Fréttablaðið - 20.03.2019, Blaðsíða 33
Ef þú fyllir rútuna
af hæfileikaríku
fólki þá þarftu ekki alltaf að
vera með fyrirfram ákveð-
inn endapunkt. Þið lendið á
góðum stað og leiðin þangað
verður skemmtileg.
Ingvi Jökull Logason, framkvæmda-
stjóri H:N Markaðssamskipta
Ingvi Jökull Logason er framkvæmdastjóri H:N Markaðssamskipta sem á nær 30 ára rekstrarsögu að baki. Stofan hreppti á dögunum Áruna, árangursverðlaun ÍMARK,
í sjöunda skipti af þeim ellefu sem
hún hefur verið veitt. Ingvi segir
mikla grósku í mörgum þáttum
markaðssamskipta og tækifærin
séu á hverju strái.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Algerlega ófyrirsjáanleg. Engir
tveir dagar eru eins. Hvort sem það
tengist börnunum og áhugamálum
þeirra eða vinnunni og þeim áskor
unum sem þarf að mæta þar þá get
ég aldrei gengið að því vísu að eiga
tvo samfellda daga eins. Byrja þó
ávallt á að fagna því að vakna þann
morguninn.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mér finnst skemmtilegast að
prófa hluti – reyna eitthvað sem
ég ekki kann og jafnvel get ekkert
í. Mig langar að horfa á sjálfan mig
sem ævintýrabarn sem er alltaf til í
allt – þó raunveruleikinn sé örugg
lega ekki eins djarfur og sögurnar
sem ég segi. Ég er til í að prófa flest.
Það er þó öllu oftar að ég er að gera
þetta klassíska, fylgja íþróttum
barnanna, skíði, boltaíþróttir
(horfa meira en spila núorðið),
mótorhjól, rækt og eitthvað voða
lega miðaldra strákalegt milli þess
sem dóttir mín passar að ég hafi
kvenlega tengingu með áhuga
málum sínum.
Hvaða bók ertu að lesa eða last
síðast?
Bókin sem ég er að lesa núna er sú
bók sem ég hef oftast lesið um ævina.
Advertising Principles and Pract
ice 11th Editition. Ég er í ritstjórn
þessarar bókar sem er mest kennda
kennslubók í auglýsingafræðum í
Bandaríkjunum. H:N Markaðssam
skipti hafa verið með „case study“
um áhrifaríkar auglýsingar í síðustu
sex útgáfum og ég hef verið ráðgef
andi um innihald og uppfærslur.
Hvers konar stjórnunarhætti hef-
urðu tileinkað þér og hvers vegna?
Ég sæki í frekar f latt skipulag á
mínum fyrirtækjum, frekar þunna
yfirstjórn og vinna frekar með sjálf
stæðu fólki sem getur tekið af skarið
og lagt til hluti sem hægt er að sam
þykkja eða koma með ábendingar
um betrumbætur. Nálguninni
mætti lýsa svo: Ef þú fyllir rútuna
af hæfileikaríku fólki þá þarftu
ekki alltaf að vera með fyrirfram
ákveðinn endapunkt. Þið lendið á
góðum stað og leiðin þangað verð
ur skemmtileg. Ég get ekki sagt að
þetta sé stjórnunarháttur sem yrði
kenndur í skólabók og eflaust ekki
hægt að kenna, en hann hentar mér
mjög vel og ég beiti honum í flestum
fyrirtækja minna.
Hver hefur verið helsta áskorun
H:N síðustu misseri?
Stækkun og metnaður fyrir að
gera eitthvað nýtt. H:N hefur verið
að stækka og klárlega er stækkun
áskorun. En við á H:N skoruðum
líka á sjálf okkur að gera eitthvað
nýtt og ákváðum að ráðast í upp
byggingu á sýningu sem nýtir
nýjustu tækni til að segja frá Sturl
ungatímabilinu, sýningin 1238 The
Battle of Iceland er afraksturinn.
Þar erum við að nýta sýndarveru
leika, AR og VR, til að sýna og segja
frá menningar og sögulegum við
burði. Ótrúlega spennandi verkefni
og hefur verið mikil áskorun að
vinna alla fasa þess frá fjármögnun
upp í framkvæmd.
Hver er helsta áskorunin fram
undan?
Að miðla stærð þekkingarinnar.
H:N hefur að hluta til siglt svolítið
undir radar síðastliðin ár. Rekstur
hefur verið góður og við höfum
verið með verkefni sem krefjast
mjög stórrar þekkingar en ekki
þurft mikinn mannskap til að
mæta þeim verkefnum þar sem við
höfum haft mjög fjölþætta þekk
ingu uppsafnaða í fáum hausum.
Samhliða stækkuninni sem við
erum að ganga í gegnum núna er
mikilvægt að ná að miðla því sem
við kunnum, þekkjum og getum.
Við erum árangursauglýsinga
stofa – sú auglýsingastofa sem
oftast hefur unnið verðlaun fyrir
árangursríkustu auglýsingaher
ferðir á Íslandi.
