Morgunblaðið - 23.01.2019, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2019
Leikararnir John Travolta, Melissa
McCarthy, Bruce Willis, Jennifer
Garner og Bandaríkjaforseti, Don-
ald Trump, eru meðal þeirra sem
hljóta tilnefningar til Razzie-
verðlaunanna svokölluðu, banda-
rísku kvikmyndaskammarverð-
launanna sem eru iðulega afhent
um svipað leyti og Óskars-
verðlaunin. Verður það nú gert í
39. sinn og kemur þá í ljós hvaða
kvikmyndir þóttu verstar á árinu
2018, hvaða leikarar og hvaða leik-
stjóri.
Kvikmyndirnar sem tilnefndar
eru sem versta kvikmyndin eru
Gotti, The Happytime Murders,
Holmes & Watson, Robin Hood og
Winchester. Travolta þykir hörmu-
legur í Gotti líkt og McCarthy í The
Happytime murders og Life of the
Party. Willis þykir einkar slakur í
Death Wish líkt og Garner í hasar-
myndinni Peppermint.
Eflaust kemur mörgum á óvart
að Trump sé tilnefndur en tilnefn-
inguna hlýtur hann fyrir að leika
sjálfan sig í myndefni sem sjá má í
heimildarmyndunum Death of a
Nation og Fahrenheit 11/9. Þess
má geta að fyrrnefnda myndin hlýt-
ur meðaltalseinkunnina 1 af 100
mögulegum á vefnum Metacritic
sem tekur saman gagnrýni fjölda
kvikmyndagagnrýnenda. Razzie-
verðlaunin heita fullu nafni The
Golden Raspberry Award og voru
fyrst veitt árið 1981. Í ár verða þau
veitt 23. febrúar, kvöldið áður en
Óskarsverðlaunin verða afhent.
Verðlaun fyrir það versta eru
veitt í fleiri flokkum, m.a. fyrir
verstu endurgerð, stælingu eða
framhaldsmynd og kemst Death
Wish m.a. þar á blað. Í flokki verstu
leikstjóra eru tilnefndir Ethan
Coen fyrir Holmes & Watson, Kevin
Connolly fyrir Gotti, James Foley
fyrir Fifty Shades Freed, Brian
Henson fyrir The Happytime Mur-
ders og Spierig-bræður fyrir Winc-
hester.
Trump tilnefndur til
Razzie-verðlauna
Það versta á kvikmyndaárinu 2018
AFP
Lélegur Donald Trump þykir leika
sjálfan sig afskaplega illa.
Playing Hard
IMDb 6,9/10
Bíó Paradís 17.30
First Reformed
Metacritic 85/100
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 22.20
Underdog
Bíó Paradís 20.00
Shoplifters
Metacritic 93/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 17.40, 20.00
Roma
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 95/100
IMDb 8,6/10
Bíó Paradís 17.30
Suspiria
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 64/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 21.30
Nár í nærmynd
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 19.30, 22.20
The Favourite 12
Snemma á 18. öldinni á Eng-
land í stríði við Frakka. Hin
veikbyggða drottning Anne
er við völd, en Sarah vinkona
hennar stjórnar í hennar.
Ath myndin er sýnd án
texta.
Metacritic 90/100
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 21.00
The Upside Metacritic 45/100
IMDb 5,5/10
Laugarásbíó 17.15, 19.50,
22.25
Háskólabíó 18.10, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.00,
19.30, 21.30
Green Book 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 70/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 19.30
Sambíóin Egilshöll 17.00,
20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 16.20,
21.40
Sambíóin Keflavík 19.20
Escape Room 16
Metacritic 50/100
IMDb 6,4/10
Smárabíó 19.50, 22.10
Borgarbíó Akureyri 21.50
Holmes og Watson 12
Metacritic 24/100
IMDb 3,4/10
Smárabíó 17.50, 20.10,
22.20
Ben Is Back Metacritic 68/100
IMDb 6,9/10
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 19.30
Mary Poppins
Returns 12
Metacritic 66/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 16.40
Sambíóin Egilshöll 17.00
Sambíóin Kringlunni 19.00
Second Act IMDb 5,8/10
Laugarásbíó 19.50, 22.00
Bumblebee 12
Metacritic 35/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00
Sambíóin Akureyri 17.00
Fantastic Beasts:
The Crimes of
Grindelwald
Bönnuð börnum yngri en 9
ára.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 57/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 19.30
Bohemian
Rhapsody 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 49/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 19.50, 22.25
Smárabíó 16.00
Háskólabíó 18.10, 20.30
A Star Is Born 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Kringlunni 16.10,
19.00, 21.45
Spider-Man: Into the
Spider-Verse Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 87/100
IMDb 8,8/10
Laugarásbíó 17.15
Smárabíó 15.00, 15.10,
17.10, 19.50, 22.30
Háskólabíó 18.00
Ótrúleg saga um
risastóra peru IMDb 6,2/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.20, 17.20
Háskólabíó 18.00
Halaprúðar hetjur IMDb 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.45
Nonni norðursins 2 Smárabíó 15.00, 17.40
Borgarbíó Akureyri 17.30
Ralf rústar
internetinu Metacritic 71/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.00
Sambíóin Akureyri 17.00
Kevin Crumb, David Dunn, og Elijah Prince,
öðru nafni Hr. Glass, eru allir staddir saman á
geðspítala, og eru þar í sérstöku prógrammi
fyrir fólk sem heldur að það sé ofurhetjur.
Metacritic 41/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 19.30
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 16.20, 21.40
Sambíóin Keflavík 19.20
Glass 16
Robin Hood 12
Robin af Loxley, sem hefur
marga fjöruna sopið í
krossferðum, og Márinn
félagi hans, gera uppreisn
gegn spilltum enskum yf-
irvöldum.
Metacritic 32/100
IMDb 5,4/10
Sambíóin Álfabakka
19.50, 22.20
Sambíóin Egilshöll 22.30
Sambíóin Akureyri 22.20
Aquaman 12
Arthur Curry kemst að því að
hann er erfingi neðansjávarrík-
isins Atlantisog þarf að stíga
fram og verða leiðtogi þjóðar
sinnar.
Metacritic 53/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.50, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00
Sambíóin Akureyri 19.30
Sambíóin Keflavík 21.50
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Wifi búnaður
fylgir með öllum
varmadælummeðan
birgðir endast
Mission Extreme
Umhverfisvænn kælimiðill