Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.01.2019, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 2019
BORGHESE model 2826
L 220 cm Leður ct. 15 Verð 489.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
SAVOY model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 305.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 435.000,-
ESTRO model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
RELEVE model 2572
L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 315.000,-
L 250 cm Leður ct. 15 Verð 459.000,-
MENTORE model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 335.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 365.000,-
„Í sjálfhverfu minni var ég að vona að forsetinn myndi
minnast á mig í nýársávarpi sínu í sjónvarpinu en það gerð-
ist ekki. Ég fyrirgef honum það hins vegar því daginn eftir
barst mér bréf frá forsetanum þar sem hann bauð mér í
heimsókn á Bessastaði,“ segir Valdimar Sverrisson, fislétt-
ur í lund að vanda, en fundur þeirra forsetans fór fram
síðastliðinn fimmtudag. Valdimar missti sjónina í kjölfar
þess að góðkynja æxli var fjarlægt úr höfði hans árið 2015.
Í bréfi forsetans sagði: „Kæri Valdimar. Ég þakka þér
kærlega fyrir fjörlegt og skemmtilegt viðtal við þig sem ég
las í Morgunblaðinu í morgun. Þú hefur greinilega tekið
réttan pól í hæðina, og ert okkur hinum fyrirmynd með
æðruleysi þínu, húmor og einlægni. Gangi þér vel í öllu
sem þú tekur þér fyrir hendur.“
Með Valdimar í för voru móðir hans, Anna Valdimars-
dóttir, dætur hans, Hildur Anna og Lára Margrét og
æskuvinur hans, Bjarnfreður Ólafsson. Elsta dóttir Valdi-
mars, Valdís Ingunn, komst ekki vegna veikinda.
„Ég skemmti mér konunglega á Bessastöðum og við
öll,“ segir Valdimar og leggur áherslu á orðið „konung-
lega“. „Forsetinn er mjög alþýðlegur og viðræðugóður.
Það var mikið hlegið og grínast. Við komum víða við og for-
setinn minntist meðal annars á viðtalið við mig í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins og hrósaði mér fyrir það. Ég
færði honum eintak af Litla prinsinum eftir Saint-Exupéry
sem faðir minn, Sverrir Kristinsson, gaf út árið 2016. Ég
var ekkert að hlífa forsetanum. Þegar hann spurði hvernig
heyrnin væri svaraði ég að sjálfsögðu: Ha?“
Guðni Th. Jóhannesson, Lára
Margrét Valdimarsdóttir, Anna
Valdimarsdóttir, Hildur Anna
Valdimarsdóttir, Valdimar
Sverrisson og Bjarnfreður
Ólafsson á Bessastöðum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Boðið á Bessastaði
Valdimar Sverrissyni var boðið í heimsókn á Bessastaði eftir að forseti
Íslands las viðtal við hann í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins rétt fyrir jól.
„Litlu munaði að illa færi í nýju
stólalyftunni í Bláfjöllum í gær-
dag er Ellert Schram alþingis-
maður festist þar í stól og dróst
upp með lyftunni 50-60 metra,“
sagði í frétt í Morgunblaðinu á
þessum degi 1979.
Þrátt fyrir tilraunir tveggja
manna til að ná honum úr fest-
unni tókst það ekki og losnaði
Ellert ekki úr þessari prísund
fyrr en lyftunni var bakkað nið-
ur, en er á jafnsléttu kom tókst
honum strax að losa sig. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þetta hefði algjörlega verið
sinn eigin klaufaskapur. Að-
spurður hvort hann hefði ekkert
slasast sagði hann að handlegg-
urinn væri allur mjög dofinn og
bætti við að hann væri á leið upp
á slysavarðstofu til að láta at-
huga hann.
Fram kom að tildrög þessa at-
viks voru þau, að Ellert ætlaði
ásamt dóttur sinni í lyftuna, en
stúlkan náði ekki að komast í
lyftustólinn, ætlaði Ellert því
einnig að fara úr lyftunni. Ekki
tókst betur til en svo að hann
kræktist fastur í hlið stólsins og
sat fastur á handarkrikanum.
Sagði hann að hæðin niður á
jörð hefði verið 10-15 metrar
þar sem hann hékk í lausu lofti
og gat ekki hreyft sig.
GAMLA FRÉTTIN
Festist í
stólalyftu
Ellert B. Schram (annar frá hægri) á skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal ásamt
Gunnari Þórðarsyni, Gylfa Guðmundssyni og Agli Jóhannssyni.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Michael Fassbender
leikari
Hjálmar Örn Jóhannsson
skemmtikraftur
Rúnar Unnþórsson
prófessor í iðnaðarverkfræði