Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 18
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Ekki fylgir
sögunni
hvers vegna
það er slík
þolraun fyrir
kjörna
fulltrúa að
ganga stuttar
vegalengdir
utandyra og
fá sér frískt
loft í leiðinni.
Nútíminn er trunta
með tóman grautarhaus.
Hjartað það er hrímað
því heilinn gengur laus.
Þótt lag Þursaflokksins, Nútíminn, hafi fyrst heyrst á öldum ljósvakans fyrir fjórum ára-tugum hefur nútíminn lítið breyst. Eftirsókn
eftir vindi feykir okkur hálfmeðvitundarlausum á
áfangastaði hégómans þar sem við drúpum tómum
grautarhausum hokin við stafræn altari og til-
biðjum föður, son og heilagan anda; Google, Fésbók
og Steve Jobs. Við tókum bita af eplinu og vorum
rekin úr Paradís, dæmd til að strita í stafrænni
veröld, yrkja ímyndina plöguð af blygðun um alla
eilífð, amen.
Filter, fótósjopp, stafræn fegrunaraðgerð. Sjáið
mig! Ég er á skíðum í Ölpunum, teygjustökki á Balí.
Við krjúpum við árbakka og störum á spegil-
mynd okkar jafnheltekin og Narkissos sem elskaði
eigin ásjónu svo mikið að hann veslaðist upp og dó.
Áin okkar er Fésbók; sykursæt tálbeita Zucker-
bergs sem sannfærir okkur um að sitja og horfa á
strauminn renna á skjá, á meðan lífið líður hjá.
Ef tré fellur í skógi og enginn býr til myllumerki
um það, heyrist þá hljóð?
Cogito, ergo sum. Ég „pósta“, þess vegna er ég til.
Ég, ég, ég. Sjáið mig! Ég var að hlaupa maraþon, er
að lesa bók.
Við hverfumst í hringi í kringum sjálfið. Sjálf-
hverfa er ferðalag samtímans. Hver er ég? Best að
spyrja Google.
En undir gljáandi yfirborði stafrænnar veraldar,
handan bergmálsklefa fullkomleikans, er ekki allt
sem sýnist.
„Lög eru eins og pylsur – best er að sjá ekki hvern-
ig þau verða til,“ sagði Otto von Bismarck. Fleira en
lög er eins og pylsur. Einstaklingurinn er bjúga sem
Fésbókin flytur á færibandi milli notenda til að
neyta – eina með öllu nema hráum (veruleika). Því
inni í sléttum himnubelg er subbulegur raunveru-
leikinn, óreiða úr óróleika, óöryggi og óhamingju.
Ó, ó, ó!
Truntan hún er taumlaus
og töltir út á hlið.
Sumir eru að síga
úr söðli undir kvið.
Einhverjir verða undir
að gömlum, góðum sið
segir í texta Þursaflokksins. Því það að vera er ekki
lengur nóg. Eða eins og uppgefinn Fésbókar vinur
orðaði það svo vel:
l Þú þarft ekki bara að vera í leikfimi – þú
þarft að vera í formi eins og atvinnumaður.
l Þú þarft ekki bara að vera í góðri vinnu – þú
þarft að vera leiðtogi.
l Þú þarft ekki bara að eiga börn – þau þurfa
að vera framúrskarandi.
l Þú þarft ekki bara að fara í frí – þú þarft að
vera í Víetnam.
l Þú þarft ekki bara að borða hollt – þú þarft
að vera vegan.
l Þú þarft ekki bara að vera vel menntuð/aður
– þú þarft doktorspróf.
l Þú þarft ekki bara að stunda útivist – þú
þarft að vera landvættur.
l Þú þarft ekki bara að eiga fallegt heimili –
það þarf að fylgja nýjustu tískustraumum.
Gakktu inn í daginn, kæri lesandi. Skildu falskan
fullkomleikann eftir í símanum og láttu þér nægja
að vera. En samt: Ekki gleyma að njóta; þér má alls
ekki mistakast að njóta.
Bergmálsklefi
fullkomleikans
Range Rover Sport
Autobiography 2016
Flott eintak af 2016 Range Rover Sport Autobiography til sölu með 340hö SDV8 dísel vél og er
hlaðinn öllum mögulegum aukabúnaði. Radar cruise control, 19 hátalara Meridian surround
hljóðkerfi, 360 myndavél og nálgunarvarar, dráttarkróki, hiti og kæling í sætum, kælir mill
sæta o. fl. Bílinn er metallic hvítur á utan og svartur/brúnn að innan, kemur á 21“ svörtum
felgum og er keyrður um 27.000 km.
