Fréttablaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 58
ÁHEYRENDUR SEGJA:
JÁ, ÞAÐ ER PLÁSS
FYRIR AÐRA SINFÓNÍUHLJÓM-
SVEIT Á ÍSLANDI OG ÞAÐ GERA
LISTAMENNIRNIR EINNIG.
Sinfóníuhljómsveit Norð-urlands stendur f y rir tvennum stórtónleikum í páskavikunni þegar tvö af mögnuðustu verkum Mozarts verða flutt í Hofi
á Akureyri á skírdag og í Lang-
holtskirkju á föstudaginn langa.
Requiem, Sálumessa, eftir Mozart
verður í f lutningi Garðars Thórs
Cortes, Hönnu Dóru Sturludóttur,
Ágústs Ólafssonar og Helenu Guð-
laugar Bjarnadóttur. Kammerkór
Norðurlands og Söngsveitin Fíl-
harmónía mynda 80 manna kór
á tónleikunum en hljómsveitar-
stjórinn er hin finnska Anna-Maria
Helsing. Alexander Edelstein verður
síðan einleikari í hinum undurfal-
lega píanókonsert nr. 20 í d-moll
eftir Mozart.
„Páskatónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands hafa gjarnan
verið aðaltónleikar hljómsveitar-
innar ár hvert í gegnum tíðina, eru
gjarnan vel sóttir en núna er uppselt
í Hofi. Þá fannst okkur upplagt að
fara suður og f lytja dagskrána líka
þar, eins og við gerðum í fyrra með
Matteusarpassíuna og sýna Reyk-
víkingum hvað við erum að bralla
fyrir norðan,“ segir Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson, framkvæmda-
stjóri hljómsveitarinnar. „Áheyr-
endur á Íslandi hafa svo sannarlega
kveðið upp sinn dóm um það hvort
pláss sé fyrir aðra sinfóníuhljóm-
sveit á Íslandi, en síðustu fimm árin
hefur verið fullt hús á nær öllum
okkar tónleikum, líka þeim sem
við höfum flutt í Reykjavík og Fær-
eyjum, en á Matteusarpassíunni í
fyrra var uppselt í Hallgrímskirkju.
Áheyrendur segja: Já, það er pláss
fyrir aðra sinfóníuhljómsveit á
Íslandi og það gera listamennirnir
einnig. Síðastliðið vor auglýstum
við eftir hljóðfæraleikurum sem
vildu koma á samning við okkur.
Eitt hundrað manns sóttu um og
nú erum við með fimmtíu manna
kjarna en í stærri verkefnum eru
þrjátíu til viðbótar kallaðir út.“
Á hátindi ferils síns
Hljómsveitarstjórinn Anna-Maria
Helsing er vel þekkt í heimi sígildrar
tónlistar. „Það er mjög mikilvægt
fyrir hljómsveit eins og okkar að
fá reynda stjórnendur sem eru á
hátindi ferils síns eins og Anna-
Maria er,“ segir Þorvaldur. „Það er
líka hluti af stefnu okkur að jafna
hlut kvenna í hinum karllæga heimi
hljómsveitarstjóra. Hallfríður
Ólafsdóttir var stjórnandi hjá okkur
fyrir jól og í kjölfarið kemur Anna-
Maria. Það er alls ekki sjálfsagt að
hún komi til okkar en það vildi
þannig til að ég sá hana í búnings-
herbergi í Hörpu þar sem hún var
að æfa sig og spurði hana hvort hún
vildi koma til okkar og hún sagði já.
Einfalt og gott!“
Einleikarinn í hinum fræga
píanókonsert nr. 20 í d-moll eftir
Mozart er ungur að árum. „Alex-
ander Edelstein er kominn af
magnaðri tónlistarætt. Hann er
sonur Kristjáns Edelstein gítar-
leikara sem býr hér fyrir norðan
og er allt í öllu í blúsnum og djass-
inum og kennir hér á gítar. Genin
eru alveg á réttum stað hjá honum
og hann valdi ungur að helga sig
algjörlega klassískri tónlist og lætur
Sinfóníuhljómsveit með bjarta drauma
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur stórtónleika í Hofi á Akureyri á skírdag og í Langholtskirkju á
föstudaginn langa. Heimsfrægur hljómsveitarstjóri og ungur píanóleikari með genin á réttum stað.
