Kraftur - 01.01.2014, Síða 10

Kraftur - 01.01.2014, Síða 10
1918 Kraftur 15 ára Kraftur 15 ára Bjóddu fram áþreifanlega hjálp Það getur verið erfitt að takast á við daglegt líf og jafnvel enn erfiðara að biðja annað fólk um hluti sem “maður á að ráða við”. Svo gerðu þeim auðveldara fyrir með því að bjóða fram tiltekna, vel afmarkaða hjálp: “Ég er að fara í búð, hvað vantar þig þaðan?” “Ég bjó til nautakássu í kvöldmat, hvenær get ég komið við hjá þér og látið þig hafa hana?”. Þegar maður er í sorg hefur maður hvorki yfirsýn né einbeitingu til að vita hvar þörfin hjá manni er mest, svo ekki láta ábyrgðina á þinni hjálp hvíla á herðum syrgjanda. Setningin “Hringdu ef það er eitthvað” hljómar ennfremur ekki líkt og einlægt hjálparboð og ólíklegt að manneskja muni taka þig á orðinu með það. Spurðu út í líðan Spurðu opinna spurninga sem gefa syrgjanda færi á að tjá líðan sína með eigin orðum. “Hvernig líður þér?”. Ekki gera ráð fyrir því að þú vitir hvernig syrgjanda líður á einhverjum tímapunkti. Nefndu hinn látna á nafn Minnstu hlutir geta kveikt á sorginni, en oft er það svo að tal um hinn látna gefur mestan frið – samt er það það sem fólk er hvað feimnast við að tala um. Margir hika við að nefna lát ástvina við eftirlifandi aðstandendur af þeirri ástæðu að þeir vilja ekki minna manneskjuna á missinn. Við því er eitt að segja: Það er ekki hægt að minna manneskjuna á að hún hafi misst ástvin. Hún ber það með sér hverja mínútu svo þú þarft ekki að óttast að þú munir minna hana á það. Svo ekki hika. Hinn syrgjandi þarf að finna að missir hans sé viðurkenndur, að hann sé ekki of hræðilegur til að tala um og að hinn látni muni ekki gleymast. Opnaðu á umræður en ekki þrýsta Hafðu orð á því sem gerst hefur. “Ég frétti af andláti föður þíns. Ég sam- hryggist innilega.” Það gefur til kynna að þú sért opin/n fyrir því að veita stuðning. Talaðu hreinskilningslega um þann veika/látna og ekki beina samtalinu annað komi umræðuefnið upp. Hins vegar skal aldrei þrýsta á fólk að opna sig eða tjá sig um eitthvað sem það vill ekki tjá sig um. Gott er að spyrja beint út hvort manneskja vilji tala um þetta, það gefur ykkur báðum meira frelsi í þeim tjáskiptum sem á eftir fara. Þögn segir oft meira en þúsund orð Ekki hræðast að sitja í þögn með syrgj- andi manneskju. Oft skortir mann orð til að lýsa hvernig manni er innan- brjósts, en nærvera þín segir meira en þúsund orð. Bjóddu fram augnsam- band, þrýstu hönd, leggðu hendi á bak eða bjóddu fram faðmlag. Viðurkenndu tilfinningar syrgjanda Mættu tilfinningum syrgjandans án þess að dæma þær. Láttu hann vita að það sé í lagi að gráta fyrir framan þig eða brotna niður. Gefðu til kynna að tilfinningar hans séu eðlilegar og í lagi. Syrgjandi manneskja hefur þörf fyrir að geta tjáð þær tilfinningar sem brjótast um í henni án þess að þurfa að óttast fordæmingu, rökræður eða gagnrýni. Viðurkenndu því tilfinningar syrgjanda. Þær eru þér e.t.v framandi en allir syrgja á mismun- andi hátt. Sorg er ferli, ekki viðburður Það þýðir að syrgjandi fólk segir, gerir og hugsar sama hlutinn aftur og aftur, það er hluti af bataferlinu. Ekki þreytast á því að heyra “söguna þeirra”. Hvettu manneskjuna til þess að ræða þá hluti sem liggja henni á hjarta, hvettu hana til að ræða staðreyndir, tímasetningar, smá- atriði og tilfinningar tengdum áfallinu Að setja hlutina í orð fyrir aðra mann- eskju er öflug leið til úrvinnslu. Þegar “allt er yfirstaðið” Þegar jarðarförin er búin og blómin eru fölnuð fer lífið aftur að ganga sinn vana- gang og fólkið í kringum syrgjand- ann snýr aftur í sitt venjulega hvers- dagslíf. Það er ekki alveg svona einfalt fyrir þann sem hefur orðið fyrir missi. Hversdagsleikinn hefur gjörbreyst og fyrir utan sorgina og missinn getur það að læra að lifa án ástvinar síns tekið langan tíma. Því er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að stuðningur má ekki hætta við jarðarför, heldur þarf að hafa auga með því hvers konar stuðning manneskja þarf á að halda í framhaldinu og hversu lengi. Sorgin virðir ekki tímamörk Eitt það versta við missi er þegar ætlast er til þess að eftir ákveðinn tíma eigi sárin að vera gróin. Áttaðu þig á því að þegar mikilvægir ástvinir