Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Side 12
12http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
aett@aett.is
nældi þar með í myndir af langalangalangalangafa og
ömmu þeirra.
Rakið eftir búsetu. Ég er ekta Reykvíkingur, 10.
ættliðurinn í Reykjavík þar sem forfeður mínir hafa
raðað sér á jarðirnar: Víkurbærinn, Bygggarður,
Arnarhóll, Örfirisey, Götuhús, Skildinganes, Hlíðar-
hús, Breiðholt, Bústaðir, Rauðará, Laugarnes, Kleppur,
Korpúlfsstaðir, Þingholtin, Vegamót.... Fyrstu forfeð-
ur mínir á svæðinu komu til Reykjavíkur fyrir miðja
17. öldina. Enda elska ég Reykjavík, þar sem faðir
minn leiddi mig unga og sýndi mér og sagði. Hann var
hafsjór af fróðleik. Og í dag horfa barnabörnin mín
út yfir sundin blá frá ströndinni við Rauðará, labba
um Laugarnesið, brosa við Breiðholtinu, skreppa út í
Skildinganes og þræða Þingholtin alveg eins og for-
feður þeirra. Þau eiga djúpar rætur í reykvískri mold.
Þau eru 12. kynslóðin í Reykjavík.
Dreifing forfeðranna eftir landshlutum. Það al-
skemmtilegasta sem ég hef gert í ættfræðinni var að
merkja með mislitum títuprjónum inn á Íslandskort
búsetu forfeðra minna í sex ættliði aftur. Það var
ótrúlegt að sjá hvað fólk hreyfði sig lítið og hélt sig á
sama svæði kynslóð fram af kynslóð.
Ættrakning eftir störfum. Nú er liðin sú tíð þegar
allar konur urðu húsmæður og allir menn bændur. En
lengst af var um fátt annað að velja. Þar er því af nógu
að taka fyrir flesta. Hér má sjá hjónin í Túngarði á
Fellsströnd, Björg Magnúsdóttur og Magnús Jónasson
breiða ull eftir þvott og í heyskap ásamt börnum sín-
um Soffíu og Gesti.
Að rekja sig saman við fræga. Svo er alltaf hægt
að athuga ættgöfgina með því að rekja sig saman við
fræga fólkið. Ég þarf t.d. að leita með logandi ljósi að
prestum í ættinni minni, en þeir voru nú skrautfjaðr-
ir í ættum margra ekki síst fyrr á öldum þegar ekki
var svo margt í boði. En ég uppgötvaði t.d. nýlega
að ég er þremenningur við Jón Engilberts listmálara,
12. Gar ar Ingvarsson, f. 1998, nemi í Reykjavík
Mó ir Gar ars er:
11. Björg Jónsdóttir f. 1972, hönnu ur, Reykjavík
Mó ir Bjargar er:
10. Gu finna Ragnarsdóttir f. 1943, menntaskólakennari, Reykjavík
Fa ir Gu finnu var:
9. Ragnar Jónsson f. 1912 d. 1991, ba vör ur, Reykjavík
Fa ir Ragnars var:
8. Jón Kristjánsson f. 1860, d. 1925 verkama ur, Vegamótum í Reykjavík
Mó ir Jóns var:
7. Rannveig Eiríksdóttir f. 1827 d. 1905, húsm. Vegamótum í Reykjavík. Maki Kristján
Jónsson, tómthúsma ur á Vegamótum (sí ar Laugavegur 18)
Fa ir Rannveigar var:
6. Eiríkur Hjörtsson f. 1771 d. 1846, b. Kleppi, Laugarnesi en lengst af á Rau ará
v. Reykjavík.
Mó ir Eiríks var:
5. Rannveig Oddsdóttir f. um 1740, húsm. Brei holti og Bústö um v. Reykjavík. Maki Hjörtur Eiríksson, f. 1744 d. 1793.
Mó ir Rannveigar var:
4. Oddn Erlendsdóttir f. um 1722 d. fyrir 1801, húsm. Örfirisey og Rau ará v. Reykjavík,
kona Odds Hjaltalín lögsagnara f. 1722, d. 1797. Fa ir hans var Jón Hjaltalín, lögsagnari, sí asti ábúandinn
á gamla Reykjavíkurbænum „Víkurbænum”.
Mó ir Oddn jar var:
3. Sesselja Tómasdóttir f. 1693, húsfr. Hrólfsskála, Seltjarnarnesi v. Reykjavík,
kona Erlendar Brandssonar lögréttumanns, f. um 1692. Fa ir hans var Brandur Bjarnhé insson b. á
Víkurbænum, kirkjuhaldari og lögréttuma ur í Reykjavík. Brandur endurbygg i sí ustu kirkjuna vi
A alstræti.
Mó ir Sesselju var:
2. Gu rún Símonardóttir f. um 1657 húsfr. Arnarhóli Reykjavík, kona Tómasar Bergsteinssonar
b. Arnarhóli f. um 1652.
Fa ir Gu rúnar var:
1. Símon Árnason f. um 1625 b. Hlí arhúsum og Örfirisey í Reykjavík og k.h. Helga
Gunnarsd. f. um 1626
12 ættli ir
370 ár
í
Reykjavík
12 ættli ir
í
Reykjavík
í
370 ár