Fréttablaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —8 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . A P R Í L 2 0 1 9
Settu punktinn
yfir ferðalagið
HEILBRIGÐISMÁL Plássleysi á gjör-
gæslu Landspítalans verður til þess
að sjö mánaða gömul stúlka þarf
að bíða eftir aðgerð þangað til í
lok mánaðarins. Foreldrar Sóllilju
Ásgeirsdóttur eru ekki sáttir við
að þurfa að bíða, verið sé að setja
óþarfa álag á fjölskylduna en sér-
staklega dóttur þeirra. Hyggjast
þau skrifa heilbrigðisráðherra bréf
vegna málsins.
Það kom í ljós áður en Sóllilja
fæddist að hún er með þrengingu
í þvagleiðara sem getur skemmt
nýrun ef ekkert er að gert. Hún
þótti of lítil við fæðingu til að gera
aðgerðina strax. Fyrsta aðgerðin
átti að fara fram í mars, en þá veikt-
ist hún. Á mánudaginn átti hún
að fara í aðgerð, þegar komið var
á spítalann var fjölskyldunni tjáð
að ekkert yrði af aðgerðinni vegna
plássleysis á gjörgæsludeild.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson, faðir
Sóllilju, segir mikið lagt á dóttur
sína, hún þarf að fasta nóttina fyrir
aðgerðina og mæta í blóðprufu
nokkrum dögum áður. „Þegar
maður er lítill, þá er mjög sársauka-
fullt og erfitt að finna æðar. Hún
var stungin ansi oft í fyrra skiptið
en það gekk betur í seinna skiptið.“
Hann tekur fram að ekki sé við
starfsfólk Landspítalans að sakast
heldur sé staðreyndin að plássleysi
verði til þess að Sóllilja þurfi að bíða
eftir aðgerð. Hafa þau ekki fengið
skýr svör um hversu lengi Sóllilja
má bíða eftir aðgerð áður en þreng-
ingin á þvagleiðaranum veldur
nýrnaskaða. Foreldrarnir hyggjast
skrifa Svandísi Svavarsdóttur heil-
brigðisráðherra bréf vegna málsins.
„Starfsmenn spítalans hvöttu okkur
til að skrifa ráðherra bréf, því þetta
er viðvarandi vandamál inni á
spítalanum.“ – ab / sjá síðu 8
Aðgerð sjö mánaða stúlku
frestað á ný vegna plássleysis
Sjö mánaða gömul stúlka þarf að bíða til lok mánaðarins eftir aðgerð á Landspítalanum. Aðgerðin átti
upphaflega að fara fram á mánudaginn en var frestað vegna plássleysis á gjörgæsludeild. Veikindi henn-
ar geta leitt til skemmda á nýrum. Starfsfólk spítalans hvatti foreldrana til að skrifa ráðherra bréf.
Starfsmenn Landspítala
hvöttu foreldra Sóllilju til að
rita heilbrigðisráðherra bréf.
V E R S LU N Íslensk a r smá sölu-
keðjur skoða möguleikann á því
að minnka þjónustustig, til dæmis
með því að stytta opnunartíma,
til þess að geta staðið undir launa-
hækkunum nýrra kjarasamninga.
Framkvæmdastjóri verslunar-
sviðs Samkaupa segir að stærsta
tækifærið til hagræðingar felist í
þjónustustiginu.
Forstjóri Festar segir að aðstæður
í hagkerfinu séu þannig að líklegra
sé að launahækkanirnar brjótist
fram í atvinnustigi fremur en verð-
lagi. Nýjum kjarasamningum muni
fylgja uppsagnir. – þfh / sjá Markaðinn
Skoða styttingu
opnunartíma
Gunnar Egill
Sigurðsson,
framkvæmda-
stjóri verslunar-
sviðs Samkaupa
Ömurlegt veður skall á íbúum á Suður- og Suðvesturlandi í gær. Við tónlistarhúsið Hörpu gerði öf lugur vindstrengur ferðamönnum erfitt fyrir. Þó virtust margir mæta ofsa veðurguðanna
með bros á vör. Það dregur úr vindi á næstu dögum og fram á páskadag. Að auki hlýnar nokkuð og því verða víða leysingar og auknar líkur á vatnavöxtum næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1
7
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
4
-7
0
B
8
2
2
D
4
-6
F
7
C
2
2
D
4
-6
E
4
0
2
2
D
4
-6
D
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K