Eru breytingar eða ný tækifæri
fram undan á þessum markaði?
Auglýsingastofur hafa alltaf
haft tækifæri til að vera mótandi
og velja sér hvaða öldur þær vilja
brima. Það er mikil gróska í svo
mörgum þáttum markaðssam
skipta að ég sé tækifæri á hverju
strái. Hvert og eitt þeirra er nóg til
að reka fyrirtæki eða bæta vel við
núverandi. Ég sé það sem jákvætt
enda tel ég að íslenskar stofur þurfi
fjölbreytileika til að lifa af sökum
stærðar markaðarins. Það er samt
ekki nauðsynlegt að allir geri það
sama eða nálgist markaðinn eins.
Samsetning rútunnar okkar á H:N
í dag er þess valdandi að við erum
að snerta á fjölbreyttum tækifærum
en horfum mest á tækninýjungar í
blönduðum raunveruleika því sú
tækni mun, til að vitna í Tim Cook
hjá Apple, „mun breyta öllu“.
Blandaður veruleiki mun breyta öllu
Nám:
Markaðssamskiptafræðingur frá
University of West Florida.
Störf:
Framkvæmdastjóri H:N Markaðs-
samskipta, stjórnarformaður
Sýndarveruleika efh. framleiðanda
sýningarinnar 1238 The Battle of
Iceland.
Fjölskylduhagir:
Giftur Hrefnu B. Hallgrímsdóttur,
leikara og leikstjóra, faðir Bjarts
Jörfa (16 ára), Dags Mána (14 ára) og
Snæfríðar Sólar (10 ára).
Svipmynd
Ingvi Jökull Logason
H:N réðst í uppbyggingu á sýningu sem nýtir sýndarveruleika til að segja frá Sturlungatímabilinu. Verkefnið var mikil áskorun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Dynamic Technology Equipment (DTE) er reiðubúið að
sækja inn á álmarkaðinn með nýjan
búnað sem efnagreinir ál samstund
is með ljósgeislatækni. Fyrirtækið
er komið í viðræður við nokkra af
stærstu álframleiðendum heims um
innleiðingu búnaðarins.
„Ál er ekki bara ál. Framleiðendur
þurfa að uppfylla ákveðnar gæða
kröfur og í dag er það gert þannig að
sýni eru tekin handvirkt á mörgum
stigum framleiðslunnar. Fljótandi
áli er hellt í mót, látið storkna og
síðan greint á rannsóknarstofu.
Þessi sýni skipta hundruðum á
hverjum degi í meðalstóru álveri,“
segir Kristján Leósson, þróunar
stjóri DTE, í samtali við Markað
inn. „Tæknibúnaðurinn sem við
hönnuðum skýtur leisigeislum á
álbráðina og efnagreinir hana sam
stundis.“
Búnaðurinn getur þannig sparað
álverum marga snúninga og gert
framleiðsluferlið öruggara þar sem
mannshöndin þarf ekki að koma
nálægt álbráðinni til að unnt sé
að efnagreina hana. Þá er hægt að
greina álið oftar í framleiðslunni
sem getur haft áhrif á það hvernig
framleiðsluferlið er hugsað.
„Þessi búnaður getur nýst í gegn
um allt ferlið og gegnum alla fram
leiðslukeðjuna. Allt frá frumfram
leiðslu áls og til endurvinnslu. Til
dæmis er álið sem er framleitt hér
á landi að mestu flutt út til annarra
álvera sem búa til sérhæfðari málm
blöndur til að gefa álinu ákveðna
eiginleika. Álið er brætt og blandað
öðrum efnum þannig að þar á bún
aðurinn okkar einnig heima. Svo
kemur hann sér vel þegar greina
þarf álið til endurvinnslu,“ segir
Kristján.
DTE hefur átt í góðu samstarfi
við Norðurál um verkefnið og gerðu
fyrirtækin samning sín á milli um
notkun búnaðarins í álveri Norður
áls á Grundartanga. DTE hefur auk
þess notið góðs af samvinnu við
Nýsköpunarmiðstöð Íslands um
þróun búnaðarins undanfarin ár.
„Viðræður eru nú farnar af stað
við nokkra útvalda aðila og við
munum vinna að því næsta árið að
þróa lausnir sem sniðnar verða að
þörfum mismunandi viðskiptavina.
Við ætlum að byrja með „pilot“
leigusamningum til þess að komast
hratt inn á markaðinn og það þýðir
að við þurfum að fjármagna smíði
tækjanna. Það eru viðræður í gangi
um fjármögnun og við stefnum að
því að klára þær innan tveggja til
þriggja mánaða,“ segir Kristján. – tfh
Íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í viðræðum við fjárfesta og álrisa
Búnaður DTE efnagreinir ál samstundis með ljósgeislatækni.
Kristján
Leósson,
þróunarstjóri
DTE.
9M I Ð V I K U D A G U R 2 0 . M A R S 2 0 1 9 MARKAÐURINN
2
0
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
9
-1
1
D
C
2
2
9
9
-1
0
A
0
2
2
9
9
-0
F
6
4
2
2
9
9
-0
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K