Morgunblaðið - 23.01.2019, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Með innblæstri frá birtunni í Provence, skapaði L’OCCITANE hið nýja
Immortelle Reset sem býr yfir kröftugri blöndu náttúrulegra
innihaldsefna. Gullin hylki sem búa yfir kröftum Immortelle
ilmkjarnaolíunnar, fljóta í einstöku serumi úr kryddmæru sem hjálpar
húð þinni að endurnýja sig eftir erilsaman dag.
Sýnilegan mun má sjá á húðinni sem virðist ÚTHVÍLD og FERSK.
loccitane.com
ÚTHVÍLD OG ENDURNÆRÐ
VAKNAÐU MEÐ FERSKA OG GEISLANDI HÚÐ
#HelloGoldMorning
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
Skuld flugfélagsins
Ernis ehf. við
ISAVIA hefur verið í
umræðunni í frétta-
miðlum undanfarið
og hefur hún vakið
athygli mína. Hörður
Guðmundsson, for-
stjóri félagsins, hefur
verið til svara fyrir
félagið og hefur gert
það af hógværð og án
stóryrða, sem hans
er von og vísa.
Segja má að Hörður sé einn af
brautryðjendum farþegaflugs á Ís-
landi, með flugvélum af minni
stærðargráðunni, allt frá því að
slíkt flug var stundað á vanbúnum
eins hreyfils flugvélum. Með ótrú-
legum dugnaði og þrautseigju hef-
ur honum tekist að byggja upp
flugstarfsemi sína á þann veg að
aðdáun vekur miðað við þann
markað, sem í boði er. Allar að-
stæður frá náttúrunnar hendi, á
landi og ekki síst veðurfarslegar
gera miklar kröfur til rekstursins.
Um það bil 50 ára flugrekstur
Harðar hefur vissulega ekki verið
áfallalaus, en hann hefur ekki látið
bugast og haldið áfram ótrauður
og eflst við hverja raun.
Starfsemi sína byggir flugfél-
agið fyrst og fremst á áætlunar-
og leiguflugi auk sjúkraflugs, þeg-
ar flytja þarf sjúklinga til með-
ferðar erlendis. Rétt er að halda
til haga að áætlunarflug félagsins
er til lítilla og einangraðra staða
og til staða, sem aðrir aðilar hafa
af hagkvæmisástæðum neyðst til
að hætta flugi til. Í dag er flogið á
vegum félagsins með flugvélum,
sem bjóða upp á öryggi og þæg-
indi og hafa eiginleika og tækja-
búnað sem best stendur til boða í
dag og njóta þess bæði farþegar
og áhafnir.
Auk þess hefur Herði tekist að
hlúa að starfseminni, með bygg-
ingu mjög hentugs húsnæðis á
Reykjavíkurflugvelli og er umbún-
aður þar allur fyrir farþega og
starfsmenn til mikillar fyrir-
myndar.
Ekki leikur vafi á að þessi þjón-
usta er mjög mikilvæg lands-
mönnum öllum og er þakkarvert
að hún skuli standa þeim til boða
svo og að eiga menn eins og Hörð
Guðmundsson, sem hefur alla tíð
staðið fast í lappirnar til að halda
þessum rekstri gangandi.
Ljóst er að félagið hefur nú ráð-
ist í mikla fjárfestingu með kaup-
um á 32 sæta Dornier 328-flugvél-
inni. Þetta hefur kallað á fjárfreka
og mikla vinnu við þjálfun áhafna
og tæknimanna. Skrásetningar-
ferlið hefur tekið um sjö mánuði
og má geta nærri, að þessi langi
tími hefur reynt mjög á fjárhags-
stöðu félagsins. Flugvélin var loks
tilbúin og fór sitt fyrsta áætlunar-
flug núna í byrjun janúar, en
Adam var ekki lengi í Paradís.
ISAVIA ákvað skyndilega að
stöðva rekstur þessarar flugvélar,
vegna skuldastöðu flugfélagsins
við þá og brugðust við tíma-
bundnu ástandi á þann máta, að
mér finnst með ólíkindum og þeim
til vansa.
