Morgunblaðið - 23.01.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Hafnarbraut 25 | 200 Kópavogi | Sími 554 0000 | www.klaki.is
HVOLFARARKARA
Handhægir ryðfríir karahvolfarar
í ýmsum gerðum.
Tjakkur vökvadrifinn með
lyftigetu frá 900 kg.
Halli að 110 gráðum.
Vinsælt verkfæri í
matvælavinnslum
fiski – kjöti – grænmeti
Veður víða um heim 22.1., kl. 18.00
Reykjavík -4 snjóél
Hólar í Dýrafirði -2 snjókoma
Akureyri -5 léttskýjað
Egilsstaðir -3 skýjað
Vatnsskarðshólar -6 heiðskírt
Nuuk -9 skúrir
Þórshöfn 2 heiðskírt
Ósló -4 alskýjað
Kaupmannahöfn 0 þoka
Stokkhólmur 0 snjóél
Helsinki -17 skýjað
Lúxemborg -3 skýjað
Brussel 0 snjókoma
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 1 alskýjað
London 2 skúrir
París 1 þoka
Amsterdam 0 þoka
Hamborg 0 heiðskírt
Berlín -2 heiðskírt
Vín -4 þoka
Moskva -15 heiðskírt
Algarve 15 skýjað
Madríd 6 súld
Barcelona 9 léttskýjað
Mallorca 10 léttskýjað
Róm 6 rigning
Aþena 12 skýjað
Winnipeg -12 snjóél
Montreal -20 snjókoma
New York -6 heiðskírt
Chicago -5 þoka
Orlando 20 léttskýjað
23. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:35 16:45
ÍSAFJÖRÐUR 11:02 16:28
SIGLUFJÖRÐUR 10:45 16:10
DJÚPIVOGUR 10:10 16:09
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á fimmtudag Gengur í austan og suðaustan 10-18
m/s með snjókomu í flestum landshlutum.
Á föstudag Snýst smám saman í ákveðna norð-
austanátt með snjókomu austan- og norðanlands.
Hæg vestlæg eða breytileg átt, víða bjartviðri og úrkomulítið en hvessir og fer að snjóa aftur
norðaustan- og austantil seinnipartinn. Frost víða 2 til 15 stig, kaldast inn til landsins.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Breiðholt verður eitt prestakall með
þremur sóknum verði breytingartil-
laga þess efnis samþykkt á kirkju-
þingi í haust.
Unnið var að sam-
einingu Breið-
holtsprestakalls
og Fella- og Hóla-
prestakalls en nú
er hugmyndin að
Seljaprestakall
verði einnig með í
sameiningunni.
Séra Gísli Jón-
asson, prófastur í
Reykjavíkurpró-
fastsdæmi eystra, sagði gert ráð fyrir
því að sóknirnar héldu sér áfram, það
er Breiðholtssókn, Fella- og Hóla-
sókn og Seljasókn. „Hugmyndin er
að það verði einn sóknarprestur og
fjórir prestar sem þjóna þessum
þremur sóknum. Það eru jafn margir
prestar og þjóna þeim í dag,“ sagði
Gísli. „Kosturinn við þetta er sá að
samstarf sóknanna mun aukast og
samvinna og samþætting á ýmsum
sviðum. Starfskraftar prestanna
munu nýtast betur og þetta gerir
mögulegar sameiginlegar manna-
ráðningar vegna barna- og æskulýðs-
starfs, starfs fyrir eldri borgara og
tónlistarstarfs í kirkjunum. Einnig er
reiknað með að fjármunir muni nýt-
ast betur.“
Gísli segir að mikið sé horft til auk-
innar þjónustu við innflytjendur sem
eru margir í Breiðholti. Séra Toshiki
Toma, prestur innflytjenda, er kom-
inn með starfsaðstöðu í Breiðholts-
kirkju og heldur m.a. utan um Al-
þjóðlega söfnuðinn sem kemur þar
saman. Þar eru reglulegar guðsþjón-
ustur fyrir innflytjendur alla sunnu-
daga og er kominn safnaðarkjarni.
Fólk sem ekki var kristið hefur látið
skírast til kristinnar trúar.
Liggja undir skemmdum
Breiðholtskirkja þarfnast mikils
viðhalds og mun sóknin fá 20 millj-
ónir úr Jöfnunarsjóði sókna á þessu
ári. Gísli segir að með því sé hægt að
hefja nauðsynlegar viðgerðir. Hann
segir að mikill niðurskurður á sókn-
argjöldum frá hruni sé farinn að
segja til sín, það hafi haft áhrif á
tekjur safnaðanna og Jöfnunarsjóðs-
ins.
