
lausnum á heimsvísu, t.d. á búnaði
eins og fiskiteljurum, flokkurum
og fiskidælum. „Í sameiningu
sáum við gott tækifæri í að sam-
hæfa margar af lausnum okkar og
er loftunarkerfið t.d. ein þeirra.
Kerfið hefur verið í þróun í nokkur
ár en síðastliðin tvö ár höfum við
samhæft tækni og hefur stór hópur
verkfræðinga komið að þróun
ásamt fjölmörgum fiskeldis-
fyrirtækjum. Í dag erum við með
fullbúið kerfi sem er það besta sem
völ er á til að lofta sjókvíar.“ Hann
segir viðtökurnar hafa verið ótrú-
legar. „Fjölmörg fyrirtæki í fjórum
löndum eru komin með kerfið auk
þess sem við erum í viðræðum við
fjölda sjóeldisfyrirtækja. Útlitið
er bjart fyrir greinina, vöxtur
hefur verið mikill og sjáum við
það kannski best hér á landi hvað
fiskeldi hefur vaxið. Ekki aðeins í
fisk-tonnum heldur einnig í þekk-
ingu og tækjabúnaði.“
Vaki Pentair mun taka þátt í
ráðstefnunni Strandbúnaður á
Grand hóteli Reykjavík en þar
mun Magnús Ásgeirsson, sölu-
stjóri á Íslandi, halda fyrirlestur
um loftun í sjókvíum.
Vakið athygli víða um heim
Leiðandi fyrirtæki í fiskeldi á Miðjarðarhafssvæðinu fjárfesti nýlega í loftunarkerfi frá Vaka
Pentair fyrir eina stóra fiskeldisstöð sína. Kerfið bætir vatnsgæði til muna í allri kvínni.
“Búnaðurinn okkar hefur vakið talsverða athygli víðsvegar um heim,” segir
Júlíus B. Bjarnason, sölustjóri Evrópu hjá Vaka Pentair. MYND/ERNIR
Í kynningarbæklingi fyrir komandi ráðstefnu kemur fram að Strandbúnaður er samheiti
yfir atvinnugreinar sem tengjast
nýtingu land- og/eða sjávargæða
í og við strandlengju landsins,
hvort sem um ræktun eða eldi er
að ræða. Hugmyndin með stofnun
Strandbúnaðar er að ná saman á
einum stað þversniði af greininni
til að vinna að framförum og sókn.
Innan þessa hóps eru þeir sem
starfa við þörungarækt, skeldýra-
rækt, seiðaeldi, matfiskeldi, sölu
og markaðssetningu, fóðurfram-
leiðendur, tækjaframleiðendur og
aðrir þjónustuaðilar, rannsókna-
stofnanir, menntastofnanir, ráðu-
neyti og stofnanir þeirra.
Strandbúnaður ehf. mun halda
ráðstefnu í mars á hverju ári þar
sem fjallað er um mikilvæg við-
fangsefni á sviði fiskeldis, skeldýra-
og þörungaræktar. Eru bundnar
vonir við að ráðstefnan verði
uppspretta hugmynda og hvatning
til góðra verka. Í tengslum við
ráðstefnu er gert ráð fyrir að halda
aðalfundi samtaka, námskeið,
kynningafundi og fá þannig fjölda
manns innan greinarinnar á
Strandbúnaðarvikuna.
Við val á stjórn félagsins er
leitast við að hún endurspegli sem
best starfsemi strandbúnaðar.
Einn fulltrúi er frá þjónustufyrir-
tækjum, einn frá opinberum aðila,
tveir frá fiskeldisfyrirtækjum,
einn frá skeldýrarækt og einn frá
þörungaræktendum. Enginn situr
samfellt lengur en tvö ár í stjórn
Strandbúnaðar. Það er gert til að
tryggja að sjónarmið sem flestra
innan greinarinnar nái fram og
stöðugt komi inn aðilar með nýjar
hugmyndir og tengingar.
Á aðalfundi Strandbúnaðar þann
20. mars verða nýir aðilar kosnir í
stjórn vettvangsins.
Stuðla að faglegri og
fræðandi umfjöllun
Tilgangur með stofnun Strandbúnaðar ehf. er að stuðla
að faglegri og fræðandi umfjöllun um strandbúnað og
styðja þannig við menntun, rannsóknir, þróun og stefnu-
mótun greinarinnar. Félagið er ekki hagsmunasamtök
einstakra hópa og vinnur ekki að hagsmunagæslu.
Strandbúnaður ehf. mun halda ráðstefnu í mars á hverju ári þar sem fjallað
er um mikilvæg viðfangsefni á sviði fiskeldis, skeldýra- og þörungaræktar.
Grand Hótel Reykjavík
21.-22. mars
Skráning fer fram á www.strandbunadur.is
Fimmtudagurinn 21. mars
Föstudagurinn 22. mars
Heiti málstofa og námskeiðs:
• Umhverfis- og öryggismál í sjókvíaeldi
• Þróun í fiskeldi
• Framfarir í laxeldi
• Þörungarækt á Íslandi – Tækifæri í framtíðinni eða
iðnaður dagsins í dag?
• Salmon Farming in the North Atlantic
• Algae Culture Extension Short-course
Heiti málstofa:
• Meginstraumar í strandbúnaði: Tækifæri til vaxtar
• Vinnsla, flutningur og markaðssetning eldisfisks
• Áskoranir og tækifæri í skeldýrarækt á Ísland
• Tækniþróun – Landeldi
• Tækniþróun – Hafeldi
Stærsti árlegi vettvangur allra sem starfa í strandbúnaði
Afhending gagna 09:00
www.strandbunadur.is
4 KYNNINGARBLAÐ 2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RÍSLENSKUR STRANDBÚNAÐUR
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
8
-F
E
1
C
2
2
9
8
-F
C
E
0
2
2
9
8
-F
B
A
4
2
2
9
8
-F
A
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K