Morgunblaðið - 23.01.2019, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert fær í flestan sjó svo þér er
óhætt að vera stórtæk/ur. Finndu út hvað öðr-
um finnst áður en þú byrjar að framkvæma.
Nágrannaerjur pirra þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Í dag ættir þú að reyna að verja tíma
með góðum vinum. Segðu skilið við nei-
kvæðnina sem var búin að hreiðra um sig
innra með þér. Allt verður betra ef maður
ákveður að sjá það bjarta í tilverunni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Dembdu þér í slaginn og láttu engan
bilbug á þér finna þótt hart sé að þér sótt.
Teygðu þig út á ystu nöf í vissu máli, biddu
fólk að vísa þér á einhverja sem geta veitt ráð.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þið skuluð búa ykkur undir eitthvað
óvænt í dag og það kemur úr þeirri átt sem þið
eigið síst von á. Sumir taka engu tiltali sama
hvað þú reynir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú gefur þér tíma til hvíldar núna þá
kemur þú í veg fyrir veikindi síðar. Ef hugurinn
reikar, beindu honum þá aftur að því sem
skiptir máli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur í mörg horn að líta og nauman
tíma, svo þú skalt temja þér að fara vel með
tímann. Allt sem þú snertir verður að gulli.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sjaldan er ríkari ástæða til að gæta heilsu
sinnar en þegar streitan er í algleymingi.
Mundu að enginn er fullkomin/n og því er
óumflýjanlegt að vinir valdi vonbrigðum af og
til.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki er ósennilegt að þú lendir í
útistöðum við einhvern í dag. Sæktu styrk í
vissuna um að þú ráðir við aðstæður. Þú hefur
makann í vasanum þessar vikurnar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft aldeilis að taka þér tak, ef
þú vilt ekki missa allt út úr höndunum. Sestu
nú niður og farðu í gegnum málin og for-
gangsraðaðu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver þér náinn er að reyna að ná
athygli þinni en þú gefur honum engan gaum.
Vertu sanngjarn og mundu að allir eru að berj-
ast fyrir sínu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér finnst eins og einhver sé að
leggja stein í götu þína. Kíktu í bókabúð, á
söfn eða á aðra staði sem þú leggur ekki í
vana þinn að sækja.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú er ánægður með lífið. Þú hefur lagt
hart að þér að ná á þennan stað sem þú ert á.
Nú er kominn tími til að uppskera og þakka
fyrir árangurinn.
Rusl fylgir manninum, haugar afrusli. Það er rusl á landi og höfin
eru full af rusli. Svo er geimrusl. Í
geimnum eru á sveimi gervihnettir,
sem hættir eru að virka og komnir af
braut, auk alls kyns brotajárns,
meðal annars eftir að tveir gervi-
hnettir rákust saman árið 2009.
x x x
Draslið þeytist um geiminn á 30þúsund kílómetra hraða á
klukkustund. Rekist smáhlutur á
gervihnött eða geimfar á slíkri ferð
getur tjónið orðið gríðarlegt. Er tal-
að um að alvarlegur árekstur gæti
orðið til þess að svo mikið geimskran
yrði á sveimi yfir jörðinni að ekki
yrði hægt að fljúga út í geim. Fag-
félag fyrirtækja í gervihnattabrans-
anum hefur látið frá sér að á fimm
árum hafi gervihnöttum á braut um
jörðu fjölgað um 50%. Sú fjölgun
mun ugglaust halda áfram. Í fyrra
voru alls 4.857 gervihnettir á braut
um jörðina að því er kemur fram hjá
UNOOSA, geimstofnun Sameinuðu
þjóðanna, 1.980 virkir og 2.877
óvirkir. Þeir verða óvirkir þegar
eldsneyti þeirra er uppurið og þeir
hverfa af braut. Þeim hafði reyndar
fækkað um 20 síðan 2017.
x x x
Ýmsir eru farnir að huga að þvíhvernig bregðast eigi við þess-
um vanda. Eitt fyrirtæki er að
hanna geimför, sem geta farið út í
geim, tengst gervihnöttum, sett á þá
eldsneyti og gert við eftir þörfum til
að lengja líftíma þeirra. Aðrir eru að
skoða að fara út í geim, sækja óvirka
gervihnetti og draga þá inn í gufu-
hvolfið þannig að þeir fuðri upp eða
koma þeim aftur á braut. Þá eru
uppi hugmyndir um að senda ein-
hvers konar segulhnött út í geim til
að draga að sér brotajárn og bilaða
gervihnetti á fleygiferð í geimnum.
