Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 94
Neyðaraðstoð
vegna fátæktar
Hjálparstarf kirkjunnar veitir fólki í félagslegri neyð
efnislega aðstoð í samvinnu við presta, félags- og
námsráðgjafa um land allt. Aðstoðinni er ætlað að
svara skyndilegri neyð enda er það skylda stjórnvalda
að tryggja framfærslu fólks í félagslegum vanda
þannig að það fái lifað mannsæmandi lífi til lengri
tíma.
Meginmarkmiðið er að grunnþörfum fólks sé mætt, að
fjárhagslegir erfiðleikar ógni ekki heilsu fólks og tak-
marki ekki möguleika barna og unglinga til farsæls
lífs. Faglegt mat félagsráðgjafa Hjálparstarfsins ligg-
ur til grundvallar efnislegum stuðningi sem veittur er
án tillits til trúar- og lífsskoðana, þjóðernis, litarhátt-
ar eða kyns þeirra sem hans leitar.
Inneignarkort í
matvöruverslunum
Hjálparstarf kirkjunnar veitir fólki sem býr við fátækt
neyðaraðstoð til skemmri tíma meðal annars með inn-
eignarkortum í matvöruverslunum en mikil valdefling
felst í því að fólk versli sjálft þær nauðsynjar sem það
þarf í stað þess að bíða í röð eftir matarpoka sem aðr-
ir hafa fyllt.
Aðstoð vegna lyfjakaupa
Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðar fólk í félagslegri
neyð þegar sýkingar eða veikindi kalla á óvænt út-
gjöld vegna lyfjakaupa. Þó er ekki greitt fyrir lyf sem
eru á lista Lyfjastofnunar yfir ávana- og fíknilyf.
Hjálparstarfið greiðir lyfjaverslunum beint fyrir lyfin
sem aðstoðað er um.
Fataúthlutun og
fatasöfnun
Fólk í félagslegri neyð getur sótt sér notaðan fatnað á
lager Hjálparstarfs kirkjunnar að Háaleitisbraut 66,
neðri hæð, á þriðjudögum klukkan 10:00–12:00. Hjálp-
arstarfið tekur á móti hreinum og heillegum fatnaði á
skrifstofu stofnunarinnar að Háaleitisbraut 66, neðri
hæð, alla virka daga klukkan 8:00 – 16:00.
Velferð barna og
ungmenna
Börn og unglingar sem búa við fátækt fá styrk frá
Hjálparstarfinu til íþróttaiðkunar, tónlistarnáms og
tómstundastarfs. Foreldrar geta einnig leitað eftir
styrk til að senda börn í sumarbúðir og ungmenni á
sjálfstyrkingarnámskeið. Foreldrar grunnskólabarna
geta fengið aðstoð í upphafi skólaárs og ungmenni
sem búa við fátækt fá styrk til náms sem gefur þeim
réttindi til starfs eða veitir þeim aðgang að lánshæfu
námi.
Valdefling
Hjálparstarf kirkjunnar starfar í anda hugmynda-
fræði um valdeflingu og leitast við að styðja fólk sem
býr við fátækt við að bæta félagslega stöðu sína og
almenn lífsgæði. Markmiðið er að fólk finni styrk sinn
og getu til að takast á við erfiðar aðstæður og að það
komist út úr félagslegri einangrun sem oft er fylgi-
fiskur efnaleysis.
Ráðgjöf
Félagsráðgjafar Hjálparstarfs kirkjunnar taka á móti
fólki sem leitar eftir efnislegum stuðningi hjá stofn-
uninni, ræða við það og benda á úrræði í samfélaginu
sem kunna að gagnast því við að komast út úr erfiðum
aðstæðum. Sérstakur opinn viðtalstími hjá félagsráð-
gjafa er á miðvikudögum klukkan 12:00–16:00 á skrif-
stofu Hjálparstarfs kirkjunnar, Háaleitisbraut 66,
neðri hæð.
Sjálfstyrkingarnámskeið
og hópastarf
Til þess að fólk komist út úr vítahring fátæktar og fé-
lagslegrar einangrunar þarf að takast á við aðstæður
á heildrænan hátt. Félagsráðgjafar Hjálparstarfs
kirkjunnar skipuleggja því reglulega sjálfstyrkingar-
námskeið og hópastarf í samráði við þá sem aðstoðar
leita hjá stofnuninni.
Breiðholtsbrúin er opið hús í Breiðholtskirkju á mánu-
dögum klukkan 11:30–14:00. Þar hittist fólk og skiptist
á að elda mat, borðar og á saman góða samverustund.
