Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 22
 Dúmbó og öll hin dýrin Vinsælt er að gera kvikmyndir um dýr. Sum geta talað á meðan önnur drýgja hetjudáðir. Fíllinn Dúmbó birtist í lok mars og sjálfur Konungur ljónanna, Simbi, kíkir í bíó í sumar og því um að gera að rifja upp nokkrar stórgóðar dýramyndir. Finding Nemo (2003). Myndin sem varð til þess að öll börn vildu fá sér trúðafisk þrátt fyrir að myndin fjallaði einmitt um að Nemó væri tekinn frá heimkynnum sínum. Jaws (1975). Hákarlinn ógurlegi birtist heiminum á hvíta tjaldinu og varð til þess að allir óttuðust hákarla og gera nánast enn. The Birds (1963) Það er vin- sælt að henda dýrum inn í hrollvekjur eins og Stephen King gerði svo oft. Fuglamynd Hitchcocks gerði marga hrædda við óvænta hegðun fugla. The Black Stallion (1979). Ó, þvílík klassík. Fagri Blakkur er fallegasti hestur sem riðið hefur á þessari jörð og hefur verið mörgum inn- blástur í alls kyns listsköpun enda magnað ævintýri. Bambi (1942). Hér eru orð óþörf. Endirinn sem breytti mannkyninu – svona nánast. Free Willy (1993). Íslenska kvikmyndastjarnan Keikó skein þarna skært og endirinn þegar hann flýr út í villta náttúru fær jafnvel hörðustu menn til að háskæla. Stórkostleg mynd. Framleiðsluferli Platinum-hundafóðursins er einstakt.„Kjötið eru hakkað og hitað varlega í eigin soði upp að 95°C. Þá er það látið kólna í soðinu og víta- mínum, olíu og fitu bætt við eftir á við stofuhita. Með því móti er hægt að ábyrgjast hámarksnýtingu næringarefna og að hundurinn fái fóður sem er líkast því sem hann fengi úti í villtri náttúrunni,“ útskýrir Sigrún Valdimarsdóttir, eigandi Platinum Pro ehf. sem flytur inn þýskt hágæða hunda- fóður frá Platinum. Platinum-hundafóðrið er fyrir alla hunda. Það er sérstaklega fram- leitt til að fullnægja næringarþörf hunda og dýralæknar um veröld víða mæla heilshugar með því. „Fóðrið er þurrkað og varfærnis- lega umlukið stofuhita svo hið frábæra bragð og prótíninnihald varðveitist vel. Í fóðrinu eru engin aukefni, allt hráefni er náttúrulegt og er K1-vítamíni bætt við,“ upp- lýsir Sigrún. Platinum-hundafóðrið er ein- göngu matreitt úr kjöti sem er ætlað til manneldis. „Hundafóður er yfirleitt búið til úr hátt í 70 prósent korni og litlu magni af kjötmjöli. Fram- leiðsluferli venjulegs þurrfóðurs krefst hás þrýstings og hita upp að 140°C, en það veldur skaða á prótínum og kolvetnum, nátt- úruleg gæði minnka og meltingin verður erfiðari,“ útskýrir Sigrún og vegna framleiðsluferlis á venjulegu hundaþurrfóðri verða bitarnir þaktir sterkju. „Bitarnir dvelja þá lengi í maganum eða þar til sterkjan brotnar loks niður. Það hefur áhrif á meltingarferlið og eykur líkur á uppblásnum maga. Þess vegna hentar Platinum vel fyrir hunda sem eru með ofnæmi þar sem í fóðrið er hvorki notað erfðabreytt korn né erfðabreytt hrísgrjón.