Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2019, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 13.04.2019, Qupperneq 12
HEILBRIGÐISMÁL Bergið Head space verður opnað í maí í Reykjavík en það er þverfaglegt móttöku- og stuðningsúrræði fyrir fólk undir 25 ára aldri. Í gær ákvað ríkisstjórnin að veita samtals 60 milljónir til verkefnisins. Sigurþóra Bergsdóttir stofnaði úrræðið sem fylgir hugmynda- fræði lágþröskuldaþjónustunnar Head space í Ástralíu og Danmörku. Sonur Sigurþóru, Bergur Snær, svipti sig lífi í kjölfar misnotkunar og áfalla fyrir þremur árum. Hún fékk húsnæðið að Suðurgötu 10 af hent fyrir nokkrum dögum. „Á hverjum degi þegar ég geng hér inn, þá kviknar bros,“ segir Sigurþóra sem segist afar þakklát fyrir fjár- stuðning ríkisstjórnar og Reykja- víkurborgar. „Ég finn að það sem við erum að gera er bæði rétt og nauðsynlegt. Fimm ráðuneyti koma að fjárveitingunni, það er held ég fáheyrt og sýnir að ríkisstjórnin ætlar sér að bæta geðheilbrigðis- þjónustu við ungt fólk,“ segir hún. Upp lýst var um fjár veitinguna á mál þingi Geð hjálpar og Bergsins á Grand Hóteli í gær. Sálfræðingurinn Patrick McGorry, stofnandi Head- space í Ástralíu, er staddur á Íslandi og lýsir reynslu sinni af snemm- tækri íhlutun. „Ungt fólk hefur brýnustu þörf- ina fyrir geðheilbrigðisþjónustu, hins vegar hefur það í gegnum tíðina haft einna minnstan aðgang að henni,“ segir Patrick um ástæðu þess að hann stofnaði Head space. Markmið hans var að auka þjónustu við ungt fólk og sníða hana betur að þörfum þess. „Þetta er lágþröskuldaþjónusta,“ segir Patrick og segir mikilvægt að ungt fólk geti leitað eftir þjónustu án tillits til þess hvort vandamálið er stórt eða lítið. Þá sé áríðandi að þjónustan sé ungu fólki að kostn- aðarlausu, það hafi sjálft áhrif á það hvernig hún er boðin fram og að hún sé studd sérfræðiþekkingu. „Umhverfið þarf að vera aðlað- andi fyrir ungt fólk, það á að bjóða það velkomið,“ segir Patrick og seg- ist sjá úrræðið fyrir sér nánast eins frjálsleg og kaffihús þótt það sé heil- brigðisþjónusta. Patrick hefur verið harðorður í garð stjórnvalda víða um heim og sagt aðskilnaðarstefnu ríkja í heil- brigðisþjónustu þegar kemur að fjárveitingum til geðheilbrigðis- mála. „Já, það er augljóst. Meðferð við geðsjúkdómum er vanrækt í heilbrigðiskerfinu þrátt fyrir að vera miklu mikilvægari bæði í samfélagslegum og efnahagslegum skilningi en til dæmis krabbameins- meðferð. Þetta varðar mannréttindi og þarna er verið að mismuna innan heilbrigðiskerfisins. Reynsla sjúkl- inga er sú að það ríki aðskilnaðar- stefna,“ segir Patrick. Hvað finnst honum vera ákjósan- leg stefna í geðheilbrigðismálum? „Heildstæð og samfelld þjónusta á öllum stigum veikinda, sem er fjármögnuð til jafns við þjónustu vegna líkamlegra veikinda, og samfélagsþjónusta sem er auðvelt að nálgast,“ segir Patrick og leggur mikla áherslu á að hlustað sé á reynslu fólks með geðsjúkdóma. Það fólk þurfi að hafa mikil áhrif á þjónustuna. kristjanabjorg@frettabladid.is Ætti að vera jafn auðvelt að fá hjálp og að fara á kaffihús Bergið, stuðningssetur fyrir ungt fólk, verður rekið í anda Headspace-hugmyndafræðinnar sem