Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Side 2
Hvernig líst þér á hópinn sem taka mun þátt í Söngva- keppninni 2019? „Mér líst mjög vel á hann. Þetta verður mjög áhuga- vert og fjölbreytt. Ég er virki- lega spenntur fyrir keppninni sem er fram undan.“ Fáum við að sjá eitthvað alveg nýtt? „Höfum við ekki séð allt í Eurovision? En jú, ég myndi segja það. Það er líklega öruggast fyr- ir áhorfendur að spenna beltin.“ Ert þú mikill Eurovision-maður? „Ég er að verða það meira og meira með árunum. Ætli ég sé ekki bara eins og aðrir, fíla sumt, annað ekki. Síðan er Söngvakeppnin bara að verða svo stór viðburður; sá allra stærsti á RÚV. Þannig að það er alveg geggjað fyr- ir svona „tækniperra“ eins og mig að fá tækifæri að fylgjast með.“ En rætur þínar eru í rappinu, ekki satt? „Jú, ég fer úr rappinu í Eurovison. En það er einmitt svo gaman, að fá tækifæri til að kynnast öðruvísi tón- list og ólíku fólk.“ Þú ert fyrirferðarmikill í sjónvarpi um þessar mundir, sérð einnig um þættina Rabbabari á fimmtudagskvöldum. „Já, það var kominn tími til að slá aðeins um sig. Rabbabari eru níu þættir um íslenska rappara og er RÚV núll framleiðsla og beint framhald af þáttum með sama nafni sem ég stjórna á RÚV núll.“ Er gaman að vinna í sjónvarpi? „Já, alveg geggjað enda er ég að gera það sem ég hef mest gaman af, að tala við fólk. Loksins fæ ég borgað fyrir að tala.“ Langar þig að vinna meira í sjónvarpi? „Já, er maður ekki búinn að finna sína braut? Ég hef alltaf haft brennandi áhuga á fólki og er gjarnan skammaður fyrir það á ferðalögum í út- löndum að lenda á spjalli við allskonar fólk. Þess utan er ég menntaður hljóðtæknir og hef verið í tónlist síðan ég var krakki. Þannig að öll áhugamálin sameinast þarna. Er hægt að hafa það betra?“ Morgunblaðið/Eggert ATLI MÁR STEINARSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.1. 2019 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Frétt af því að reikningur þriggja ára stúlku hefði verið tæmdur vakti at-hygli undirritaðrar í vikunni. Sem betur fer fór allt vel og peningarnirrötuðu á réttan stað fyrir rest, en eftir sitjum við, viðskiptavinir bank- anna, með óþægilega tilfinningu. „Mannleg mistök“ voru víst notuð sem skýring, ekkert nýtt þar. En það dug- ar skammt því engin mistök hefðu átt að geta átt sér stað. Það hefði átt að vera ómögulegt. Reikning sem er lokaður til 18 ára aldurs á ekki að vera hægt að tæma með einni færslu. Það eiga að vera til staðar kerfi sem koma í veg fyrir að svona nokkuð geti gerst. Mannlegi þátturinn á ekki að þurfa að þvælast fyrir neinum. Fyrir nokkrum árum barst mér- tölvupóstur frá ónefndum banka (ekki þeim sama og klúðraði málinu með reikning litlu stúlkunnar) um að einstaklingur, sem ég þekkti ekki neitt og hafði aldrei heyrt nefndan, hefði óskað eftir yfirdráttarheimild upp á 200 þúsund krónur sem við- komandi ætlaði að greiða niður um 50 þúsund krónur á mánuði og heimildin hefði verið samþykkt. Þessar persónuupplýsingar um hagi ókunnugs manns, sem komu mér ekk- ert við, fékk ég sendar fyrir mannleg mistök. Í ljós kom að þjónustufulltrúi í bankanum hafði ætlað að senda póstinn á netfang mannsins en netfangið líkst mínu. Fyrir mistök hafði þjónustufulltrúinn þá valið mitt netfang en ekki þess sem sótt hafði um heimildina. Ég einfaldlega tilkynnti þetta með því að senda póst til baka og þetta var svo sem ekki stórmál. En þetta hefur engu að síður áhrif á traustið. Ósjálfrátt skýtur ákveðinni hugsun í kollinn, sem hljómar ein- hvern veginn svona: „ef þetta getur gerst … hvað annað getur þá gerst?“ Það sem er athugavert við málið með reikning þriggja ára stúlkunnar og óumbeðna tölvupóstinn sem ég fékk er ekki að mistökin hafi átt sér stað, heldur að þau geti átt sér stað. Við sem neytendur viljum að bankinn, hvaða nafni svo sem hann heitir, gæti fyllsta öryggis þegar höndlað er með peningana okkar og upplýsingar um okkur. Það er ekki traustvekjandi að mannshöndin geti, þrátt fyrir mikla sjálfvirkni í bankaviðskiptum, óvart fært peninga til og frá eða sent pósta með persónuupplýsingum. Kaldhæðnin í þessu öllu er svo auðvitað sú að sjálfvirkni í fjármálaþjónustu hefur aukist stórkostlega undanfarið, svo mikið að bankarnir telja okkur stöðugt trú um að við þurfum hreinlega ekki að fara í bankann (nær engin útibú eftir) eða eiga samskipti nema bara við vélar … það sé allt svo miklu öruggara þannig. Öryggi er hryggjarstykkið í bankaþjónustu. Morgunblaðið/Golli Ekki nóg að segja „úbbs“ Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Reikning sem er lok-aður til 18 ára aldursá ekki að vera hægt aðtæma með einni færslu. Selma Dögg Jóhannsdóttir Ég hef ekki smakkað, en mig langar að prófa hákarl. SPURNING DAGSINS Borðar þú þorramat? Lukasz Olsen Nei. Ég hef smakkað en mér finnst hann ekki góður. Fanný Huld Friðriksdóttir Já, en mjög sjaldan. Ég borða ekki hákarl en svið eru fín. Björgvin Helgason Já. Hákarlinn er í uppáhaldi. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Atli Már Steinarsson, verkefnastjóri RÚV núll, er umsjónarmaður Kynningarþáttar Söngvakeppninnar 2019 sem er á dagskrá RÚV í kvöld, laugardagskvöld, kl. 19:45. Þar komumst við að því hverjir taka þátt í Söngvakeppninni 2019 og heyrum brot úr lögunum tíu. Loksins borgað fyrir að tala

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.