Þar sem verið var að vinna
ásamt erlendum sérfræðingum að
viðhaldi flugvélarinnar í upphituðu
flugskýli, var vinnan
við flugvélina stöðvuð
og henni læst utan
dyra, þar sem hún var
óaðgengileg starfs-
mönnum félagsins.
Fyrir náð og mis-
kunn gaf ISAVIA
heimild til að færa
flugvélina aftur inn í
skýli, til þess að ljúka
viðhaldsvinnunni. Að
þessari vinnu lokinni
var hún síðan dregin
út aftur og henni stillt
upp, læstri á flugvélastæðinu,
óvarinni fyrir veðrum og vindum
uns skuldir verða greiddar. Þar
stendur flugvélin í dag.
Þessi aðgerð lýsir ótrúlega óvin-
samlegri afstöðu til viðskiptavinar,
sem greiðir um 100 milljónir til
stofnunarinnar árlega, fyrir hækk-
uð lendingargjöld, ný tilkominna
farþegaskatta, sem eru jafnháir og
fyrir þá farþega sem ferðast milli
landa, nýtilkomin yfirflugsgjöld
svo og leigu fyrir aðstöðu farþega
á áfangastöðum úti á landi. Er
þetta ekki algert skilningsleysi á
því hlutverki sem ISAVIA-menn
eiga að hafa – að reyna ekki að
liðsinna Herði Guðmundssyni á
erfiðum og viðkvæmum tíma, í
stað þess að beinlínis að valda
flugfélaginu skaða og gera því erf-
iðara en ella að greiða skuld sína.
Geta má þess að vegna endur-
nýjunar tölvubúnaðar ISAVIA
hafði Flugfélaginu Erni ekki bor-
ist neinn reikningur fyrir gjald-
föllnum þjónustugjöldum svo mán-
uðum skiptir, en félagið greiddi
samt um 50 milljónir til ISAVIA á
árinu 2018. Ekki breytir það þó
því, að skuldin er söm þótt reikn-
ingar hafi ekki borist, en kvöðin
til uppgjörs var tæpast eins rík
fyrir bragðið.
Þessar spurningar hljóta að
vakna:
Hvers vegna þurfti að grípa
til þessara harkalegu að-
gerða?
Er það eðlilegt, að farþega-
skattar séu þeir sömu fyrir
innanlands- og millilandaflug?
Er það eðlilegt, að stofnanir
geti kyrrsett atvinnutæki án
aðkomu sýslumanns?
ISAVIA-menn hljóta að geta
fundið sér eitthvað þarfara og ár-
angursríkara að gera, svo sem að
hlúa að grasrótinni í fluginu og
reyna að lágmarka ýtrustu kröfur
sem berast frá ESB og EES,
þannig að reglugerðafarganið
verði einkafluginu og sviffluginu
ekki ofviða.
ISAVIA verður einnig að láta
virkilega til sín taka og sporna við
aðgerðum skaðvalda sem vinna
leynt og ljóst að því, beint fyrir
augum ISAVIA, að eyðileggja
Reykjavíkurflugvöll til stórkost-
legs tjóns fyrir alla landsmenn og
flugstarfsemi, flugvöll sem á ekki
og getur ekki verið annars staðar
en hann er núna. Eftir því sem
nefndarálitum fjölgar, er það aug-
ljósara.
ISAVIA og
Flugfélagið Ernir
Eftir Svein
Björnsson
Sveinn
Björnsson
»Er þetta ekki algert
skilningsleysi á því
hlutverki sem ISAVIA-
menn eiga að hafa – að
reyna ekki að liðsinna
Herði Guðmundssyni á
erfiðum og viðkvæmum
tíma, í stað þess að bein-
línis valda flugfélaginu
skaða og gera því erfið-
ara en ella að greiða
skuld sína.
Höfundur er fyrrverandi eigandi
Flugþjónustunnar ehf.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Viðskipti
Allt um
sjávarútveg