„Það hefur ekki verið almennilegt
viðhald á kirkjuhúsum í tíu ár frá
hruni,“ sagði Gísli. „Í mínu prófasts-
dæmi er viðhaldsþörf kirknanna upp
á hundruð milljóna. Mesta þörfin er í
Kópavogskirkju þar sem menn eru í
kapphlaupi við tímann að bjarga
glerlistaverkum Gerðar Helgadótt-
ur. Það er búið að laga eina hlið kirkj-
unnar. Fjárþörfin er hátt í hundrað
milljónir í þeirri einu kirkju.“
Gísli nefnir einnig Laugarnes-
kirkju en hluta hennar hefur verið
lokað vegna myglu. Það eru afleið-
ingar af viðhaldsleysi. Kirkjuna
teiknaði Guðjón Samúelsson, húsa-
meistari ríkisins, og er ytra byrði
hennar friðað. Sjötíu ár eru liðin á
þessu ári frá vígslu kirkjunnar.
Sameining prestakalla í Breiðholti
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Breiðholtskirkja Alþjóðlegi söfnuðurinn er starf fyrir innflytjendur.
Þrjár sóknir og eitt prestakall Bíður ákvörðunar kirkjuþings Mun leiða til betri nýtingar starfs-
fólks og fjármuna Margar kirkjur liggja undir skemmdum vegna niðurskurðar á sóknargjöldum
Séra Gísli
Jónasson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er talsvert um fyrirspurnir.
Margir hafa að undanförnu sótt um
aðild að Kjarafélagi viðskiptafræð-
inga og hagfræð-
inga (KVH),“ seg-
ir Birgir Guð-
jónsson, for-
maður félagsins.
Margir nýir
félagsmenn komi
úr VR.
„Það er fólk
sem hefur verið í
VR og er óánægt
með stefnuna hjá
félaginu. Því líkar
ekki hinn herskái tónn,“ segir Birgir.
Um 1.650 félagsmenn eru nú í
KVH og hefur þeim fjölgað um 13%
frá ársbyrjun 2018.
KVH er eitt aðildarfélaga Banda-
lags háskólamanna, BHM.
Um 7% fjölgun í BHM
Um 13.400 félagsmenn voru í
BHM í september sl. Það er 7%
fjölgun á einu ári. Fræðagarður -
stéttarfélag háskólamenntaðra er
eitt aðildarfélaga BHM.
Bragi Skúlason, formaður Fræða-
garðs, segir að í lok ársins 2016 hafi
tæplega 2.000 félagsmenn verið í fé-
laginu en rúmlega 2.400 í lok árs
2018. Það er um 20% fjölgun.
Hann greini ekki straum úr VR
yfir í Fræðagarð. „Á einkamarkaði
eru nú um 900 félagsmenn í Fræða-
garði, tæplega 800 hjá ríkinu. Þá
erum við með félagsmenn hjá
sveitarfélögum um land allt, hjá
sjálfseignarstofnunum o.fl. Fræða-
garður starfar á landsvísu og í félag-
inu eru þrjár fagdeildir og mikill
fjöldi starfsheita,“ segir Bragi.
Líka fjölgun hjá lykilmönnum
KVH er ekki eina stéttarfélagið
sem hefur fengið til sín fyrrverandi
félagsmenn í VR.
Fram kom í Morgunblaðinu fyrr í
þessum mánuði að félagsmenn í
stéttarfélaginu Félag lykilmanna
(FLM) eru nærri tvöfalt fleiri en
fyrir ári. Þeir voru um 400 í byrjun
árs 2018 en eru nú rúmlega 700.
FLM er stéttarfélag stjórnenda
og sérfræðinga. Gunnar Páll Páls-
son, formaður FLM, sagði óánægju
með herskáan tón verkalýðshreyf-
ingarinnar meðal skýringa á aukn-
um áhuga á félaginu. Félagsmenn
telji sig ekki eiga samleið með verka-
lýðshreyfingunni.
Hætta í VR og
ganga í KVH
Fjölgun í félagi viðskiptafræðinga
Birgir
Guðjónsson
Alþingi kom saman á ný í vikunni að loknu jólaleyfi.
Líflegar umræður voru á þingi í gær en þar var m.a.
kosið um tvo viðbótarvaraforseta inn í forsætisnefnd
en verkefni þeirra verður að fjalla um Klaustursmálið
og koma því í viðeigandi farveg. Steinunn Þóra Árna-
dóttir, þingmaður VG, og Haraldur Benediktsson frá
Sjálfstæðisflokki voru kosin. Farið var eftir því að
þingmenn væru óumdeilanlega ótengdir málinu og
hefðu hvorki tjáð sig um það í ræðu né riti. Þingmenn
Miðflokksins gagnrýndu þingforseta harðlega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þingmenn stinga saman nefjum
Störf Alþingis komin á fullt að loknu jólaleyfi