Taupokar með tilgang er saumaverkefni fyrir konur
af erlendum uppruna sem eru flestar nýkomnar til
landsins og eru utan vinnumarkaðar. Konurnar sníða
og sauma fjölnota innkaupapoka og fleira úr efni og/
eða notuðum fatnaði sem almenningur hefur gefið og
nota til þess saumavélar sem almenningur hefur gefið
sömuleiðis.
Stattu með sjálfri þér – virkni til farsældar er verk-
efni fyrir konur sem búa við örorku og eru með börn á
framfæri. Markmiðið er að þær fái bætt sjálfsmynd
sína og að þær styrki tengslanet sitt til að koma í veg
fyrir félagslega einangrun og eflist í foreldrahlut-
verkinu.
Í sumarbúðum fyrir fjölskyldur á Úlfljótsvatni er
boðið upp á fjölbreytta dagskrá í fjóra daga með það
að markmiði að fjölskyldur sem búa við kröpp kjör geti
átt gleðilegt frí saman og safnað góðum minningum.
Ræktaðu garðinn þinn er hópastarf sem stendur yfir
sumartímann þar sem þátttakendur fá pláss í
matjurtagörðum sveitarfélaga og fá þar tækifæri til
að rækta sitt eigið grænmeti.
Málsvarastarf
Auk þess að veita neyðaraðstoð og hjálpa fólki til
sjálfshjálpar með ráðgjöf og valdeflandi verkefnum
hefur Hjálparstarf kirkjunnar það að markmiði að
auka almenna vitund um mannréttindi og mikilvægi
félagslegs réttlætis. Hjálparstarfið tekur því þátt í
málasvarastarfi innanlands og utan og vill stuðla að
hnattrænni samstöðu um sjálfbæra þróun og jafn-
rétti.
Hjálparstarfið telur brýnt að fólk sem býr við fátækt
tali fyrir sig sjálft og taki þátt í opinberum ákvörðun-
um sem það varðar. Þjónusta við fólk í félagslegri neyð
á að vera notendastýrð og fólk á að geta lifað
mannsæmandi lífi af launum sínum og lífeyri.
Hjálparstarfið þrýstir á um aukið félagslegt réttlæti í
samstarfi við félagasamtök og stofnanir svo sem með
því að eiga fulltrúa í Velferðarvaktinni, starfshópi um
endurskoðun laga um málefni fatlaðs fólks og laga um
félagsþjónustu sveitarfélaga, Almannaheillum og
stjórn Mannréttindaskrifstofu Íslands.
EAPN og Pepp Ísland
– samtök fólks í fátækt
EAPN er evrópskur samræðuvettvangur fyrir fólk sem
býr við fátækt en félagsráðgjafar og notendur þjón-
ustu Hjálparstarfsins taka þátt í störfum Íslands-
deildar EAPN. Hópurinn Pepp Ísland, samtök fólks í
fátækt var stofnaður í tengslum við EAPN á Íslandi og
starfar á eigin forsendum.
Erfiðar aðstæður svo sem vegna veikinda, slysa og atvinnumissis gera ekki alltaf boð á undan sér og
það getur verið erfitt að vinna sig út úr þeim. Við vitum að það getur verið skammt milli þess að geta
vel séð fyrir sér og standa svo allt í einu í þeim sporum að geta það ekki. Við hlustum og erum til stað-
ar fyrir fólk sem hefur tekjur undir lágtekjumörkum og býr við verulegan skort á efnislegum gæðum.
Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi
– Hjálp til sjálfshjálpar
Á starfsárinu
júlí 2017–júní 2018:
– fékk 1531 fjölskylda inneignarkort fyrir
matvöru í 2841 skipti.
– naut 291 hjálparþurfi aðstoðar við lyfja-
kaup í 578 skipti.
– fengu foreldrar 186 grunnskólabarna
aðstoð í upphafi skólaárs.
– fengu 53 börn og unglingar undir átján
ára aldri styrk til íþróttaiðkunar, tónlistar-
náms og tómstundastarfs.
– fékk 51 ungmenni styrk til greiðslu
skólagjalda í framhaldsskólum og fyrir
bóka- og efniskostnaði.
– fengu um 1.000 einstaklingar og fjölskyld-
ur notaðan fatnað hjá Hjálparstarfinu.
– Í desember 2018 nutu 1244 fjölskyldur
eða um 3350 einstaklingar um land allt
sérstakrar aðstoðar til að geta gert sér
dagamun á jólum.
Hjálparstarf kirkjunnar, Háaleitisbraut 66, 103 Reykjavík, sími 528 4400, help@help.is, www.help.is
@hjalparstarf.kirkjunnar, #hjalparstarfid
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
F
-B
A
B
C
2
2
C
F
-B
9
8
0
2
2
C
F
-B
8
4
4
2
2
C
F
-B
7
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K