Morgunblaðið - 23.01.2019, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
DRIFSKÖFT
LAGFÆRUM – SMÍÐUM
JAFNVÆGISSTILLUM
OG SELJUM NÝ
Hjöruliðir og íhlutir í flestar gerðir bifreiða
Þegar ég hef tímann fyrir mér finnst mér gott að byrja daginn áfjósverkunum; mjólka og gefa kúnum. Núna þegar þingstörfineru byrjuð þarf ég að vera kominn í bítið til Reykjavíkur og
legg því snemma af stað til að vera á undan morgunumferðinni; lest-
inni sem nær stundum frá Mosfellsbæ og niður fyrir Ártúnsbrekku,“
segir Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er
53ja ára í dag. Haraldur býr á Vestri-Reyni við Akrafjall og rekur þar
bú með fjölskyldu sinni. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á búskap og
þannig meðal annars leiddist ég út í félagsmálin og svo hvað af öðru,“
segir Haraldur sem um árabil var formaður Bændasamtaka Íslands.
Hann var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2013 og hefur
allan þann tíma setið í fjárlaganefnd.
„Að sitja í fjárlaganefnd gefur manni einstök tækifæri til að sjá og
kynnast hinum aðskiljanlegustu málum og aðstæðum. Eðlilega breyt-
ist lífssýn manns við slíkt og gerir mann væntanlega víðsýnni. Að eiga
sæti á Alþingi er líka mikill skóli en það sem mér finnst annars standa
uppúr er sú góða vinátta sem er milli fólks, þvert á flokka. Fólk kann
að aðskilja pólitíkina og hið persónulega sem í félagsmálum er lykill
að árangri,“ segir Haraldur. Hann er kvæntur Lilju Guðrúnu Eyþórs-
dóttur og eiga þau þrjú börn; Benediktu 23ja ára, Eyþór 18 ára og
yngst er Guðbjörg 11 ára.
„Í gamla daga tók ég þátt í leiklistarstarfi og hafði gaman af,“ segir
Haraldur spurður um áhugamálin. „Jú, og svo hef ég gaman af
traktorum og vélum og fleiru slíku viðvíkjandi sveitinni. Þar hangir
líka á spýtunni að hafa áhuga á sögu, landafræði og örnefnum eins og
oft gerist með aldrinum.“ sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stjórnmál Mikill skóli að sitja á Alþingi, segir Haraldur Benediktsson.
Bóndinn á Alþingi
Haraldur Benediktsson er 53ja ára í dag
Þ
uríður Sigurðardóttir
fæddist 23. janúar 1949
heima hjá sér í Laugar-
nesi í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún gekk í
Laugarnesskóla, Gagnfræðaskóla
verknáms, Fjölbraut í Breiðholti
(listabraut) og Listaháskóla Íslands
og brautskráðist þaðan með BA
gráðu 2001.
Þuríður byrjaði að vinna í fisk-
vinnslu 11 ára aldri og hefur síðan
einnig unnið verslunarstörf og verið
flugfreyja, en fyrst og fremst hefur
Þuríður auðvitað verið söngkona og
myndlistarmaður. Hún sló í gegn
þegar hún kom fram á skemmti-
staðnum Lídó 1965 og var drifin í
stúdíó þar sem hún söng með
hljómsveitinni Lúdó og Stefáni lag-
ið „Elskaðu mig“ inn á plötu. Lagið
varð geysivinsælt og í framhaldinu
hóf hún að syngja með Hljómsveit
Magnúsar Ingimarssonar og varð
það að fimm ára farsælu samstarfi.
Hljómsveitin lék einkum á
skemmtistaðnum Röðli (við Braut-
arholt) sem var opinn alla daga vik-
unnar. Ásamt Þuríði söng Vil-
hjálmur Vilhjálmsson með hljóm-
sveitinni og seinna Pálmi
Gunnarsson.
Árið 1969 kom út fyrsta tveggja
laga sólóplata Þuríðar með lög-
unum, „Ég ann þér enn“ og „Ég á
mig sjálf“. Platan og söngurinn
hlutu lof gagnrýnenda og í
vinsældakosningum var hún valin
„vinsælasta söngkona ársins“ og
platan „hljómplata ársins“. Eftir ár-
in með Hljómsveit Magnúsar Ingi-
marssonar söng Þuríður með ýms-
um hljómsveitum og listamönnum
svo sem: Ragnari Bjarnasyni,
Gunnari Þórðarsyni, Jóni Páli
Bjarnasyni og Guðmundi Ingólfs-
syni. Hún var liðsmaður Sumar-
gleðinnar sem ferðaðist um landið
nokkur sumur.
Þuríður hefur í meira mæli snúið
sér að myndlist og sýnt víða bæði
innanlands og utan. Hún fæst fyrst
og fremst við olíumálverk og við-
fangsefnið er gjarnan náttúran,
stundum með þröngt eða óvænt
sjónarhorn. Hún hefur kennt við
Myndlistaskóla Reykavíkur. Þura
hefur verið sýningarstjóri, m.a. með
Markúsi Þór Andréssyni á sýning-
unni Tívolí, sem sett var upp í
Listasafni Árnesinga 2005. Þura
var einn af stofnendum START
ART listamannahúss sem starfrækt
var frá árinu 2007 - 2009. Galleríið
stóð fyrir listverkefninu „Lauga-
vegurinn“ á Listahátíð í Reykjavík
vorið 2009 með þátttöku fjölda lista-
manna og almennings. Í framhaldi
var gefin út bókin Laugavegurinn
2009 og þar sat Þuríður í ritstjórn.
Meðal einkasýninga Þuríðar má
nefna Á milli laga, Listasafn ASÍ,
Þuríður Sigurðardóttir (Þura), myndlistar- og söngkona – 70 ára
Ljósmynd/Ragnheiður Arngrímsdóttir
Fjölskyldan Þuríður, Friðrik, börn, tengdabörn og barnabörn.
Var vinsælasta
söngkona landsins
Söngkonan Þuríður um það leyti
sem hún sló fyrst í gegn, 16 ára.
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kristinn Adólf Gústafsson,
málarameistari í Hafnarfirði,
er áttræður í dag. Börn hans
eru Þröstur Róbert, f. 1963,
Gunnar Páll, f. 1965, Bragi
Björn, f. 1988, og Sigrún
Svanhvít, f. 1991. Kristinn
Adólf dvelur nú á afmælis-
daginn í borginni Pattaya í
Taílandi.
Árnað heilla
80 ára
Kristinn ásamt dóttur sinni, Sigrúnu Svanhvíti.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.