Kraftur - 01.01.2014, Síða 18
35
Kraftur
15 ára
34
Kraftur
15 ára
Flottir golfarar styrktu Kraft eftir Costablanca Open.
Föstudaginn 16. maí afhentu Bjarni Sigurðsson, fyrir
hönd Costablanca, og Ágúst Þór Gestsson, verðlauna-
hafi á Costablanca Open 2014, Krafti ávísun að fjárhæð
rúmar 72.000 kr. Í Costablanca Open golfmótinu í lok
apríl gátu þátttakendur keypt merktan golfbolta og rann
andvirði sölunnar í sameiginlegan sjóð og sá þátttakandi
sem fór næstur holu á 7. braut á Las Colinas átti síðan
að ákveða hvert þessi sameiginlegi sjóður myndi renna.
Á lokakvöldinu tilkynnti forsvarsmaður Costablanca að
fyrirtækið ætlaði að tvöfalda söfnunarfjárhæðina og úr
varð umrædd fjárhæð. Golfarinn Ágúst Þór Gestsson
vann þessa holukeppni og ákvað að sjóðurinn myndi
renna til Krafts. Þeir Bjarni og Ágúst afhentu Julie Coadou
og Sigríði Margréti Einarsdóttur, stjórnarkonum í Krafti,
ávísunina og var ljósmyndin tekin af því tilefni. Kraftur
þakkar Costablanca innilega fyrir þessa höfðinglegu gjöf
sem mun koma sér vel í neyðarsjóðinn sem stofnaður var
fyrir skömmu.
Starvís, starfsmannafélag Verkfræðistofunnar Verkís,
fékk að eiga eldri tölvubúnað sem féll til hjá vinnuveit-
anda þeirra. Starfsmennirnir ákváðu að efna til uppboðs
á varningnum og söfnuðust 123.600 krónur á uppboðinu.
Starfsmennirnir vildi láta gott af sér leiða með pening-
unum og höfðu samband við Kraft sem fékk að njóta þessa
rausnarlega framlags þeirra. Kraftur þakkar Starvís og
Verkís af alhug þessa höfðinglegu gjöf.
Golfarar
styrktu Kraft
Gjöf frá
Verkís
Styrktaraðilar Krafts
Bjarni Sigurðsson frá Costablanca og Ágúst Þór, vinningshafi,
afhenda Julie og Sigríði, stjórnarkonum í Krafti, verðlaunaféð.
Formaðurinn Halldóra og Salvör, ritari, tóku á móti gjöfinni úr
hendi Birkis Hrafns Jóakimssonar, formanns Starvís
Kastað
til bata
Það voru þrettán glaðar og hressar „brjóstakonur“ sem komu
heim frá velheppnaðri veiðiferð í Reykjadalsá í Reykjadal
í sumar. Sem fyrr er markmiðið að veita konum sem fengið
hafa brjóstakrabbamein tækifæri til að styrkja sig á líkama
og sál með þvi að æfa fluguköst í fögru umhverfi, njóta
samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu. Til að þessar
frábæru árlegu veiðiferðir geti orðið að veruleika hefur
stuðningur styrktaraðila skipt meginmáli. Í ár styrkti Pétur
Pétursson verkefnið með veiði og veiðihúsi í Reykjardal,
Bjarni Höskuldsson og hans félagar með frábærri leiðsögn
um árnar og Hilmar Jónsson bauð upp á kastkennslu sem
vakti mikla ánægju.
Marc bale umboðsaðili Grace-veiðistanga frá Sage afhenti
Kastað til bata tvær bleikar fluguveiðistangir í verslun-
inni Veiðihornið.
Hjónin María Anna og Ólafur frá Veiðihorninu hafa verið
með frá byrjun verkefnisins en þetta er fimmta árið sem
haldið er á vit veiðiævintýra. Þau hjón stefna að því að
selja 10 stangir og gefa 30.þúsund krónur af hverri seldri
bleikri „Grace” veiðistöng í þetta verkefni, en þetta eru mjög
vandaðar fluguveiðistangir. „Kastað til bata“ er hugmynd
frá Bandaríkjunum “Casting for recovery” og hefur verið
gaman að geta haldið þessu verkefni áfram hér á landi.
Kastað til bata er verkefni á vegum Brjóstaheilla –
Samhjálpar kvenna krabbameinsfélagsins og styrktaraðila
þar sem konum er boðið í veiðiferð
1. F.v: Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Jónína Jónsdóttir
og Elísabet Sigurðardóttir.
2. Grace veiðistöngin
3. Allur hópurinn í góðu glensi
4 F.v. María Anna, Ragnheiður,
Ásdís, Jónína, Marc Bale
og Hrund
1
2
3
4