Morgunblaðið - 23.01.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Seðlabankinn berst hetjulegagegn klámbylgjunni í list
klassísku karlanna og náði sein-
ast að koma ögrandi málverki á
bak við lás og slá. Aðgerðin tók
nokkra áratugi, sem er í góðum
takti við tímann sem tekur bank-
ann að afgreiða skýrslur þar sem
allt er tryggilega hulið og ekkert
bert, sem er þakkarefni.
S.Í. skaparfrábært
fordæmi fyrir
aðra banka og
ekki síðra
eftirdæmi, því
að listrænir
sérfræðingar
umboðsmanns
Alþýðunnar í
Kreml höfðu
fyrir löngu
upprætt hina
nöktu ögrun
hjá sér.
Nafnlausar hetjur hafa marg-oft gert atlögu að litlu haf-
meyjunni í Kaupmannahöfn sem
er að sögn allsber sé sporðurinn
talinn með. Danska lögreglan hef-
ur ekki fundið þessa verði sið-
væðingar. En nú er talið að í kjöl-
far frétta héðan muni böndin
„berast“, (vafasamt orðalag), að
starfsmönnum danska seðlabank-
ans.
En er sanngjarnt að Seðla-bankinn verji sig fyrir voð-
anum en hóti svo að glenna allt
framan í almenning þegar starfs-
menn hans eiga frí! En óhjá-
kvæmilegt er að benda á Einars-
garð við suðaustanverðan Laufás-
veg þar sem styttan Pomona,
gyðja ávaxta, hefur glennt sig
framan í alla síðan 1954!
Gyðja á-vaxta heyrir beint und-ir bankann svo að hann hlýt-
ur að bregðast hart við.
Aldingyðjan Pomona.
Pomona glennir sig
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Alls bárust Úrskurðarnefnd um-
hverfis- og auðlindamála 153 kæru-
mál á síðasta ári samkvæmt bráða-
birgðatölum sem fengust hjá
nefndinni í gær. Tekist hefur að
fækka óafgreiddum málum hjá
nefndinni.
Skrifstofa úrskurðarnefndarinnar
er að leggja lokahönd á samantekt
yfir starfsemina í fyrra en fyrir ligg-
ur að fjöldi kærumála sem nefndinni
bárust í fyrra er svipaður og á árinu
2017. Lokið var afgreiðslu alls 188
mála á nýliðnu ári, sem eru til muna
fleiri mál en afgreidd voru á árinu
2017 þegar lokið var 144 málum.
114 mál biðu afgreiðslu 1. jan.
Málahalinn hefur því styst hjá úr-
skurðarnefndinni en 1. janúar sl. var
ólokið 114 málum sem biðu af-
greiðslu samanborið við 149 mál sem
ólokið var 1. janúar 2018.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála hefur nú lokið sjöunda
starfsári sínu, en nefndin var sett á
laggirnar 1. janúar 2012. Fljótlega
kom í ljós að kærur til nefndarinnar
voru mun fleiri en reiknað hafði ver-
ið með og óútkljáðum málum fjölg-
aði. Náði kærufjöldinn hámarki á
árinu 2016 þegar nefndinni bárust
175 kærur á einu ári.
Fengu 153 kærumál og afgreiddu 188
Málahalinn styttist í fyrra hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fiskeldi Ógilding starfsleyfa var
meðal mála nefndarinnar í fyrra.
Heimavellir, stærsta leigufélag
landsins, hefur verið að endurskipu-
leggja eignasafnið sitt en á síðasta
ári seldi félagið alls 210 íbúðir fyrir
6,2 milljarða króna. Þar af var eigna-
sala á fjórða ársfjórðungi 2,9 millj-
arðar króna.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í tilkynningu Heimavalla til
Kauphallarinnar í gær. Þar segir
m.a. að eitt af forgangsverkefnum
félagsins sé endurskipulagning á
eignasafninu. Áhersla hafi verið á að
selja stakar eignir og einingar sem
falla ekki að stefnu félagsins, eins og
markaðsaðilum hafi verið kynnt í
nóvember sl.
Heildareignasala Heimavalla á ár-
unum 2018 til 2020 er ráðgerð um 17
milljarðar króna en á móti hyggst fé-
lagið bæta við sig nýjum hagkvæm-
um eignum, eins og það er orðað í til-
kynningu til Kauphallar í gær.
122 íbúðir seldar á Ásbrú
Einn liður þessa verkefnis er end-
urskipulagning eignasafnsins á
Ásbrú og hefur félagið ákveðið að
selja níu fjölbýlishús á Ásbrú sem til-
heyra svokölluðu 900 hverfi. Um er
að ræða 122 íbúðir sem eru að meðal-
tali 155 fm að stærð og 32 stúdíó-
íbúðir sem eru ríflega 40 fm hver.
Eftir sölu þessa eignasafns mun fé-
lagið eiga og reka 583 íbúðir á Ásbrú
og er meðalstærð þeirra 98 fm.
Heimavellir hafa gert samkomu-
lag við fyrirtækjaráðgjöf Lands-
bankans um sölu eignasafnsins.
Félagið varð til árið 2015 með
samruna þriggja leigufélaga á hús-
næðismarkaði. Meðal eigenda eru
lífeyrissjóðir, tryggingafélög, eig-
endur Stálskipa og ýmsir fleiri fag-
fjárfestar. Heimavellir voru skráðir
á hlutabréfamarkað sl. vor.
Heimavellir seldu
fyrir 6,2 milljarða
Selja á níu fjölbýlishús á Ásbrú í ár
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fasteignir Heimavellir ætla að selja
122 íbúðir í níu blokkum á Ásbrú.