Menn vita hins vegar ekki hvernig
eigi að losna við minnstu hlutina úr
geimnum.
x x x
Víkverji gengst við því að hannhefur frá því hann var krakki
verið veikur fyrir geimferðum. Hann
óraði hins vegar aldrei fyrir því að
einn af fylgifiskum þeirra yrði förg-
un geimrusls. vikverji@mbl.is
Víkverji
Sértu vitur verður vitið þér til góðs en
sértu spottari þá mun það bitna á þér
einum.
(Orðskviðirnir 9.12)
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Guðmundur Arnfinnsson er ekkieinn um það að fá gott bragð í
munninn þegar við hugsum til föstu-
dagsins – fyrsta dags í þorra. Hann
yrkir á Boðnarmiði:
Hákarl vér þiggjum á þorra
að þjóðlegum sið feðra vorra,
harðfisk og svið
og sveran með kvið
svöllum að hætti Snorra.
Þessi vísa Guðmundar skýrir sig
sjálf:
Filipus var úti að aka,
ekki fór það vel,
sjón og viti virðist hraka,
varð ei Betu um sel.
Á laugardagsmorgun orti Guð-
mundur og kallaði „Óvana“ en ég
segi: „Guði sé lof!“:
Að morgni kaffi tek ég teyg
til að skerpa ögn á mér
bæti útí viskí veig
og vísnagátur semja fer.
Indriði Aðalsteinsson á Skjald-
fönn segir um „Afglapaskarð“:
„Sagt er að fleiri og fleiri fari Af-
glapaskarð, segir í kvæði Davíðs frá
Fagraskógi. Ekki byrjar árið vel
hvað þetta varðar. Dagur vill ekki úr
Bragganefndinni, Kristján Loftsson
skrifar hvalaskýrsluna í gegnum
Oddgeir A. Ottesen frambjóðanda
og varaþingmann Sjálfstæðisflokks-
ins. Nú býð ég bara eftir því að Sig-
mundur Davíð verði kosin af alþingi
til að fara yfir Klausturmálið“:
Í bananalýðveldi búum.
Á bavíana við trúum.
Vitmunasnauð?
Nei, vitsmunadauð
því aldrei frá afglöpum snúum.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir fór í
„heimsókn til Reykjavíkur“:
Borgin hún stækkar, hún er að fyllast af
húsum
sem hráviði byggingarefnin í pollunum
liggja.
Allir að byggja og allir að kaupa lóðir
og á þeim á sjálfsagt að byggja.
Í verslanamollum ég lenti í vanda að
velja
allt veður í drasli, sem háttur er
umhverfissóða.
Alþingi hefur í huga bankana að selja
já hagnaðarlindina, einkavinunum
bjóða.
Á heildina litið er eins og óvitakrakkar
úr sínum dótakössum helli og dreifi
krönum, hótelum, gröfum og gömlum
skúrum
og gleymi að spyrja um leyfi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af tilhlökkun, afglapa-
skarði og höfuðborginni
„ÞÚ SLÓST Í GEGN EINS OG VIÐ VORUM
AÐ VONAST TIL.”
„HANN Á ERFITT MEÐ AÐ FINNA EINHVERN
SEM EKKI HEFUR RÆNT HANN!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar raunveru-
leikinn er betri en
draumur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VELKOMIN Í „Algerlega
frábæru kvöldsögur
grettis”
„einu sinni
var …”
LÍKAR ÞÉR VIÐ
GRÍSABÖGGLA?
ÉG ELSKA
GRÍSABÖGGLA!
ÉG LÍKA! VILTU HALDA Á RÓSU?