Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 6
Sú spurning
vaknar því óneitan-
lega hvort stjórnendur
Íslandspósts beri ekki sjálfir
ábyrgð á því tapi, sem verið
hefur á Kínasendingunum
og skattgreiðendur eru nú
beðnir að fjármagna.
Ólafur
Stephensen,
framkvæmda-
stjóri Félags
atvinnurekenda
VIÐSKIPTI Allt bendir til að við-
bótargjald bætist við f lestar póst-
sendingar sem koma hingað til
landsins. Samkvæmt Íslandspósti
verður gjaldið um 600 krónur að
meðaltali. Alþingi stefnir að því að
afgreiða sem fyrst frumvarp sem
heimilar viðbótargjaldið, en því er
ætlað að stöðva linnulaust tap ÍSP
á pakkasendingum frá útlöndum.
Samkvæmt tölum Póst- og fjar-
skiptastofnunar nam tapið 731
milljón árið 2017. Samkvæmt starfs-
þáttayfirliti stofnunarinnar stafaði
tapið einkum af óhagstæðum enda-
stöðvasamningum sem binda hend-
ur ÍSP. Líkt og fram hefur komið
lánaði ríkið ÍSP 500 milljónir í
fyrra til að mæta bráðum lausafjár-
vanda. Verði frumvarpið að lögum
fyrir maí er gert ráð fyrir að ÍSP geti
fengið inn 400 milljónir króna frá
neytendum strax á þessu ári.
Í síðustu viku stytti umhverfis-
og samgöngunefnd umsagnarfrest
í málinu. Umsagnir bárust frá fimm
aðilum af þeim 39 sem beðnir voru
um umsögn. Samtök verslunar
og þjónustu vilja að frumvarpið
verða samþykkt til að jafna sam-
keppnisstöðu innlendrar verslunar.
„Eftir því sem það dregst að íslensk
stjórnvöld bregðist við eiga innlend
verslunarfyrirtæki erfiðara með að
takast á við síharðnandi alþjóðlega
samkeppni,“ segir í umsögn SVÞ.
Sa m keppn i s ef t i rl it ið ger i r
athugasemd við það sjónarmið í
sinni umsögn. „Skal á það bent að
hætt er við að slík styrking sam-
keppnisstöðu sem að væri stefnt
yrði á kostnað þess samfélagshóps
sem hefur lægstar tekjur. Sá hópur
ferðast almennt sjaldnar til útlanda
og ver hærra hlutfalli ráðstöfunar-
tekna sinna í fatnað,“ segir í umsögn
Samkeppniseftirlitsins.
Neytendasamtökin benda á að
engin gögn liggi fyrir um hvernig
umfang taps ÍSP sé reiknað út. Á
meðan það lægi ekki fyrir væri ekki
hægt að meta hvort það væri nær-
tækara að hagræða í rekstri en að
„opna á heimild til að gera gjaldskrá
og láta neytendur brúa bilið“.
Félag atvinnurekenda segir tap
vegna „Kínasendinganna“ aðeins
vera hluta af tapinu á samkeppnis-
rekstri ÍSP innan alþjónustu. Ekkert
standi í vegi fyrir að ÍSP rukki fyrir
raunkostnað. „Sú spurning vaknar
því óneitanlega hvort stjórnendur
Íslandspósts beri ekki sjálfir ábyrgð
á því tapi, sem verið hefur á Kína-
sendingunum og skattgreiðendur
eru nú beðnir að fjármagna,“ segir
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, í
umsögn FA.
Þar segir jafnframt að sterkar vís-
bendingar um að kostnaður sam-
keppnisrekstrar hafi verið ranglega
færður innan alþjónustu og er það
mat að strax geti myndast endur-
greiðslukrafa á hendur ÍSP vegna
oftekinna gjalda af erlendum send-
ingum. arib@frettabladid.is
Flýta frumvarpi um
erlendar sendingar
Frumvarpi um erlendar póstsendingar er flýtt í gegnum Alþingi til að reyna
að stöðva tap Íslandspósts. Umsagnaraðilar gera alvarlegar athugasemdir við
frumvarpið. Viðbótargjald á póstsendingar erlendis frá gæti orðið 600 krónur.
Um 600 króna viðbótargjald bætist við á flestar póstsendingar sem koma hingað til lands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
VIÐSKIPTI Bandaríski vogunar-
sjóðurinn Taconic Capital keypti í
gær tæplega fimm prósenta hlut í
Arion banka fyrir liðlega 6,5 millj-
arða króna. Seljandi hlutabréfanna
var eignarhaldsfélagið Kaupþing,
stærsti hluthafi bankans.
Taconic Capital, sem átti fyrir
kaupin 9,99 prósenta hlut í Arion
banka, keypti samanlagt 90,7
milljónir hluta í bankanum sem
jafngildir tæplega fimm prósenta
hlut miðað við útistandandi hlutafé
bankans. Voru kaupin gerð á geng-
inu 72 krónur á hlut og var kaup-
verðið því ríf lega 6,5 milljarðar
króna.
Til samanburðar stóð gengi
hlutabréfa í bankanum í 77,4 krón-
um á hlut eftir lokun markaða í gær.
Sem kunnugt er gekk Kaupþing
frá sölu á um tíu prósenta hlut í
Arion banka, 200 milljónum hluta
að nafnverði, í síðustu viku fyrir
samtals um fjórtán milljarða króna.
Fóru þau viðskipti fram á genginu
70 krónur á hlut.
Rúmlega 86 milljónir hluta voru
seldar fjárfestum í gegnum Kaup-
höllina á Íslandi fyrir samtals um
sex milljarða króna en afgangurinn,
114 milljónir hluta, var seldur fjár-
festum í gegnum kauphöllina í Sví-
þjóð.
Eins og fram kom í Markaðinum
fyrr í vikunni keypti fjárfestinga-
félagið Stoðir, sem er í meirihluta-
eigu meðal annars Jóns Sigurðs-
sonar, Einars Arnar Ólafssonar,
Magnúsar Ármann og Trygginga-
miðstöðvarinnar, um þriðjung af
þeim tíu prósenta hlut sem Kaup-
þing seldi í síðustu viku.
Í kjölfar kaupanna er fjárfest-
ingafélagið orðið stærsti íslenski
fjárfestirinn í hluthafahópi Arion
banka með um 4,5 prósenta hlut af
útistandandi hlutafé bankans.
– hae, kij
Taconic keypti fimm prósenta hlut í
Arion banka fyrir liðlega 6,5 milljarða
Frank Brosens,
stofnandi og
eigandi vogunar-
sjóðsins Taconic
Capital.
Fjármál M.Fin.
Fjármál fyrirtækja
Mannauðsstjórnun
Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti
Nýsköpun og viðskiptaþróun
Stjórnun og stefnumótun
Reikningsskil og endurskoðun M.Acc.
Skattaréttur og reikningsskil
Verkefnastjórnun
Viðskiptafræði
Þjónustustjórnun
Fjölbreytt meistaranám við
Viðskiptafræðideild
vidskipti.hi.is
Umsóknarfrestur er 15. apríl
Vertu með í
páskaleik Góu
á goa.is!
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
F
-8
4
6
C
2
2
C
F
-8
3
3
0
2
2
C
F
-8
1
F
4
2
2
C
F
-8
0
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K