Fréttablaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
SERTA OPERA dýna með
COMFORT botni og fótum
STÆRÐ FULLT VERÐ PÁSKATILBOÐ
160 X 200 174.960 KR. 131.220 KR.
� Sjö laga heilsu- og hæginda-
lag. Laserskorið Conforma
Foam tryggir réttan stuðning
við neðra mjóbak og axla svæði.
� Steyptar kantstyrkingar.
� Slitsterkt og mjúkt bómullar-
áklæði sem andar vel.
� Vandað fimmsvæða skipt
poka gormakerfi. Minni
hreyfing, betri aðlögun.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
S E R TA O P E R A H E I L S U R Ú M
Ó T R Ú L E G T
V E R Ð
S T Æ R S T I D Ý N U -
F R A M L E I Ð A N D I
V E R A L D A R
Aukahlutur á mynd: gafl
A F S L ÁT T U R
25%
PÁSKATILBOÐ!
Opera
EITT LÍF – NJÓTUM ÞESS
OPNUNARTÍMI UM PÁSKANA
LOKAÐ Á SKÍRDAG, FÖSTUDAGINN LANGA, PÁSKADAG OG 2. Í PÁSKUM.
OPIÐ LAUGARDAGINN 20. APRÍL KL. 1100–1600
Patrek ur Ísak er að læra til þjóns og hefur starfað sem slíkur í tvö og hálft ár. Meistarinn hans og vinnuveitandi á Nauthóli hvatti hann
til þess að keppa á Íslandsmeistara-
móti barþjóna, hvar hann stóð uppi
sem sigurvegari á sunnudaginn,
þótt hann líti ekki á sig sem bar-
þjón.
„Ég er í sjálfu sér ekki barþjónn
og er í rauninni bara áhugamaður,“
segir Patrekur í samtali við Frétta-
blaðið. „Ég hef keppt tvisvar. Einu
sinni í þemakeppni og nú um
Íslandsmeistaratitilinn.
Á Íslandsmeistaramótinu er
keppt eftir alþjóðlegum stöðlum
og dómararnir eru venjulega hoknir
af reynslu, fyrrverandi Íslands-
meistarar og jafnvel Evrópu- eða
heimsmeistarar þannig að taugar
keppenda eru oftast þandar þegar
þeir þurfa að blanda fimm drykki
á sjö mínútum á meðan þeir úttala
sig um drykkina og aðferðafræðina.
Missti kúlið
„Á úrslitakvöldinu sitja dómararnir
fyrir framan þig og þú þarft að lýsa
ferlinu og geta sagt söguna að baki
drykknum og hvernig þú blandar
hann þannig að þú ert bara með
hálfgert leikatriði,“ segir Patrekur
sem var verðlaunaður fyrir fagleg
vinnubrögð þótt hann viðurkenni
að stressið hafi verið mikið.
„Ég vil meina að ég hafi ekki hald-
ið kúlinu og þetta var mjög stress-
andi. Þetta er alveg nýtt fyrir mér
og ég hef lítið verið í því að fara upp
á svið og tala um svona lagað fyrir
framan fagfólk sem er búið að vera
í þessum bransa heillengi. Maður er
mjög hræddur við að segja kannski
eitthvað sem er kolvitlaust og fara
með staðreyndavillur en í sjálfu
sér gekk þetta held ég bara ágæt-
lega,“ segir Íslandsmeistarinn sem
venju samkvæmt mun keppa fyrir
Íslands hönd á heimsmeistaramóti
barþjóna í Kaupmannahöfn í sept-
ember.
Bannað að sulla
Á móti sem þessu er ekki nóg að
hrista fram besta drykkinn. Hand-
tökin verða að vera fumlaus og
þannig er til dæmis horft til þess
hvort keppendur missi klaka eða
sulli umfram á sjússamælinum.
Allt gekk þetta þó upp hjá Patreki
sem sigraði með eftirréttadrykk
sem hann kallar Omnom de la Vie,
eða Omnom lífsins, með vísan til
kakóbauna frá samnefndum súkku-
laðiframleiðanda – leynivopnsins
sem gerði gæfumuninn að sögn
meistarans.
„Helminginn af uppskriftinni
sæki ég í klassískan kokteil sem ég
er búinn að vera að læra og vinna
með í skólanum vegna sveinsprófs-
ins í vor. Hugmyndavinnuna og til-
raunir í kringum þetta hef ég svo
unnið með samstarfsfólki mínu.“
Kjarninn í drykknum er heima-
tilbúið kakósíróp sem Patrekur
segir að sé í raun hryggjarstykkið
í drykknum. „Ég fékk baunir frá
Omnom og bjó til sírópið sem ger-
samlega gerir drykkinn og ég byggi
hann í raun í kringum sírópið.“
Saman við heimagert sírópið, í
hárréttum hlutföllum vitaskuld,
blandaði Patrekur síðan Cointreau-
líkjör, sjö ára gömlu Havana Club-
rommi, lime og rjóma.
Riddarar barborðsins
Hefð er fyrir því að Íslandsmeistari
barþjóna sé sleginn til riddara með
forláta sverði sem nafn hans er
síðan grafið í innan um nöfn fyrri
sigurvegara. En hvað ætlar Íslands-
meistarinn að gera við sverðið?
Mæta með það í vinnuna á Naut-
hóli?
„Sverðið er því miður ekki lengur
farandgripur þannig að ég get ekki
tekið það með mér heim og sett það
upp á hillu. Nafninu mínu verður
bara smellt á sverðið sem fer svo
aftur upp í Menntaskólann í Kópa-
vogi þar sem matreiðslu- og fram-
reiðsluskólinn er,“ segir Patrekur
sem stefnir ótrauður á titilvörn að
ári þótt hann sé ekki barþjónn í
eiginlegum skilningi. „Ég held að
maður verði að gera það.“
toti@frettabladid.is
Kakósírópið er kjarni
meistarakokteilsins
Þjónaneminn Patrekur Ísak varð á sunnudaginn Íslandsmeistari
barþjóna þegar hann tefldi fram kokteil sem hann kallar Omnom
de la Vie þar sem áfengið hverfist um heimatilbúið kakósíróp.
Íslandsmeistari barþjóna er þjónn en ekki barþjónn en stóð engu að síður uppi sem sigurvegari og fékk að bregða
brandi sem mun bera nafn hans eftir að hann var sleginn til riddara á sunnudaginn. MYND/ÓMAR VILHELMSSON
Sigurvegarinn þeytir í Omnom lífs-
ins þar sem kjarninn er heimalagað
síróp, sannkallað leynivopn.
MYND/ÓMAR VILHELMSSON
HVER VANN?
Sportið á frettabladid.is færir þér
allar nýjustu fréttirnar úr heimi
íþróttanna.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
1 7 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
7
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
4
-8
4
7
8
2
2
D
4
-8
3
3
C
2
2
D
4
-8
2
0
0
2
2
D
4
-8
0
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K