Morgunblaðið - 23.01.2019, Side 36
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskól-
anna, skipuð tónlistarnemum úr
tónlistarskólum á suðvesturhorni
landsins, heldur árlega tónleika
sína kl. 20 í kvöld í Langholtskirkju
að loknu þriggja vikna námskeiði í
hljómsveitarleik.
Einleikari er Jóhann Gísli Ólafs-
son á sembal og einsöngvari Guð-
finnur Sveinsson barítón.
Sinfóníuhljómsveit
tónlistarskólanna
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 23. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Ísland spilar lokaleik sinn á heims-
meistaramótinu í handknattleik í
dag kl. 14.30 þegar það mætir
Brasilíu í lokaumferð milliriðla-
keppninnar. Brasilíumönnum hefur
jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg
á handboltavellinum en handbolti
er stundaður á nokkrum svæðum
landsins, ekki síst í tengslum við
framhaldsskóla og háskóla. »1
Síðasti leikur Íslands
á HM í dag
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað
sópransöngkona býður gestum
Gerðarsafns í Kópavogi með sér í
spunakenndan söngleiðangur kl.
12.15 í dag. Hrafnhildur syngur óð
til verka sem vekja hjá henni hug-
hrif og hefst leiðangurinn hjá
verkinu Tape eftir Sigurð Guðjóns-
son með laginu Le Violon eftir F.
Poulenc. Við verk Doddu Maggýjar,
Curlicue (spectra), syngur hún
grískt þjóðlag og endar leiðangur-
inn á laginu
Draumalandið eft-
ir Sigfús Ein-
arsson fyrir
framan verkið
Hraun og mosi
eftir
Steinu.
Spunakenndur söng-
leiðangur í Gerðarsafni
Veður hefur ekki sett strik í
reikninginn undanfarin ár en það
hefur ekki alltaf verið svo. „Einu
sinni byrjaði blótið ekki fyrr en
klukkan tíu því gestirnir sátu fast-
ir með matinn og vínið uppi á
Vatnsskarði,“ rifjar Kristjana upp.
„Þá var maðurinn minn snjóruðn-
ingsmaður á ýtu og ruddi leiðina,
mætti svo á blótið en þegar ballið
var hálfnað fór hann til þess að
byrja að moka aftur.“
Kristjana leggur áherslu á að
Vegagerðin hafi alltaf verið ákaf-
lega hliðholl heimamönnum, haldið
veginum opnum og skafið aftur um
þorrablótsnóttina hafi þess verið
þörf. „Við tölum yfirleitt vel um
Vegagerðina hér þó að það sé
kannski ekki til siðs á Íslandi.“
Þorrablótið er helsta skemmt-
unin á Borgarfirði eystra ár hvert.
„Þetta er stóra árshátíðin okkar
og hér er það til siðs að dansa
fram undir morgun á blótinu,“
segir Kristjana. Bætir við að ára-
tugahefð sé fyrir því að hljóm-
sveitin Nefndin spili fyrir dansi á
ballinu. „Það er vandfundin betri
danshljómsveit,“ segir Kristjana.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þorrinn byrjar á föstudag og und-
irbúningur þorrablóta víða um
land stendur sem hæst. Á Borgar-
firði eystra er bóndadagur upphaf
nýs árs. „Hér tölum við um fyrir
og eftir þorrablót og annállinn
miðast við það,“ segir Kristjana
Björnsdóttir, formaður þorrablóts-
nefndar.
Borgfirðingar eystra hafa haldið
þorrablót árlega frá 1946. Fjórar
nefndir skiptast á um að skipu-
leggja blótin, sjá um mat og drykk
sem og skemmtiatriði. Í nefnd
Kristjönu eru 20 manns. „Nefndin
okkar er mjög vel mönnuð, við
fengum til liðs við okkur ungt fólk,
sem býr á Egilsstöðum, og það er
frábær viðbót,“ segir hún. „Það
telur ekki eftir sér að keyra um 70
kílómetra aðra leiðina til þess að
aðstoða okkur og þetta léttir mjög
á okkur, þessum gömlu.“
Þorrablótið frekar en Kanarí
Um 100 manns eru með lög-
heimili á Borgarfirði og um 80
með fasta búsetu en um 200
manns sækja blótið. „Hvert þorra-
blót er með sitt þema,“ segir
Kristjana og vísar til viðburða frá
síðasta bóndadegi. Skipulögð dag-
skrá taki um tvo tíma og allt efni
sé samið af heimamönnum, meðal
annars vísur, sem ortar hafi verið
um nefndarmenn blótsins hverju
sinni frá 1955.
Á meðal gesta í ár eru hjón sem
eiga heima í Noregi. Konan er frá
Borgarfirði eystra en maðurinn
norskur. „Þegar þau komu síðast
stóð valið á milli þess að koma
hingað eða fara í sólina á Kanarí
og Norðmaðurinn valdi þorrablótið
okkar,“ segir Kristjana. Hún bætir
við að brott fluttir séu yfirleitt í
meirihluta og alltaf einhverjir sem
komi á þorrablótið af höfuðborgar-
svæðinu. „Nokkrum Íslendingum
finnst jafnlangt að fara frá
Reykjavík til Borgarfjarðar eystra
eins og frá Borgarfirði til Reykja-
víkur.“
Talað um fyrir
og eftir þorrablót
Dansað fram undir morgun á Borgarfirði eystra
Ljósmynd/Jón Helgason
Þorrablót Kristjana Björnsdóttir sér um flatkökurnar fyrir laugardaginn.
TÍMINN VINNUR
MEÐ FLUGKORTINU
Hjá blómlegum fyrirtækjum eru
starfsmenn gjarnan á ferð og
flugi. Með sérstökum afsláttar-
kjörum á flugi eykur Flugkortið
hagkvæmni í rekstri og tryggir
lægri ferðakostnað starfsmanna.
Skerðu niður
ferðakostnaðinn
innanlands
Tryggðu fyrirtækinu þínu Flugkortið á airicelandconnect.is