“ Djúsí bitar úr alvöru kjöti Hundafóðrið frá Platinum hefur slegið í gegn hjá íslenskum hunda- eigendum sem og hundunum sjálfum. „Hundarnir elska Platinum enda er hver máltíð veisla með djúsí bitum úr fjölbreyttum réttum sem matreiddir eru úr náttúru- legu, hágæða hráefni. Hundar eru kjötætur og vitaskuld er langbest að fóðra þá á hráu kjöti en Platinum er án efa næstbesti kosturinn á eftir hráfóðri,“ segir Sigrún. Platinum hentar líka sérstaklega vel matvöndum hundum, þeim sem eru með viðkvæman maga og/eða þjást af húð- og feldvandamálum. „Með Platinum verður meltingin hraðari, fóðrið fer hratt í gegnum magann og niður í þarmana þar sem upptaka næringarefnanna á sér stað. Það er líka óneitanlega góður kostur hvað hundakúkurinn verður fastur og vel mótaður af Platinum-hundafóðrinu og auðvelt að hirða upp eftir þá,“ segir Sigrún. Fjölbreyttur matseðill Platinum-hundafóðrið er einstakt þegar kemur að ferskleika og nátt- úrulegu hráefni. „Í þurrfóðrinu bjóðum við upp á kjúkling, lamb og hrísgrjón, Iberico-grísakjöt og í apríl bætist við dýrindis nautakjöt. Iberico- fóðrið er glútenfrítt fyrir hunda sem eru með glútenóþol. Platinum er líka með hvolpafóður framleitt úr kjúklingi, sem og næringarríkt hundanammi í stöngum og litlum bitum sem enginn hundur fær staðist,“ segir Sigrún. Í Platinum-blautfóðri er kjöthlut- fallið enn hærra, eða 83 prósent. „Þegar maður opnar fernu af blautmat ilmar maturinn eins og paté. Við erum með sjö bragð- tegundir af úrvals og gómsætum kjöt- og fiskréttum og er hægt að fá blautmatinn ýmist í 375 g fernum eða 4x100 g dollum,“ segir Sigrún. Platinum-hundafóðrinu er pakkað í 1,5 eða 5 kílóa ál- eða plastpakkningar sem varðveita ilm og bragð vel, ásamt því að halda fóðrinu fersku. „Fóðrinu er pakkað strax eftir framleiðslu en ekki safnað saman í síló. Það kemur í veg fyrir að maurar eða önnur skordýr komist í fóðrið,“ upplýsir Sigrún. Burt með tannsteininn Tannheilsa hunda er í öndvegi hjá Platinum Pro sem býður upp á náttúrulegt tannhreinsiefni til að fjarlægja tannstein. „Tannsteinn er vandamál hjá hundum, ekki síst smáhundum þar sem mataragnir festast á milli tannanna og geta valdið tannsteini og fleiri kvillum út frá lélegri tann- hirðu,“ útskýrir Sigrún sem býður upp á tannsprey og tanngel fyrir hunda. „Sumir hundar eru hræddir við spreyið og þá hægt að nudda geli á tennur þeirra og gefa þeim hvorki að éta né drekka í hálftíma áður og á eftir. Hægt er að fyrirbyggja tann- stein með reglulegri tannhreinsun en til að vinna á tannsteini er tannhreinsiefni notað kvölds og morgna í nokkrar vikur, eða þar til tannsteinninn er horfinn.“ Platinum fóðrið fæst á platinum.is, í Dekurdýrum á Dalvegi 18 í Kópavogi og hjá Dýralækna- stofu Suðurnesja á Fitjabakka 1b í Reykjanesbæ. Frí heimsending og sama verð um land allt. 100 pró- sent endurgreiðsla innan 100 daga ef hundinum líkar ekki við fóðrið eða það stenst ekki væntingar kaupandans. Hægt er að fá fríar prufur. Sími 8626969. Netfang: platinum@platinum.is Veisla fyrir hamingjusama hunda Platinum-hundafóðrið líkir eftir næringarþörf úlfa sem lifa í villtri náttúru og er eina hundafóðrið sem inniheldur 70 prósent ferskt kjöt. Hver einasta máltíð er gómsæt, holl og saðsöm. Sigrún Valdi- marsdóttir segir hunda elska hunda- matinn frá Platinum. MYND/ERNIR 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 2 0 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 9 -0 C E C 2 2 9 9 -0 B B 0 2 2 9 9 -0 A 7 4 2 2 9 9 -0 9 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.