Verð 14,9 milljónir
Upplýsingar í síma 891-9408
Engu er líkara en það sé lögmál að rekstur hins opinbera bólgni í sífellu út.Dæmin sem blasa við eru mýmörg. Á kjör-tímabilinu eiga til dæmis að rísa nýjar skrif-stofur Alþingis við Vonarstræti. Þær skulu vera sex þúsund fermetrar og kosta um þrjá
milljarða króna. Mikið er víst lagt upp úr því að innan-
gengt sé fyrir þingmenn milli skrifstofa og fundarher-
bergja Alþingis. Ekki fylgir sögunni hvers vegna það
er slík þolraun fyrir kjörna fulltrúa að ganga stuttar
vegalengdir utandyra og fá sér frískt loft í leiðinni.
Úr stjórnarráðinu berast þau tíðindi að til standi að
byggja við skrifstofur forsætisráðherra í Lækjargötu.
Sómi er að verðlaunatillögunni, þótt sitt sýnist vafalítið
hverjum. Því er þó alveg ósvarað hvers vegna þessa
ógnarviðbót þurfi við húsið sem hýst hefur skrifstofur
forsætisráðherra með myndarbrag frá 1904.
Í því samhengi er rétt að taka undir með sagnfræð-
ingnum Birni Jóni Bragasyni sem bent hefur á að Þjóð-
menningarhúsið, í sinni eilífu tilvistarkreppu, standi
þarna steinsnar frá og henti vel til starfseminnar.
Svo haldið sé áfram að tala um Alþingi og ríkisstjórn,
þá má minna á að aðstoðarmenn hvers ráðherra eru
nú orðnir tveir en lengst af þótti duga að þeir gætu reitt
sig á embættismenn í sínum ráðuneytum. Slíkt gengur
auðvitað ekki lengur enda fjöldi flokksgæðinga á lausu
sem sárvantar lífserindi.
Víkur þá sögu að rekstri Reykjavíkurborgar, en
þar starfa hlutfallslega mun fleiri en hjá nágranna-
sveitarfélögunum þrátt fyrir að stærðinni ætti að fylgja
hagkvæmni og minna starfsmannahald. Útsvar hefur
lengi verið í lögbundnu hámarki, og borgin ætlar meira
að segja að greiða sér arð úr Orkuveitunni til að fá enn
meiri peninga úr að spila.
Reykjavíkurborg hefur sömuleiðis blásið út og lætur
nú til sín taka á mun fleiri sviðum en áður. Borgin
byggir veitingasali og endurreisir bragga. Ágóðans
njóta veitingasalar sem leigja aðstöðuna langt undir
markaðsvirði. Kostnaðaráætlanir virðast að megin-
stefnu gerðar formsins vegna hjá borginni, rétt eins og
hjá ríkinu.
Sé vikið að fyrirtækjum í eigu ríkisins er sagan
nokkurn veginn sú sama. Landsbankinn ætlar að
byggja 16.500 fermetra höfuðstöðvar undir starf-
semi sína og kosta til þess níu milljörðum króna,
þrátt fyrir að bankakerfið sé nú þegar bólgið úr hófi
fram af mannafla, og að fyrirséð sé að plássþörf muni
frekar minnka en aukast með áframhaldandi tækni-
nýjungum.
En áfram skal haldið í eilífri útgjaldabólgu. Svo virðist
sem allir séu seldir undir sömu sök. Ríki, sveitarfélög og
fyrirtæki í eigu ríkisins.
Þannig er það gjarnan þegar sýslað er með annarra
manna fé. Er ekki eðlilegt að velta fyrir sér hvort þrjú
hundruð þúsund manna þjóð þurfi allt þetta umfang og
yfirbyggingu?
Hvar eru stjórnmálamennirnir sem tala fyrir aðhaldi í
ríkisrekstri og treysta sér til að láta gjörðir fylgja orðum?
Bólgulögmálið
1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
F
-6
6
C
C
2
2
C
F
-6
5
9
0
2
2
C
F
-6
4
5
4
2
2
C
F
-6
3
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K