Fréttablaðið - 13.04.2019, Síða 28

Fréttablaðið - 13.04.2019, Síða 28
var að loka af. „Húsið er illa farið að utan og margt er ógert en við erum sæmilega afslöppuð yfir því,“ segir Eva. Þau hafa gert mestallt sjálf, að undanskildum rafmagnsviðgerð- unum. „Síðan höfum við fengið ómetanlega aðstoð frá sveitungum þar sem við höfum strandað,“ tekur hún fram. En hvaða tegund listar fást þau við? „Ég er ekki bundin af neinu einu, en er hrifin af þeim óþrjótandi efnivið sem er til staðar í þessum gömlu húsum,“ segir Eva. „Svo er ég að skoða möguleikana sem lúpínan býður upp á. Peter hefur komið sér upp aðstöðu til járnsmíði sem hann hefur verið að prófa sig áfram með. Hann hefur sótt námskeið bæði á Seyðisfirði og í Tækniskólanum í Hafnarfirði. Síðan fékk hann til afnota gamla smiðju sem langafi minn, Jón Oddsson á Malarási, átti og kom henni í gagnið hér í slátur- húsinu.“ Þau hafa þegar efnt til viðburða í sláturhúsinu. „Við opnuðum í ágúst og buðum sveitungum, gestum og gangandi að njóta með okkur myndlistar, tónlistar, matar og sam- verustunda. Ungur tónlistarmaður, Arnaldur Ingi Jónsson sem kallar sig Dread Lightly, kom fram og móðir mín, Jónína Sigurgeirsdóttir, spilaði á harmóniku. Svo var saga slátur- hússins rifjuð upp með vísnabálki, frásögn og myndbandi,“ lýsir Eva og heldur áfram: „Við höfum líka stað- ið fyrir umræðukvöldi um jarðgerð, þar sem Hafdís Roysdóttir í Svína- felli og Viktoría Gilsdóttir fræddu fólk.“ Í júní verður Eva með sýningu í galleríinu Midpunkt í Kópavogi. Hún er nýkomin úr þriggja vikna útlegð á Seyðisfirði þar sem hún tók þátt í prentvinnustofu á vegum Skaftfells. „Þar var ég að prenta ljós- myndir frá fyrri tíð og gamla papp- íra héðan úr gömlu húsunum með ryði sem litarefni og eggjarauðu sem bindi. Í sumar ætlum við að standa fyrir eins konar víðavangshlaupi á Skeiðarárbrú og á Skeiðarársandi og í haust tek ég þátt í samsýningu í Listasafni Árnesinga. Hin árlega bókakynning Sæmundar verður svo á jólaföstunni í samstarfi við Ung- mennafélagið.“ Nú er mikill ferðamannastraumur um Öræfin. Skyldu þau Eva og Peter ætla að setja skilti upp við þjóðveg og beina umferð til sín? „Fólki er velkomið að hafa sam- band, við tökum með glöðu geði á móti þeim sem hafa áhuga á sögu staðarins, myndlist, járnsmíði, býf lugum eða vilja drekka með okkur kaffi … en ég á ekki von á því að við setjum upp skilti,“ svarar Eva sem segir alltaf þó nokkra koma niður fyrir hamrana yfir sumar- tímann en umferð um flugvöllinn sé ekki teljandi, hann sé þó valtaður einu sinni á ári. Vinna utan heimilis Eins og nærri má geta er umhverfið og veðurfarið á Fagurhólsmýri ólíkt því sem Peter ólst upp í, en hann er ekkert banginn yfir því. „Ég er upp- alinn í skóginum þar sem er skjól- sælt og mikið dýralíf. Hér er víðátta, mikill vindur og tré eru fáséð en ég kann vel við mig og líður vel í lopa- peysu!