Morgunblaðið - 23.01.2019, Blaðsíða 31
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s
Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s
Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s
Sýningum lýkur í mars.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s
Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 Lokas.
Sýningum lýkur 1. febrúar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Þri 5/2 kl. 20:00 aukas. Sun 10/2 kl. 20:00 30. s
Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Mið 6/2 kl. 20:00 aukas. Fim 14/2 kl. 20:00 31. s
Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s
Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Mið 23/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 7. s Mið 30/1 kl. 20:00 8. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s
Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s
Athugið. Aðeins verða átta sýningar.
Ég dey (Nýja sviðið)
Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s
Sun 27/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s
Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.ég horfði bara á hvernig myndin
var klippt,“ segir Valdís kímin.
– Þú hefur leikstýrt tveimur
kvikmyndum, ætlarðu að leikstýra
fleirum eða fékkstu kannski nóg?
„Nei, mér fannst ofsalega gaman
og sérstaklega gaman að vinna
Sveitabrúðkaup vegna þess að hún
var unnin mjög hratt og mig lang-
aði að gera eitthvað sem tæki ekki
ofsalega langan tíma, líkt og að
klippa bíómynd. Mig langaði að
vinna með fólki sem væri að vinna
með mér en ekki á móti mér,“ svar-
ar Valdís. „Ég fékk krakkana úr
Vesturporti og frábært tökulið og
svo var bara lagt af stað og myndin
skotin á sjö dögum. Hún var tekin í
réttri röð, við byrjuðum á byrjun-
inni og héldum svo áfram til loka
myndarinnar.
Það gat verið töluverð keyrsla á
milli tökustaða og á meðan tókum
við upp atriði í rútunum svo það var
engin pása. Leikararnir voru í sín-
um hlutverkum frá því að við byrj-
uðum á morgnana og þar til var
sagt bless á kvöldin.“
Valdís segist vilja gera aftur
kvikmynd með sömu aðferð og hún
beitti í Sveitabrúðkaupi. „Þegar ég
verð orðin svo rík að ég þarf ekki
að vinna fyrir mér í klippingu þá
geri ég þetta og get þá kannski
bara borgað sjálf tökudagana,“
bætir hún við.
MTV breytti miklu
Talið berst að því hvernig klippi-
listin hafi breyst frá því Valdís hóf
að stunda hana og segir hún breyt-
ingarnar einkum fólgnar í því að
myndirnar séu orðnar fjölbreyttari.
„Flóran er orðin svakalega mikil og
að því leytinu til hefur hún breyst
en ekki sjálf vinnan,“ segir hún.
Blaðamaður bendir á breytingar í
takti, að klippingar hafi orðið miklu
örari á seinustu áratugum og segir
Valdís að þær hafi þegar verið
orðnar það þegar hún klippti Fest-
en. „MTV breytti ofsalega mikið
hvernig fólk horfði, allt í einu var
komin mjög hröð klipping og fólk
vandist því að lesa mjög hraða
klippingu,“ segir hún og á þar við
myndabandasjónvarpsstöðina
margfrægu.
– Þannig að tónlistarmyndböndin
hafa haft mikil áhrif?
„Já, þau höfðu áhrif.“
Valdís hefur iðulega nóg fyrir
stafni og er núna að klippa sjón-
varpsþætti framleidda af True
North, Mystery og RÚV sem heita
Valhalla Murders og eru með Nínu
Dögg Filippusdóttur og Birni Thors
í aðalhlutverkum. „Mér finnst þetta
mjög spennandi verkefni,“ segir
Valdís sem klippir þættina með
Sigga. Þau klipptu einnig nýjustu
mynd Vinterberg, Kursk, sem
fjallar um samnefndan rússneskan
kafbát sem sökk árið 2000.
Á hvaða stofu?
Blaðamaður spyr Valdísi að því
hvort hún telji starf klipparans van-
metið eða vanþakklátt þar sem þeir
njóti jafnan lítillar athygli. „Ég held
að það sé kannski vegna þess að
fólk veit ekkert hvað klipparar
gera, margir halda að ég sé hár-
greiðslukona þegar ég segist vera
klippari og spyrja á hvaða stofu ég
vinni,“ segir Valdís og hlær. Þá
haldi margir að leikstjóri sitji við
hlið klipparanna og segi hvar eigi
að klippa inn og klippa út og hvaða
tökur eigi að nota hvar og hvernig
en svo sé ekki.