hverfa á braut verður lífið aldrei samt. Fólk lærir að lifa með missinum en þótt fenni í sporin þarf ekki að vera að sárs- aukinn hverfi nokkurn tímann alveg. Bjóddu fram sérstaka aðstoð á sérstök- um dögum. Ákveðnir tímar geta verið erfiðari en aðrir. Hátíðisdagar, afmælis- dagar, dánardagar, brúðkaupsafmæli og aðrir stórir dagar í lífi fjölskyldunnar geta rifið upp sárin. Hafðu auga með viðvörunarmerkjum Það er eðlilegt fyrir manneskju í sorg að verða döpur, sorgmædd, dofin, erfið í skapi, illa áttuð, gleymin, einangra sig frá öðrum og sýna önnur einkenni vanlíðunar. En ef þessi einkenni dofna ekki eða jafnvel versna er það merki um að ráð sé að leita til fagmanna. Ef þessi einkenni lagast ekki á 4-6 vikum skaltu hvetja viðkomandi til að sækja sér fag- hjálp. Margir eru feimnir við það en þá er gott að muna að það að leita faghjálpar er engin vísbending um að manneskja sé orðin “geðveik” eða “að missa vitið”, heldur einfaldlega að hún þurfi mögu- lega smá leiðsögn til að komast út úr yfirþyrmandi aðstæðum. Kort til að rata út úr skóginum, sem við sjáum ekki fyrir trjánum. Það sem hafa skal í huga • Aðstandendur syrgjenda reyna sitt besta til að vera til staðar fyrir fólkið sitt sem líður illa, en rétt eins og með þann hríðarbyl sem sorgin er þá veit maður oft ekki hvernig best er að bregðast við þegar ástvinur manns finnur til sorgar. Oft getur það því farið svo að atlot sem ætlað er að hressa geta farið alveg öfugt ofan í þá sem eru á einum viðkvæmasta tímapunkti lífs síns. • “Þú ættir/þú munt/þú skalt”. Ekki tala í boðhætti og ekki reyna að taka stjórnina í tilfinningalífi annarrar manneskju. Hafirðu góð ráð er vænlegra að byrja setningar á “Hefurðu hugsað út í... / Þú gætir.... “ • Að gera lítið úr tilfinningum þeirra með því að segja þeim að gráta ekki eða segja þeim að vera ekki með sektarkennd er rangt. Þetta er eðlilegur hluti sorgarferlis og þarf að fara í gegnum, ekki í kringum. • Ekki segja syrgjandi manneskju hvernig á að takast á við sorgina. Það er ekki á þínu valdi hvernig þeir kjósa að takast á við sína sorg. Það sem hún þarf frá þér er stuðningur. • Ekki dæma hegðun manneskju sem gengur í gegnum sorg. Þú getur ekki vitað hvernig henni er innanbrjósts. • Ekki gera ráð fyrir því að manneskja hafi allt á hreinu þótt hún líti vel út - dæma af ytra útliti. Þótt manneskja líti út fyrir að hafa allt á hreinu við fyrstu sýn gæti mikill sársauki enn leynst innra með henni. Ekki hrósa án þess að vita hvernig manneskjunni er innanbrjósts. Að fá hrósið “Þú ert svo sterk/ur” þegar manni líður alls ekki þannig gefur manni þau skilaboð að það sé ekki velkomið að ræða vanlíðan sína við þig. • Ekki líkja einum missi við annan. Hver einasti missir er einstakur og þótt þér gangi gott eitt til getur það farið illa í syrgjandi manneskju. • Það er staður og stund til að tala um eigin reynslu, sá tími er ekki þegar ætlunin er að hlúa að manneskju í sárum. Þrátt fyrir að oft geti verið mikil huggun í að tala við manneskju sem hefur gengið í gegnum svipað og maður ætli sér eingöngu að sýna samkennd og innlifun með syrgjanda er ekki sama hvernig farið er að því. Setningar á borð við “Ég veit nákvæmlega hvernig þér líður” eða “Ég skil þig fullkomlega” geta látið syrgjanda líða líkt og þú sért að gera lítið úr reynslu hans eða sársauka. • Það er einnig staður og stund fyrir hughreystingar og það er ekki þegar fólk er að tjá sorg sína. Þá verður fólk að fá að tjá sorg sína án þess að fá þau skila- boð að því ætti ekki að líða svona. Hughreystingar eru vel meintar, en það sem þær geta gefið til kynna er að þær tilfinningar sem manneskjan finnur fyrir séu ekki gildar, eða að þær séu ekki viðeigandi, að þær eigi ekki að vera á ákveðinn hátt og/eða að þér finnist óþægilegt að vera í nærveru þeirra til- finninga sem manneskjan hefur þörf fyrir að tjá. Þegar fólk er tilbúið fyrir hughreystingar mun það leita eftir þeim sjálft. Fyrst þarf fólk að fá að fara í gegnum sársaukann. Tjáðu frekar samhug, gráttu með manneskjunni og vertu með henni í sársaukanum.

x

Kraftur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kraftur
https://timarit.is/publication/982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.