byggir á því að ungt fólk geti leitað sér aðstoðar án skilyrða og því sé tekið af hlýju og skilningi. Ríkisstjórnin veitti sextíu milljónir til verkefnisins í gær. Húsnæði fyrir stuðningssetrið hefur fengist að Suðurgötu. Tilkynnt var um fjárstuðning ríkisstjórnar á málfundi Geðhjálpar á Grand Hóteli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Bergið Headspace er lágþrösk uldaþjón usta sem bygg ir á ástr ölsku úrræði fyr ir ungt fólk. Slík um miðstöðvum hef ur meðal ann ars verið komið upp í Dan mörku. Hug mynda­ fræðin bygg ist á því að ungt fólk á aldr in um 12 til 25 ára geti leitað sér aðstoðar við áföllum eða hvers kyns erfiðleikum sem valda því hugarangri. 19.995 POLAROID MINT LJÓSMYNDAPRENTARI • Prentaðu myndirnar úr símanum á einfaldan hátt • Bluetooth og NFC, það verður ekki einfaldara • ZINK ljósmyndapappír, stærð 5,2x7,5cm 8.995 verð frá: sjáðu fleiri flottar fermingargjafir elko.is/fermingargjafir 39.995 RAZER LEIKJAVÖRUR • Vandaðar leikjavörur frá Razer • Fjölbreytt úrval í boði SAMSUNG GALAXY WATCH ACTIVE • Góður skjár með Always On Display • Vatnshelt að 50metrum, innbyggt GPS • Rafhlaða sem endist og endist • Virkar með Strava, Spotify, o.fl. forritum it A V c e G R A N D I – L I N D I R – S K E I FA N – E L K O . I S 46.995 BOSE QUIETCOMFORT 35 II • Bluetooth, NFC, 3,5mm jack • Allt að 20 klst. rafhlöðuending • Active Noise-Canceling DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur úrskurðaði í gær að Sveinn Andri Sveinsson, annar skiptastjóra yfir þrotabúi WOW air, þyrfti ekki að víkja eins og Arion banki hafði farið fram á. „Ég taldi þessa niðurstöðu vera borðleggjandi, þannig að ég hef ekkert látið þetta trufla mig,“ segir Sveinn Andri.  Til að koma í veg fyrir frekari ágreining hafi verið ákveðið að hinn skiptastjórinn, Þorsteinn Einarsson, muni sjá að mestu um öll samskipti við Arion banka hvað varðar uppgjör þrotabúsins. Arion banki, sem telur sig vera einn stærsta kröfuhafa þrotabúsins, byggði kröfu sína á því að Sveinn Andri væri vanhæfur vegna starfa sinna sem lögmaður Sunshine Press Productions og Datacell gegn Val- itor. Í úrskurði héraðsdóms segir að Arion banki hafi ekki leitt í ljós nein atriði í tengslum við umræddan málarekstur sem leitt geti til þess að Sveinn Andri teljist vanhæfur til að vera skiptastjóri WOW. Sveinn Andri segir vinnuna ganga vel en af nógu sé að taka. „Það er komið inn mikið magn krafna og það er verið að ná utan um eignir. Fyrstu skrefin í svona eru alltaf að ná utan um þetta, tryggja hagsmuni og eignir og jafnframt að halda þétt utan um þær kröfur sem koma.” Um sé að ræða afar óvenjulegt þrotabú. „Það kemur mikið magn krafna frá farmiðakaupendum sem hafa ekki getað notað miðana sína. Það er búið að búa til ákveðið kerfi í kringum þær kröfur,“ segir Sveinn Andri. – sar, la Verður áfram skiptastjóri Sveinn Andri Sveinsson verður áfram annar skiptastjóra WOW. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 4 -2 0 1 9 1 1 :2 4 F B 1 2 8 s _ P 1 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C F -7 F 7 C 2 2 C F -7 E 4 0 2 2 C F -7 D 0 4 2 2 C F -7 B C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.