Morgunblaðið - 23.01.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Vörulyftur og varahlutir
frá sænska framleiðandanum
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Mennta- og menningarmálaráð-
herra hefur ákveðið að tillögu
Minjastofnunar Íslands að friðlýsa
ljóskastarahús við Urð á Suðurnesi
á Seltjarnarnesi. Á heimasíðu
Minjastofnunar segir að mannvirkið
sé einstakt á Íslandi og mikilvæg
heimild um hernámstímann og um-
svif breska setuliðsins hér á landi.
Húsið var byggt utan um ljós-
kastara við upphaf seinni heimstyrj-
aldar, veturinn 1940-41. Húsið var
hannað af Lloyd Benjamin, verk-
fræðingi breska setuliðsins. Sami
höfundur teiknaði gamla flugturn-
inn á Reykjavíkurflugvelli, sem frið-
aður var af ráðherra árið 2011.
Hluti af varnarbúnaði
Ljóskastarinn var hluti af varnar-
búnaði breska hersins við innsigl-
inguna að Reykjavík. Húsið tengd-
ist herskálahverfi á Suðurnesi og er
eina mannvirkið sem eftir er frá
þeim tíma. Húsið er hið eina sinnar
tegundar hér landi en vitað er um
svipuð hús í Færeyjum, við Lossie í
Skotlandi og í Ástralíu. Ekki hafa
fundist nákvæmlega eins hús og því
kann húsið við Stóruurð að hafa fá-
gætisgildi á heimsvísu.
Friðlýsingin tekur til hins stein-
steypta mannvirkis í heild og hlað-
ins sökkuls umhverfis það. Húsið er
26 fermetrar að grunnfleti, stein-
steypt ofan á grjóthleðslu. Gólf,
veggir og þak eru úr steinsteypu.
Ljóskastarahúsið hefur auk þess
gildi sem aðgengilegur minjastaður
og vinsæll áningastaður á göngu-
leiðinni um Suðurnes, enda eru
form þess, gerð og staðsetning
myndræn og fögur. Tæknileg upp-
bygging hússins er merkileg, en
löng ending steinsteypunnar ber
vott um vandaða gerð og frágang í
upphafi, segir á heimasíðu Minja-
stofnunar.
Í næsta nágrenni er golfvöllur
Nesklúbbsins og stendur húsið á
fjörukambinum milli 1. og 2. braut-
ar.
Lýstu upp skip að nóttu til
Ljóskastararnir á Seltjarnarnesi
lýstu upp skip að nóttu til, svo að
auðgreina mætti hvort þar væri vin-
ur eða fjandmaður á ferð.
Í Morgunblaðimu í júní 2012 var
fjallað um stríðsminjar á Seltjarnar-
nesi og meðal annars talað við Þór
Whitehead prófessor. Í greininni
segir m.a:
„Fallbyssurnar tvær sem reistar
voru á Valhúsahæðinni voru, ásamt
samskonar byssum í Hvalfirði, þær
stærstu sem Bretar létu reisa á Ís-
landi, með sex þumlunga (15 cm) í
hlaupvídd. Þær drógu um 12 kíló-
metra út á haf, og var ætlað að
reyna að koma í veg fyrir að Þjóð-
verjar myndu gera hér innrás.
Þrátt fyrir það þóttu byssurnar
heldur lítilfjörlegar, og segir Þór
ljóst að líklega hefðu byssurnar ekki
haldið innrásarflota Þjóðverja lengi
frá og hér hefði orðið fátt um varnir.
Þegar Bandaríkjamenn tóku við
hervörnum hér sumarið 1941 kom í
ljós að þeim þótti lítið koma til
bresku byssanna. Bættu þeir þó
sjálfir ekki úr þar sem innrásar-
hættan frá Þjóðverjum minnkaði
eftir því sem leið á stríðið.
Ljóskastararnir á Seltjarnarnesi
lýstu upp skip að nóttu til, svo að
auðgreina mætti hvort þar væri vin-
ur eða fjandmaður á ferð.“
aij@mbl.is
Ljóskastarahús úr seinni
heimsstyrjöld friðlýst
Ljósmynd/Minjastofnun
Liðin tíð Ljóskastarahúsið er mikilvæg heimild um hernámstímann.
Húsið kann að
hafa fágætisgildi
á heimsvísu
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Góður gangur er í framkvæmdum
við byggingu Brúarvirkjunar í
Tungufljóti í Biskupstungum og um
60 manns eru þar nú að störfum.
Það er HS Orka
sem stendur að
þessu verkefni
en vonir standa
til að fram-
kvæmdum ljúki í
mars á næsta
ári. Ístak er að-
alverktakinn og
þessa dagana er
verið að vinna
við stíflumann-
virki og grunn
stöðvarhússins. Þá hefur verið
grafinn skurður þar sem aðrennsl-
ispípurnar að stöðvarhúsinu munu
liggja.