“ Undanfarin tvö ár hefur Peter séð um akstur í sveitinni fyrir grunn- skólann í Hofgarði. „Ég byrjaði á því að taka að mér leikfimi, mat- reiðslu og stuðningskennslu við skólann, ásamt því að sinna leik- skólastörfum fyrstu tvö árin í skól- anum. Á þessu ári hef ég síðan séð um eldamennsku og skólaakstur, ásamt því að kenna leikfimi,“ lýsir hann en segir ekki alltaf fært á milli bæja í sveitinni vegna hvassveðurs. Eva kveðst undanfarin tvö ár hafa verið deildarstjóri á leikskólanum en á þessu ári minnkað við sig svo nú vinni hún þar tvo daga í viku. Ekki er sjónvarp í litla húsinu þeirra. „Við lesum, spilum og horf- um á bíómyndir og þætti í tölvunni. Mest hlustum við á útvarp eða pod- köst,“ segir Eva. Þegar talið berst að félagslífi telja þau bæði eftir- sóknarvert að vera staðsett fyrir utan hina hefðbundnu hringiðu en viðurkenna að félagslíf í sveitinni sé fábreytt. „Hér eru samt fastir við- burðir sem f lestir mæta á. Margir þeirra eru hluti af skólastarfinu og það hefur verið notalegt að vera beinn þátttakandi í því starfi. Síðan er það bara frumkvæðið sem gildir. Ungmennafélagið er oftast tilbúið til að styðja við þá sem finna upp á einhverri afþreyingu eða skemmt- unum og svo hefur fjallamennskan verið áberandi af l undanfarin ár, bæði sem leið til þess að skapa af komu en einnig sem af þreying þeirra sem búa hér. Nýverið var stofnað hér Klifurfélag Öræfa,“ lýsir Eva. Þau hjúin halda landnáms- hænur og brátt bætast býf lugur í bústofninn enda hefur Peter verið á býflugnanámskeiði hjá Agli Sigur- geirssyni lækni. „Það er heilmikill spenningur hjá okkur að fá þessa 15.000 nýbúa í nágrennið,“ segir hann. En Eva verður fyrir svörum þegar ég spyr hvernig þau sjái sum- arið fyrir sér. „Vonandi náum við að ferðast eitthvað hér innanlands, helst norður eða á Vestfirði, en tím- inn mun að mestu fara í undirbún- ing á næstu viðburðum og áfram- haldandi uppbyggingu hér heima við.“ FÓLKI ER VELKOMIÐ AÐ HAFA SAMBAND, VIÐ TÖKUM MEÐ GLÖÐU GEÐI Á MÓTI ÞEIM SEM HAFA ÁHUGA Á SÖGU STAÐARINS, MYNDLIST, JÁRNSMÍÐI, BÝFLUGUM EÐA VILJA DREKKA MEÐ OKKUR KAFFI … EN ÉG Á EKKI VON Á ÞVÍ AÐ VIÐ SETJUM UPP SKILTI. Fyrir mér var það fjar-lægur æskudraumur að f lytja í sveitina,“ segir Eva Bjarnadóttir á Fagur-hólsmýri í Öræfum og segir það hafa verið að frumkvæði Peters, unnusta henn- ar, að þau fóru að hugsa um þann möguleika fyrir alvöru. Nú búa þau aðeins utan alfara- leiðar, undir hamrabelti rétt við flugvöllinn. Tveir höfðar setja svip á umhverfið, Salthöfði í austri og Ingólfshöfði í suðri. Þarna hafa þau fest kaup á gömlum byggingum kaupfélagsins, verslunarhúsi og sláturhúsi, og hafið endurbætur á því síðarnefnda. Við vesturgafl þess eiga þau nú fallegt heimili á fáum fermetrum og draum um framtíð á staðnum. Eva ólst upp í Reykjavík en kveðst oft hafa verið hjá ömmu sinni og afa, Guðmundu Jónsdóttur og Sigurgeiri Jónssyni á Fagurhólsmýri. Eftir nám í kjólasaumi við Iðnskólann og ár í textíldeild Myndlistarskólans í Reykjavík lá leiðin í Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam og þaðan útskrifaðist hún sumarið 2016 eftir fjögurra ára nám í myndlistardeild. Kynntust á togara Peter er fæddur og uppalinn í Sví- þjóð, í