Þorvaldur Bjarni er ánægður en hljómsveitin slær í gegn hér heima og erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN NÍELSSON
Alexander Edelstein valdi ungur að helga sig algjörlega klassískri tónlist.
Anna-Maria Helsing hljómsveitar-
stjóri. MYND/TIMO HEIKKALA
ekkert annað truf la sig. Ungur að
árum er hann kominn mjög langt
í sínu námi og er núna í Listahá-
skólanum að undirbúa lokaprófið.
Hann fær ekki betri þjálfun fyrir
það en að takast á við píanókonsert
með alvöru sinfóníuhljómsveit og
frábærum stjórnanda. Ég get ekki
beðið eftir að heyra afraksturinn.“
Í öflugri útrás
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
hefur sannarlega sett sitt mark á
tónlistarlífið hér á landi, en hún
hefur einnig verið í öf lugri útrás
því hún hefur leikið inn á fjölda
erlendra og innlendra kvikmynda
og þátta. Hljómsveitin átti nýlega
25 ára afmæli og hélt af því tilefni
hátíðartónleika á Akureyri og af
sama tilefni var opnað kvikmynda-
tónlistarverkefni sem hefur verið í
smíðum síðan 2015 að viðstöddum
forseta Íslands, Guðna Th. Jóhann-
essyni, og Lilju Alfreðsdóttur
menntamálaráðherra sem opnaði
verkefnið formlega. Verkefnið er
kallað SinfoniaNord.
„Þetta hafði samstundis þau áhrif
að hljómsveitinni var boðið í eins
konar hátíðarkvöldverð þar sem
við fengum að kynnast og hitta
áhrifafólk í tónlistarbransanum
í Los Angeles, sem ákveður hvar
svona tónlist er tekin upp í heim-
inum hverju sinni, þetta var hluti af
verkefni á vegum ÚTÓN sem heitir
Record in Iceland,“ segir Þorvaldur
Bjarni. „Þetta var mikilvægt því við
höfum spilað tónlist inn á myndir
þaðan og höfðum því töluvert efni
til að sýna, nýbúin að opna heima-
síðuna sinfonianord.is. Fyrir þá
sem sjá heimasíðuna er engu líkara
en við værum búin að vera í brans-
anum í tíu ár.“
Munur á framlögum
Þorvaldur er óþreytandi við að
vekja athygli á tilveru SN og hversu
mikill munur er á framlögum
ríkisins til menningarstarfsemi á
höfuðborgarsvæðinu og til dæmis
markaðssvæðis Menningarfélags
Akureyrar. „Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands á ekki í samkeppni
við Sinfóníuhljómsveit Íslands,
enda væri það ekki hægt. Munurinn
á framlögum til sveitanna er rúm-
lega einn og hálfur milljarður. Þessi
munur er óeðlilega mikill miðað
við markaðssvæði hljómsveitanna.
Segja má að á markaðssvæði tón-
leika Sinfóníuhljómsveitar Íslands
í Hörpu búi um 250.000 manns
á móti um 30.000 manns að baki
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
í Hofi. Það liggur í augum uppi að
þessi munur á framlögum er óeðli-
lega mikill,“ segir Þorvaldur. Þess
vegna telur hann að eðlilegt sé að
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
hljóti framlög sem nemi um 10 pró-
sentum af framlögum til Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. „Það væri
sanngjarnt miðað við svörunina
sem Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands fær á sínu markaðssvæði og
þó víða væri leitað. Núna eru fram-
lögin innan við þrjú prósent. Þessu
þarf að breyta,“ segir Þorvaldur að
lokum.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
1 7 . A P R Í L 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
7
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
4
-A
B
F
8
2
2
D
4
-A
A
B
C
2
2
D
4
-A
9
8
0
2
2
D
4
-A
8
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K