Morgunblaðið - 23.01.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Að stunda íþróttir er börn-um mikilvægt og þrosk-andi en fötlunar eða ann-arra ástæðna vegna finna
sum sig ekki á hefðbundum æfing-
um. Þeim hópi er nauðsynlegt að
mæta og allir eru velkomnir til okk-
ar,“ segir Hildur Arnar hjá Íþrótta-
félaginu Ösp. Efnt var til kynningar
á vegum félagsins í íþróttahúsi
Klettaskóla í Öskjuhlíð í Reykjavík
síðastliðinn laugardag þar sem for-
eldrum og börnum bauðst að prófa
sig í ýmsum íþróttagreinum. Í dag
taka alls um 180 einstaklingar þátt í
starfi félagsins en á þess vegum er
hægt að æfa sund, frjálsar íþróttir,
keilu, boccia, nútímafimleika, list-
dans á skautum og fótbolta en til
stendur að bæta við fleiri greinum.
Blómstra algjörlega
„Sumir sem æfa með okkur eru
með líkamlega fötlun eða þá kannski
blindir eða heyrnarlausir. Aðrir
kunna svo að vera með greiningar
eins og til dæmis AD/HD eða eru á
einhverfurófinu. Falla því kannski
ekki í hópinn og þurfa stuðning sem
góðir þjálfarar okkar geta veitt. Sé
líka haldið vel utan um þessa ein-
staklinga þá blómstra þau algjörlega
og geta sum hver þegar fram í sækir
tekið þátt í almennu starfi íþrótta-
félaganna. Að sjá slíkt gerast er
mjög ánægjulegt,“ segir Hildur.
Á kynningardeginum voru
kynntir styrktarbolir sem Öspin hef-
ur látið gera; alls 750 stykki sem
seld eru á 2.500 krónur stykkið. Bol-
irnir eru áritaðir af íslenska kvenna-
landsliðinu í fótbolta, Jóni Margeiri
og félögunum Jóa Pé og Króla.
Til tíðinda bar að í Klettaskóla
mætti Guðni Bergsson, formaður
Knattspyrnusambands Íslands, til
að veita bol viðtöku, en í tímans rás
hefur sambandið verið sterkur bak-
hjarl Asparinnar. Lagt félaginu lið
til dæmis í þjálfaramálum og öðru –
og er það stuðningur sem hefur
virkilega munað um. Fékk Guðni
góðar móttökur, en hann sagði
Asparfélögum frá ýmsu áhugaverðu
viðvíkjandi fótboltanum.
Margar keppnisferðir
Margt áhugavert er framundan
í íþróttastarfi Asparfélaga. Í næsta
mánuði fara nokkrir á alþjóðlegt
íþróttamót í Abu Dabi í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum. Þá verð-
ur bráðlega haldið á alþjóðlegt mót í
Malmö í Svíþjóð. Þangað ætlar
Öspin með lið bæði í keilu og sundi
og sendir einnig fólk á alþjóðleg
skautamót í Kanada og Finnlandi.
Hildur Arnar er móðir þeirra
Gabríellu og Aniku Árnadætra sem
báðar æfa listskauta með Ösp. Þær
eru 19 og 17 ára, báðar líkamlega
fatlaðar, og því hafa íþróttirnar gert
þeim afar gott.
„Stelpurnar byrjuðu að æfa
með hefðbundnu íþróttafélagi, sem
gekk ekki upp því þær voru á allt
öðrum stað en hinir krakkarnir. Í
Öspinni hafa þær plumað sig og
finnst gaman. Mæta reglulega á æf-
ingar í Egilshöll og fara svo á mót.
Keppnisferðir þeirra til útlanda eru
orðnar margar og hafa gefið þeim
mikið. Sjálfri finnst mér afar gaman
að fylgjast með starfinu og vera bak-
vörður í Öspinni, því allt íþróttastarf
byggist upp á því að sjálfboðaliða-
sveitirnar séu öflugar,“ segir Hildur.
Börnin blómstra í íþróttastarfinu
Þátttaka er sigur!
Íþróttafélagið Ösp er opið
öllum, ekki síst börnum
með sérþarfir. Starf fé-
lagsins var kynnt um
helgina. Boltagreinar,
boccia og frjálsar íþróttir
eru í boði og fleira er
væntanlegt á dagskrána.
Fimi Sóldís Sara Haraldsdóttir lék listir á skautunum og vakti eftirtekt.
Morgunblaðið/Eggert
Sláttur Hekla Björk Hólmarsdóttir naut sín á kynningunni í Klettaskóla.
Boltastrákar Guðni Bergsson mætti á svæðið og spjallaði um knattspyrnu
við áhugasama strákana. KSÍ hefur lengi stutt vel við starf Asparinnar.
Foreldri Hildur Arnar er í öflugri
bakvarðasveit Asparinnar.
Í átaki Samgöngustofu og fleiri
sem ber yfirskriftina Höldum fókus
eru farnar nýjar leiðir til að minna
ökumenn á hversu hættulegt það
er að nota símann undir stýri. Að
þessu sinni er sjónum beint að
þeirri áhættu sem við tökum í líf-
inu, sem stundum er þess virði að
taka. Það að nota símann undir
stýri borgar sig þó ekki eins og
sést í kynningarverkefni átaksins.
Hugsa sig tvisvar um
Auglýsingastofan Tjarnargatan
sá um hugmyndavinnu og fram-
kvæmd verkefnisins og er óhætt að
lofa sterkum hughrifum sem munu
fá fólk til að hugsa sig tvisvar um
áður en það tekur aftur upp sím-
ann við akstur. Verkefnið uppfyllir
öll skilyrði um persónuvernd og
eru engar upplýsingar af reikningi
notandans varðveittar eða miðlað
áfram, segir í frétt frá Samgöngu-
stofu.
Þetta er fjórða skiptið sem Höld-
um fókus-átakinu er hrundið af
stað en það hefur ætíð vakið mikla
athygli og sýnt mælanlegan árang-
ur í könnunum sem Samgöngu-
stofa hefur gert. Verkefnið á Ís-
landsmet í deilingu á samfélags-
miðlum en fyrsta átakinu var deilt
um það bil 36.000 sinnum á Face-
book. Hluti fyrri verkefna Höldum
fókus hefur verið notaður erlendis,
og hafa nokkur lönd lýst yfir áhuga
á að setja upp sambærilega her-
ferð og þessa. Hægt er að fara inn
á www.holdumfokus.is til að sjá
efnið.
Mesti slysavaldurinn
„Notkun síma undir stýri er af
þeim sem vinna að umferðarörygg-
ismálum í heiminum í dag talin
einn alvarlegasti og mesti slysa-
valdurinn. Það er því afar mikil-
vægt að herferð sem þessi nái at-
hygli sem flestra,“ segir Sam-
göngustofa.
Samgöngustofa með nýtt átaksverkefni í umferðarmálum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferð Margt er að varast á vegum
og fullrar einbeitingar er þörf.
Höldum fókus og tölum ekki í
farsímann við akstur bílsins