smábæ við Sundsvall sem heitir Bergeforsen. Hann kveðst hafa verið í íshokkí sem barn og fram á fullorðinsár. „Það er hand- boltinn okkar,“ útskýrir hann. Eftir menntaskóla tók hann áfanga í mat- reiðsluskóla og vann síðan við elda- mennsku á skíðasvæði í Vemdalen í nokkur ár. En hvernig kynntust þau? „Peter var í vinnu sem háseti á norskum frystitogara, Langvin, sem gerður var út frá Álasundi. Mér datt í hug að sækja um hjá ein- hverri norskri útgerð eftir tvo túra í lausamennsku í Eyjum og eftir ótal símtöl hafði útgerðarmaðurinn í Álasundi samband og spurði hvort ég gæti mætt í f lug daginn eftir og tekið sex vikna túr. Ég gekk að því. Ári seinna, þegar ég var búsett í Reykjavík, þurfti Langvin að stoppa þar því trollið hafði rifnað, þá hafði Peter samband og við hittumst á kaffihúsi,“ rifjar Eva upp. „Við bjuggum saman í Amster- dam seinni tvö skólaárin hennar Evu,“ segir Peter. „Ég var enn á sjó og ekki bundinn ákveðnum stað. Var búinn að heimsækja Evu tvisvar til Íslands og kynnast samfélaginu í Öræfum örlítið og mér fannst áhugavert að flytja hingað.“ „Pálína Þorsteinsdóttir, þáver- andi skólastjóri, hafði veður af áformum okkar. Hún bauð okkur að koma inn í skólastarfið veturinn 2016-2017 og það varð til þess að við ákváðum að tvínóna ekki,“ segir Eva. „Pálmi Guðmundsson kaup- félagsstjóri var okkur velviljaður og við eignuðumst þessi gömlu hús sem ég hafði alist upp við að væru yfirgefin – og þvælst um, auðvitað í óleyfi – þau voru alltaf eins og strönduð í tíma og hvað er meira spennandi en tímaflakk!“ „Gömlu búðina ætlum við að gera að íbúðar- hæfu húsnæði,“ segir Peter. „En það þarf eiginlega að taka hana í gegn frá grunni til að hægt sé að láta þann draum rætast.“ Búin að skafa gólf og veggi Sláturhúsið er fyrst og fremst vinnu- stofa. „Enn sem komið er er þetta eingöngu vinnustofa okkar Pet- ers en með tíð og tíma höfum við áhuga á að opna hér gestavinnu- stofu fyrir listamenn og þegar við verðum búin að koma okkur fyrir í gömlu búðinni þá opnast mögu- leikar á að hýsa fólk í litla húsinu sem við búum í í dag. Fyrsta árið fór að mestu í að byggja það og vinna í skólanum, en á meðan bjuggum við hjá ömmu,“ segir Eva. Þau eru búin að rífa niður það sem var að hruni komið í slátur- húsinu, skafa gólf og veggi, þrífa og klæða að innan það sem brýnt Draumur sem varð að veruleika Eva Bjarnadóttir, listakona á Fagurhóls- mýri, hlaut nýlega Menningarverðlaun Hornafjarðar fyrir að ráðast í upplyftingu gamals sláturhúss og gæða það nýju lífi. Peter og Eva hafa ekki rekist á huldufólk við hamrana. „Ætli það sé ekki að fela sig,“ segir Peter og kímir. MYND/SIGURÐUR GUNNARSSON Litla húsið þeirra Evu og Peters ber í Blesaklett. Peter stendur í einum af dyrum sláturhússins – í lopapeysu, enda hráslagi. MYND/EVA Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 4 -2 0 1 9 1 1 :2 4 F B 1 2 8 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C F -8 9 5 C 2 2 C F -8 8 2 0 2 2 C F -8 6 E 4 2 2 C F -8 5 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.