Morgunblaðið - 23.01.2019, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 19. tölublað 107. árgangur
LISTIN ER HLUTI
AF ÞVÍ AÐ VERA
MANNESKJA
KVIKMYND
VERÐUR TIL Í
KLIPPIHERBERGI
ANÍTA ÆTLAR SÉR
AÐ KEPPA BÆÐI
Á EM OG HM 2019
VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR 30 ÍÞRÓTTIRKRISTÍN VALSDÓTTIR 33
Stofnað 2009
» Kerecis var stofnað fyrir
áratug á Ísafirði.
» Skrifstofur fyrirtækisins eru
þar í bæ, í Reykjavík og í Ar-
lington í Virginíuríki í Banda-
ríkjunum.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis, sem
framleiðir sáraumbúðir úr fiskroði,
vinnur nú að hlutafjáraukningu og
hyggst sækja 7,5 milljónir dollara,
jafnvirði 900 milljóna króna, til þess
að styðja við frekari vöxt þess á
komandi misserum. Í bréfi sem
stofnandi og forstjóri fyrirtækisins
hefur sent hluthöfum og Morgun-
blaðið hefur undir höndum kemur
fram að heildarvirði félagsins sé allt
að 9,5 milljarðar króna, miðað við
nýleg viðskipti með hluti í því.
Tekjur fyrirtækisins hafa aukist
mikið á undanförnum árum. Þannig
gera áætlanir þess ráð fyrir að tekj-
urnar verði allt að 40 milljónir doll-
ara, jafnvirði 4,8 milljarða króna, á
næsta ári. Gangi þær spár eftir hef-
ur salan áttfaldast frá árinu 2016.
Meðal hluthafa í Kerecis eru félögin
BBL 34 ehf., sem er að stórum hluta
í eigu Guðmundar Fertrams Sigur-
jónssonar, stofnanda og forstjóra fé-
lagsins, og Baldvins Björns Har-
aldssonar, tryggingafélagið VÍS og
1924 ehf. sem er í eigu Marinós
Marinóssonar.
Kerecis metið á 9,5 milljarða
Selja ígræðsluefni til að byggja upp húð- og líkamsvef fyrir 1,6 milljarða í ár
Stefna á að þrefalda söluna á árinu 2020 Sækja aukið fjármagn til vaxtar
MKerecis leitar fjármagns » 16
Morgunblaðið/Hari
Átak Kynning á vinnu átakshóps
stjórnvalda um húsnæðismál.
Magnús Heimir Jónasson, Ómar
Friðriksson og Jón Birgir Eiríksson
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra segir að fjármögnun tillagna
átakshóps um aukið framboð á hús-
næði, sem snúa að ríkinu, sé á byrj-
unarreit.
„Þetta eru auðvitað tillögur sem
eru af ólíkum toga. Sumar gera
kröfur á sveitarfélög, aðrar þurfa að
ræðast milli aðila vinnumarkaðar,
sumt af þessu horfir til ríkisins. Af
því sem horfir til ríkisins þá eru at-
riði þarna sem ekki er augljóst að
þurfi að fjármagna sérstaklega, t.d.
Keldnalandið. En annað þarf að
skoða með fjármögnun og við erum
bara á byrjunarreit með það má
segja,“ segir Bjarni.
Átakshópurinn í húsnæðismálum
kynnti tillögur sínar á blaðamanna-
fundi í gær. Spurður hvort hug-
myndir átakshópsins rúmist innan
fyrirhugaðra aðgerða stjórnvalda í
húsnæðismálum segir Bjarni svo
vera. „Jú, það eru til dæmis atriði
þarna sem eru framhald af ein-
hverju sem hefur verið í gangi eins
og almennu íbúðirnar og þau fé-
lagslegu úrræði sem þar er að
finna,“ segir Bjarni og bætir við að
það sé jákvætt að vilji sé til að halda
því verkefni áfram.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formað-
ur Eflingar, Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR, og Björn Snæbjörns-
son, formaður Starfsgreina-
sambandsins, fagna öll tillögum
átakshópsins. „Ég get ekki betur
séð en að það sé margt þarna sem
okkur líst mjög vel á,“ segir Sólveig
Anna. Hún nefnir í fyrsta lagi þá til-
lögu er varðar leitun að samstarfi
um fjármögnun húsnæðisfélagsins
Blæs.
Þá segir Ragnar Þór að ef hægt
verði að framkvæma tillögur átaks-
hópsins sé það „risastórt skref“ í átt
að lausn kjaradeilunnar.
Fjármögnun tillagna á byrjunarstigi
Skýrslu um aukið framboð á íbúðum skilað Forystumenn verkalýðsfélaganna fagna tillögum hópsins
MTillögur í húsnæðismálum »6
Ekki er útlit fyrir að snjókomu muni linna á næstu dögum,
samkvæmt veðurspám. Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur
ofan á svart þá hafa hlýindi inni á milli brætt snjó og stíflað
niðurföll, eins og þessir starfsmenn Veitna hafa glímt við.
verið hæg sökum snjókomu og þá hafa rútur lent í vandræðum
víða um land vegna mikilla vinda og úrkomu. Til að bæta gráu
Snjór, slabb og stífluð niðurföll í höfuðborginni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Þessi framleiðsla uppfyllir um-
rædd skilyrði og því fær framleið-
andinn þessa endurgreiðslu,“ segir
Skarphéðinn Guðmundsson, dag-
skrárstjóri RÚV.
Lögum samkvæmt eiga framleið-
endur kvikmynda eða sjónvarps-
efnis á Íslandi kost á endur-
greiðslum á allt að 25% af fram-
leiðslukostnaði. Áramótaskaup
Sjónvarpsins fellur undir þessi lög.
Framleiðslufyrirtækið Glass River
fékk 10,2 milljónir kr. vegna
Skaupsins 2017, RVK Studios 10,6
milljónir kr. vegna Skaupsins 2016
og Stórveldið fékk 8 milljónir
vegna Skaupsins 2015. »2
Tíu milljónir í endur-
greiðslu ár hvert