Morgunblaðið - 23.01.2019, Blaðsíða 11
Umsóknir um alþjóðlega vernd árið 2018
Fjöldi umsókna um alþjóðlega vernd
Þjóðerni umsækjendaKyn og aldur umsækjenda
Þau fi mm lönd þaðan
sem fl estir hafa komið
Heimild: Útlendingastofnun
100
75
50
25
0
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
800 sóttu umalþjóðlega
vernd á árinu 2018
53
42 43 43
54
87
48
64
98 100
78
90
45 46
53
108 112
Pakistan Afgan istan Sómalía Albanía Írak
Karlar Drengir
Konur
Stúlkur
60%
13%
17%
10%
Umsóknum frá ríkisborgurum ríkja
á lista yfir örugg upprunaríki fækk-
aði um tvo þriðju milli ára en um-
sóknum frá ríkisborgurum annarra
ríkja fjölgaði hins vegar um 16%
milli áranna 2017 og 2018. Kemur
þetta fram í nýjum gögnum sem birt
eru á síðu Útlendingastofnunar.
„Meðalmálsmeðferðartími allra
umsókna sem afgreiddar voru með
ákvörðun á árinu var 156 dagar en
mál í forgangsmeðferð voru að jafn-
aði afgreidd á fimm dögum,“ segir
þar, en umsækjendur um alþjóðlega
vernd í fyrra voru af 70 þjóðernum.
Heildarfjöldinn í fyrra var minni en
undanfarin tvö ár, en árið 2017 var
hann 1.096 og 2016 sóttu 1.133 um
alþjóðlega vernd hér á landi.
Sómalar voru þriðji fjölmennasti
hópur umsækjenda, 53, því næst
Afganar, 46, og Pakistanar, alls 45.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Málsmeðferð styttist töluvert í
kjölfar nýrrar reglugerðar og um-
sóknum frá þessum ríkjum fækkaði í
raun samstundis. Það er því ekki
annað hægt en að draga þá ályktun
að þessi breyting hafði mikið að
segja,“ segir Þórhildur Ósk Hagalín,
upplýsingafulltrúi Útlendingastofn-
unar, í samtali við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til breytinga
sem fyrst og fremst miða að því að
hraða málsmeðferð tilhæfulausra
umsókna um vernd frá ríkisborg-
urum öruggra upprunaríkja, svo-
kölluð forgangsmeðferð.
Árið 2018 voru umsóknir um al-
þjóðlega vernd á Íslandi 800 talsins.
Stærstu hópar umsækjenda komu
frá Írak, alls 112, og Albaníu, 108.
Færri komu frá
öruggum ríkjum
Alls 800 hælisumsóknir í fyrra
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið 7.30-18.00 alla daga vikunnar
Öll brauð
500 kr./stk.
Rúnstykki
25 kr./stk.
Kleinuhringir
150 kr./stk.
Sólardagar
Verið velkomin!
P.S. Bóndadagskakan
kemur 24. janúar
í sölu :)
hjá Almari bakara
helgina 25.-27.
janúar 2019
Frítt kaffi
með öllum
tertusneiðum
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALA
30-50%afsláttur
Jakkar • Peysur • Vesti • Bolir • Kjólar • Buxur
30%
afsláttur
af töskum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er allt komið á fullt og þetta
er farið að taka á sig fallega mynd,“
segir Steingerður Þorgilsdóttir,
einn eigenda Mathallar Höfða sem
opnuð verður í lok næsta mánaðar á
Bíldshöfða 9.
„Við ætluðum að opna 15. febrúar
en það verður ekki fyrr en í lok
mánaðarins, það tekur allt lengri
tíma en áætlað var,“ segir Stein-
gerður. Hún er eigandi mexíkóska
veitingastaðarins Culiacan á Suður-
landsbraut ásamt Sólveigu Guð-
mundsdóttur og sá staður verður
einn sjö staða í mathöllinni.
Auk þess munu þær sjálfar reka
Svanga Manga þar sem boðið verð-
ur upp á íslenskan heimilismat, en
slíkt ætti að falla vel í kramið hjá
vinnandi stéttum í nágrenninu.
Smurbrauð og morgundjúsar
„Svo verður brugghúsið Beljandi
frá Breiðdalsvík hluti af bás Svanga
Manga og tekur við þegar honum
hefur verið lokað á kvöldin. Þau
koma með kútana beint frá Breið-
dalsvík, við erum ofboðslega spennt
að fá þau,“ segir Steingerður.
Auk þess verður hægt að gæða
sér á hamborgurum frá Gastro
Truck, asískum mat frá Wok On og
indverskum mat frá Indian Grill
sem er afsprengi Gandhi í miðborg
Reykjavíkur. Þá er verið að ganga
frá samningum við Íslensku flat-
bökuna. Að síðustu er það svo
Hipstur þar sem skandinavísk
stemning svífur yfir vötnum og boð-
ið verður upp á smurbrauð,
morgundjúsa og ýmsa hollustu- og
grænmetisrétti. „Þarna verður mat-
ur frá öllum heimshornum,“ segir
Steingerður.
„Það verður eitthvað í gangi allan
daginn hjá okkur. Þú getur komið
og fengið þér morgundjús eða kaffi
þegar þú ferð á heilsugæsluna við
hliðina á morgnana. Svo verður
bakkelsi í kaffitímanum, þetta eru
ekki eingöngu matartímarnir,“ seg-
ir Steingerður.
Hún segir að alltaf verði líflegt og
góð stemning í Mathöll Höfða. „Við
verðum með pílukast og ýmsar
uppákomur um helgar. Það verður
líf og fjör hérna.“
Ný mathöll í lok febrúar
Matur frá öllum heimshornum og bjór frá Breiðdalsvík
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mathöll Höfða Opnað verður í rýminu hægra megin við aðalinnganginn.
Matvælastofnun barst í gær til-
kynning frá Arnarlaxi um gat á
nótarpoka einnar sjókvíar Arnar-
lax við Hringsdal í Arnarfirði.
Gatið uppgötvaðist við skoðun
kafara í gærmorgun og lauk við-
gerð síðar um daginn.
Samkvæmt upplýsingum Arnar-
lax var gatið um 15 cm x 50 cm og á
20 m dýpi og voru um 157.000 laxar
í kvínni með meðalþyngd 1,3 kg, að
því er segir á vef MAST.
Atvikið er til meðferðar hjá Mat-
vælastofnun og munu eftirlitsmenn
stofnunarinnar skoða aðstæður hjá
fyrirtækinu og fara yfir viðbrögð
þess. Arnarlax hefur lagt út net í
samráði við Fiskistofu til að kanna
hvort slysaslepping hafi átt sér
stað, segir ennfremur í tilkynning-
unni frá í gær.
Gat kom á eina sjókví hjá Arnarlaxi
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Lax Fljótlega tókst að loka gatinu á
einum af sjókvíum Arnarlax.