Kraftur - 01.01.2014, Blaðsíða 4
7
Kraftur
15 ára
6
Kraftur
15 ára
Á 15 ára afmæli Krafts er við vel við hæfi að líta um öxl og
skoða upphaf þess að Kraftur varð til. Af öðrum ólöstuðum
eiga þau Hildur Björk Hilmarsdóttir og Daníel Reynisson
hvað stærstan þátt í uppbyggingu félagsins í gegnum árin.
Hildur er einn af stofnendum Krafts en Daníel kom til starfa
fyrir félagið á fyrsta árinu. Bæði hafa þau gegnt formennsku
en þrátt fyrir að þau hafi nú dregið sig í hlé frá ábyrgðar-
störfum fyrir Kraft, eru þau dyggir félagar og mæta reglulega
á flesta fundi og uppákomur sem félagið stendur fyrir. Hildur
og Daníel hafa enn afar sterkar taugar til Krafts eins og glöggt
kemur fram í eftirfarandi spjalli við þau.
„Mér er efst í huga hvað tíminn líður hratt,“ segir Hildur og
minnist upphafsins. „Ég var 23 ára þegar ég greindist fyrst
með bráðahvítblæði, árið 1994. Á þessum tíma var ég í námi
við Kennaraháskóla Íslands, leigði íbúð, var á námslánum
og í sambandi. Þegar ég fór að leita að einhvers konar
stuðningshópi, sérstaklega fyrir ungt fólk sem greindist
með krabbamein, komst ég að því að hann var ekki til.
Þá fyrst kviknaði hugmyndin að stofnun hóps fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur,“
segir Hildur og talar um að vorið eftir greiningu hennar
hafi hún heimsótt ungan mann á Landspítalann sem
var mjög veikur á þeim tíma en eftir harða baráttu
við krabbameinið hafi hann náð bata.
„Ég greindist síðan aftur með bráðahvítblæði árið 1997 og
tæpum tveimur árum síðar hitti ég aftur þennan unga mann,
sem heitir Jón Bergur Hilmarsson, og eiginkonu hans, Árnýju
Júlíusdóttur. Þá nefndi ég hugmyndina við hann um stofnun
félags sem hefði hagsmuni ungs fólks sem greinst hefur með
krabbamein og aðstandendur þess, að leiðarljósi. Jón Bergur
og Árný kölluðu saman nokkra áhugasama einstaklinga sem
hittust í stofunni heima hjá þeim Árnýju. Það má því segja að
Kraftur hafi verið stofnaður við eldhúsborðið hjá þeim þann
1. október árið 1999.“
„Ég kom inn í Kraft skömmu eftir stofnun félagsins,“ segir
Daníel. „Þá var ég 29 ára, nýgreindur með krabbamein
og í miðri meðferð. Ég fann að mig vantaði jafningja-
stuðning; þ.e. mig langaði að tala við aðra sem hefðu svipaða
reynslu og á sama aldri og ég. Við þessar aðstæður koma
upp spurningar sem enginn heilbrigðisstarfsmaður getur
svarað – heldur einungis þeir sem upplifað hafa sömu
reynslu. Ég vissi af stofnun Krafts sem setti mig í samband
við ungan mann sem gengið hafði í gegnum sömu reynslu og
ég. Það veitti mér mikla hjálp og von að tala við hann,“ segir
Daníel og leggur mikla áherslu á að jafningjastuðningurinn
hafi alla tíð verið eitt af aðalsmerkjum Krafts. „Stuðnings-
net Krafts er byggt upp af sjálfboðaliðum sem farið hafa í
gegnum námskeið fagaðila og eru tilbúnir til þess að leggja
sitt af mörkum til þeirra sem greinast með krabbamein og
aðstandendur. Það er einn mikilvægasti hlekkurinn í starf-
semi félagsins.“
Hildur talar um eftirminnilegan kynningarfund Krafts sem
haldinn var í húsakynnum Krabbameinsfélagsins í febrúar
árið 2000. „Það fylltist allt á 4. hæðinni og alls munu um 300
manns hafa mætt. Það gladdi okkur sérstaklega að sjá fjölda
heilbrigðisstarfsmanna, lækna og hjúkrunarfólk, á meðal gesta.
Teningnum var sannarlega kastað með þessum fjöldafundi.
Ljóst var að þörf var fyrir félag eins og Kraft,“ segir Hildur og
brosir við minninguna.
Segja þau Hildur Björk Hilmarsdóttir
og Daníel Reynisson
Kraftur hefur
slitið barnsskónum
Hildur Björk
Hilmarsdóttir &
Daníel Reynisson
„Þegar ég fór að leita að einhvers konar
stuðningshópi, sérstaklega fyrir ungt
fólk sem greindist með krabbamein,
komst ég að því að hann var ekki til“
Viðtal
Ragnheiður Davíðsdóttir