Fréttablaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 46
Stjórnar-
maðurinn
13.04.2019
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 17. apríl 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Jafnlaunavottun
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
PwC býður upp á heildstæða þjónustu í launamálum og jafnlaunavottun.
Við búum yfir áralangri reynslu og lausnum sem virka.
Sanngjörn laun fyrir
jafnverðmæt störf
Tekjur Jarðborana jukust um
62 prósent á milli ára og námu
7,2 milljörðum króna árið 2018.
Aukninguna má rekja til nýrra
verkefna á Nýja-Sjálandi og í
Djibútí. Þá má rekja 46 prósent
teknanna til Íslands.
Hagnaður fyrirtækisins jókst
um 115 milljónir króna á milli
ára og var 182 milljónir króna
í fyrra. Lagt er til að 100 millj-
ón króna arður verði greiddur.
Arðsemi eiginfjár var fimm
prósent í fyrra og eiginfjárhlut-
fallið var 51 prósent.
Stærstu eigendur Jarðbor-
ana eru SF III, sjóður á vegum
Stefnis sem fjármagnaður er
af lífeyrissjóðum og Kaldbaki,
með 82 prósenta hlut og Bald-
vin Þorsteinsson á 8 prósenta
hlut. – hvj
Tekjur Jarðborana jukust um 2,8 milljarða
Baldvin Þorsteinsson stjórnar-
maður hjá Jarðborunum.
Við byrjuðum hér með
óttalegt skar en
nú er þetta öflugur og
flottur banki, skráður í
eigu fjölda aðila hér
innanlands og erlendis.
Höskuldur H. Ólafsson,
fráfarandi bankastjóri
Arion banka
Segja má að dregið hafi til tíðinda
á hlutabréfamarkaði í síðustu
viku. Í vikubyrjun bárust fréttir
af því að Stoðir og f leiri einka-
fjárfestar væru komnir með hátt
í tíu prósenta hlut í Arion banka.
Í vikulokin var svo tilkynnt til
Kauphallarinnar að Höskuldur
Ólafsson bankastjóri myndi láta
af störfum.
Segja má að hvort tveggja marki
nokkur tímamót. Hluthafahópur
Arion er óðum að taka á sig mynd.
Tuttugu prósenta hlutur er enn í
eigu gamla Kaupþings en að öðru
leyti eru erlendir sjóðir og bankar
fyrirferðarmiklir. Innreið Stoða
og meðreiðarsveina er til marks
um að öf lugir innlendir fjárfestar
hafi trú á bankanum. Kunnugir
vita að litlar líkur eru á að Stoðir
ætli sér að sitja með hendur í
skauti þegar kemur að stefnu og
rekstri bankans.
Hvað brotthvarf Höskuldar varð-
ar þá eru það sömuleiðis tímamót.
Hann hefur leitt bankann í hátt
í áratug frá því rétt eftir hrun.
Síðan þá hefur auðvitað gengið á
ýmsu og mörg mál reynst honum
erfið, einkum á síðustu árum.
Nægir þar að nefna lánveitingar til
United Silicon, WOW air, Primera
og f leiri. Hvorki brotthvarfið né
tímasetningin kemur því á óvart.
Ekki er þó hægt að neita því að
Höskuldur skilar af sér ágætu búi.
Skráðu félagi í einkaeigu og með
sterkan hluthafahóp.
Síðustu vikur og misseri hafa
einkafjárfestar haslað sér völl í
auknum mæli á markaði. Nægir
þar að nefna VÍS, Eimskip, Haga
og nú síðast Skeljung. Spennandi
verður að fylgjast með þessum
félögum í framhaldinu og hvort
lífeyrissjóðunum er í raun alvara
þegar þeir segjast vilja hleypa
einkafjárfestum að í auknum
mæli. Hin hliðin á þeim peningi
er nefnilega sú að í einhverjum
tilvikum munu fulltrúar lífeyris-
sjóðanna þurfa að stíga til hliðar.
Næstu skref á bankamarkaði
verða sömuleiðis athyglisverð.
Landsbankinn og Íslandsbanki
eru enn í ríkiseigu, en fjármála-
ráðherra hefur þó gefið út að því
eigi að breyta í tilviki Íslands-
banka. Kvika hefur einnig
verið á eftirtektarverðu skriði
og notið þess að vera minni og
sveigjanlegri en keppinautarnir.
Bankakerfi eftirhrunsáranna er í
mótun, rétt eins og viðskiptalífið
almennt, og síðasta skrefið hefur
ekki verið stigið í þeim efnum.
Bankakerfi í
mótun
1
7
-0
4
-2
0
1
9
0
7
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
D
4
-8
E
5
8
2
2
D
4
-8
D
1
C
2
2
D
4
-8
B
E
0
2
2
D
4
-8
A
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
6
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K