Klipparar byrja að klippa mynd-
ina meðan á tökum stendur og
ákveða hvernig þeir vilja setja sen-
una saman, segir Valdís og að leik-
stjórar merki þær tökur sem þeim
þyki bestar í hverri senu á tökustað
og þyki klippurum þær ekki góðar
velji þeir aðrar tökur. „Það getur
verið villandi fyrir leikstjóra að
vera á setti, út af spennu og öllum
þeim asa sem er umhverfis þá og
það getur haft áhrif á val þeirra á
bestu tökunni. Klippararnir, aftur á
móti, hafa bara það sem er í tölv-
unni fyrir framan þá og velja það
sem best lýsir senunni og persónum
sögunnar.
Það er ekki fyrr en klippari hef-
ur lokið við að klippa fyrsta klipp
af myndinni sem leikstjórar horfa
á myndina og það er yfirleitt
tveimur vikum eftir að tökum lýk-
ur. Þá tekur við önnur yfirferð á
myndinni þar sem leikstjórar koma
með sínar athugasemdir og farið er
yfir þær. Þegar sú yfirferð er búin
er byrjað aftur að fara yfir mynd-
ina. Þannig er haldið áfram þangað
til myndin, að mati leikstjóra,
klippara og framleiðanda, er tilbú-
in. Þegar upp er staðið hefur
myndin oft og iðulega breyst tölu-
vert frá upprunalegu handriti,“
segir Valdís.
„Það eru fleiri en ég sem segja
að kvikmynd verði til í klippi-
herberginu og allt sem á undan
kemur sé undirbúningur. Fyrsta
stig er handrit. Annað stig eru tök-
ur. Lokastigið er klipping.“
Fjölskyldudrama Úr Dogma-myndinni og fjölskylduharmleiknum Festen.
Átök Úr kvikmyndinni Sveitabrúðkaup sem Valdís leikstýrði.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Emilía Rós Sigfúsdóttir frumflytur Flautukonsert eftir
Jón Ásgeirsson á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Eldborg Hörpu annað kvöld kl. 19.30 undir
stjórn Ligiu Amadio. Að auki verða fluttir Sinfónískir
dansar úr West Side Story eftir Leonard Bernstein og
Bachianas Brasileiras nr. 7 eftir Heitor Villa-Lobos
sem hljómar hér í fyrsta sinn á Íslandi. „Villa-Lobos var
höfuðtónskáld Brasilíu og sló þjóðlegan tón í verkum
sínum, blandaði seiðandi hryn brasilískrar tónlistar
saman við áhrif frá Stravinskíj,“ segir í tilkynningu frá
hljómsveitinni. Svítan úr West Side Story er flutt í til-
efni af aldarafmæli Bernstein síðla síðasta árs. Jón
fagnaði níræðisafmæli sínu í haust. Flautukonsert hans
frá árinu 2000 er lýst sem hrífandi tónsmíð í þjóðlegum
stíl. Tónleikakynning hefst í Hörpuhorni kl. 18 og tón-
leikanir sjálfir verða í beinni útsendingu á Rás1.
Morgunblaðið/Eggert
Jón, Bernstein og Villa-Lobos
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn
Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn
Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas.
Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas.
Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas.
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Fös 22/2 kl. 19:30 Auka
Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn
Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas.
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fim 31/1 kl. 18:00 Frums Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fös 1/2 kl. 18:00 2.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Velkomin heim (Kassinn)
Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn
Insomnia (Kassinn)
Sun 27/1 kl. 19:30 Lokas.
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 24/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30
Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Fim 14/2 kl. 19:30
Fös 25/1 kl. 22:30 Lau 2/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 19:30
Lau 26/1 kl. 20:00 Lau 2/2 kl. 22:00 Fös 15/2 kl. 22:00
Lau 26/1 kl. 22:30 Fim 7/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 19:30
Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 8/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 22:00
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 27/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200