Kærur afgreiddar
Það var á útmánuðum í fyrra
sem fyrsta skóflustungan að virkj-
uninni var tekin en þá áttu öll
formsatriði að vera komin á hreint.
Fyrir lá framkvæmdaleyfi frá sveit-
arfélaginu Bláskógabyggð, en út-
gáfa þess var kærð af Landvernd
og Náttúruverndarsamtökum Suð-
urlands sem töldu ekki sýnt fram á
að brýnir almannahagsmunir krefð-
ust virkjunar, verið væri að fórna
birkiskógum og votlendi og að
rannsóknum á umhverfisáhrifum
virkjunarinnar á vatnafar í ná-
grenninu væri áfátt. Úrskurð-
arnefnd umhverfis- og auðlinda-
mála taldi ekki ástæðu til að stöðva
framkvæmdir og sl. fimmtudag vís-
aði nefndin efnisatriðum kærunnar
frá.
Margeir Ingólfsson bóndi á Brú
og eigandi landsins sem virkjunin
stendur á segist því líta svo á að
fullnaðarsigur hafi unnist í málinu.
Kostar fjóra milljarða
Uppsett afl er 9,9 MW í Brúar-
virkjun sem nýtir 49 metra fallhæð
á 1.700 metrum í Tungufljóti, það
er ofan þjóðvegarins sem liggur
milli Gullfoss og Geysis. Hvorki
stöðvarhús né stíflumannvirki sjást
frá þjóðveginum og aðrennslispípur
verða allar niðurgrafnar. Um þær
verður veitt alls um 25 sekúndu-
lítrum af vatni, sem verða notaðir
til að knýja tvær túrbínur virkjun-
arinnar, en heildarkostnaður við
byggingu hennar er áætlaður rúmir
fjórir milljarðar króna.
„Sennilega eru um tólf ár síðan
ég fór að kanna möguleikana á
virkjun Tungufljótsins. Strax í upp-
hafi var mér ljóst að þetta væri
raunhæfur virkjunarkostur, rétt
eins og ítarlegar rannsóknir sem
gera þurfti leiddu í ljós,“ segir
Margeir Ingólfsson. Snemma í ferl-
inu fékk hann HS Orku að borðinu
og er þetta fyrsta vatnsaflsstöðin
sem fyrirtækið byggir.
„Alveg frá upphafi lögðum við
mikla áherslu á að framkvæmdir
væru í góðri sátt við umhverfi og
náttúru og óskuðum við eftir því
við Skipulagsstofnun að fara með
framkvæmdina í umhverfismat þó
svo að þess væri ekki þörf þar
sem hún er undir 10 MW. Matið
kom mjög vel út og nýttist það
okkur vel við undirbúning fram-
kvæmdarinnar. Því fannst mér
mjög sérstakt að Landvernd
skyldi kæra útgáfu framkvæmda-
leyfisins þegar umhverfismatið
hafði staðfest að virkjunin væri í
góðri sátt við náttúru og um-
hverfi.“
Um það bil 5 hektarar af gróð-
urlendi, að hluta til votlendi, fara
undir framkvæmdir við inntak
virkjunarinnar og til mótvægis hef-
ur HS Orka samið við Skógræktina
um að planta alls 25 þúsund
plöntum á 10 hektarar landsvæði í
Haukdal. Auk þess verður votlendi
á Mosfelli í Grímsnesi, í landi
Skógræktarinnar þar, endurheimt.
„Þessi raforkuframleiðsla fellur
einstaklega vel að umhverfinu og
þörfum samfélagsins, “ segir Mar-
geir Ingólfsson. Þannig verður raf-
magni frá væntanlegri aflstöð veitt
um jarðstreng að tengivirki RA-
RIK að Reykholti í Biskupstungum
og þaðan áfram til kaupenda í ná-
grenninu. Í uppsveitum Árnessýslu
eru til dæmis margar garðyrkju-
stöðvar en mikla orku þarf til
framleiðslunnar þar.
Virkja í sátt við umhverfi og samfélag
Framkvæmdir við Brúarvirkjun í Biskupstungum í fullum gangi Um 60 manns eru á verkstað
9,9 MW beisluð í Tungufljóti Kærum var hafnað Garðyrkjustöðvar þurfa mikla raforku
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Brúarvirkjun Búið er að steypa grunn stöðvarhúss og þar eru komnar inn-
takspípur að tveimur túrbínum virkjunarinnar sem verður tilbúin að ári.
Margeir
Ingólfsson
Brúarvirkjun í Tungufljóti
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Geysir
Brú
Hv
ítá
Tu
ng
ufl
jó
t
Stífl a
Aðrennslispípa
Stöðvarhús
35
Gullfoss